Fréttablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 42
Öryggismál eru í
fyrirrúmi hjá
fyrirtækinu auk heil-
brigðis- og umhverfis-
mála. Starfsmenn eru um
400 og á hverju ári ræður
fyrirtækið yfir 100 manns
í sumar afleysingar.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Álverið ISAL í Straumsvík er rekið af Rio Tinto á Íslandi. Fyrirtækið hóf framleiðslu
áls árið 1969. Í ár eru tímamót hjá
fyrirtækinu því liðin eru 50 ár frá því
að útflutningur áls hófst frá Íslandi. Í
Straumsvík eru framleidd árlega um
212 þúsund tonn af hágæða áli sem
skapar þjóðfélaginu dýrmætar gjald-
eyristekjur.
Ál gerir daglegt líf fólks betra. Það
er notað í farartæki, byggingar, raf-
tæki og umbúðir og fleira. Yfir 75%
af því áli sem hefur verið framleitt
frá upphafi er enn í notkun og hægt
að endurvinna endalaust. Það þýðir
að komandi kynslóðir geta notað
íslenskt umhverfisvænt ál aftur og
aftur með lítilli fyrirhöfn.
Öryggismál eru í fyrirrúmi hjá
fyrirtækinu auk heilbrigðis- og
umhverfismála. Starfsmenn eru um
400 og á hverju ári ræður fyrirtækið
yfir 100 manns í sumar afleysingar.
Starfsemin byggist á hæfu og áhuga-
sömu starfsfólki sem er ein mikil-
vægasta auðlind fyrirtækisins. Um
70 konur starfa um þessar mundir
hjá ISAL.
Fjölbreytt starf
Bryndís Blöndal starfar sem raf-
eindavirki hjá ISAL. Þar hefur hún
starfað í þrjú ár og byrjaði sem nemi.
„Ég kláraði sveinsprófið og var í kjöl-
farið fastráðin sem rafeindavirki,“
segir hún. „Starfið felst að mestu
Álverið er líka fyrir konur
Álverið ISAL í Straumsvík leggur áherslu á að skapa öruggan og eftirsóknarverðan vinnustað. Verið
er að ljúka jafnlaunavottun í álverinu og mikil áhersla er á að fjölga konum í hópi starfsmanna.
vinnunni, sem er mjög hagkvæmt.“
Bryndís segist njóta þess að vera
með fjölskyldu og vinum utan
vinnutíma, hvort sem það er að elda
saman, spila eða horfa á mynd. „Ég
hef mikinn áhuga á veiði, þá aðal-
lega fiskveiði en líka skotveiði. Það
var verið að stofna veiðiklúbb innan
ISAL og verður spennandi að sjá
hvernig hann þróast,“ segir hún.
Fjölskylduvænt umhverfi
Sigríður Guðmundsdóttir hefur
starfað hjá ISAL frá því í febrúar
2015 en hafði áður verið sumar-
starfsmaður í tvö sumur. Hún er
leiðtogi kerrekstrar og ber ábyrgð á
helstu ferlum innan kerskálans sem
snúa að því að framleiða gæðaál á
sem öruggastan og hagkvæmasta
hátt. „Starfið er mjög líflegt og fjöl-
breytt og verkefnin gott sambland
af hefðbundinni greiningarvinnu,
öryggis- og gæðaeftirliti og stöð-
ugum umbótum,“ útskýrir hún.
Sigríður er ánægð í vinnunni. „Já,
það er mjög gott að vinna hjá ISAL.
Maður fær mikið traust til þess að
sinna verkefnum sínum. Hvert sem
maður leitar, fólk er alltaf tilbúið
að koma til aðstoðar við hin ýmsu
verkefni sem þarf að leysa. Sam-
starfsfólk mitt er mjög skemmtilegt
og allir leggja sig fram við að ná
settu marki.“
Sigríður er Hafnfirðingur og
henni fannst álverið alltaf spenn-
andi staður. „Eftir að hafa unnið
í álverinu í tvö sumur á meðan
ég var í verkfræðinni varð ISAL
eitt af þeim fyrirtækjum sem mig
langaði til að vinna hjá þegar ég
útskrifaðist. Þetta er fjölskylduvænt
fyrirtæki. Vinnutíminn er fastur
og yfirvinna ekki mikil. Yfirleitt er
mikill skilningur fyrir alls konar
púsli sem þarf í tengslum við fjöl-
skylduna í veikindum, fríum og þess
háttar. Utan vinnutímans stunda
ég CrossFit og spila svo „old girls“
bolta einu sinni í viku með síungum
fótboltastelpum. Hef mikinn áhuga
á ferðalögum, bæði innan- sem
utanlands og finnst frábært að fara
með fjölskyldunni á skíði. Annars
fer frítíminn mikið í að fylgja eldri
börnunum eftir í þeirra frístund-
um,“ segir hún.
Vaktirnar henta vel
Sunna Hlín Jónsdóttir hefur starfað
sem kerskálastarfsmaður hjá ISAL
frá árinu 2012. Hún byrjaði um
sumarið og hefur síðan unnið
með skóla. Sunna Hlín segist geta
hlaupið í öll störf í kerskálanum en
vinnan sé aðallega tækjavinna. „Ég
er oftast í starfi sem kallast skaut-
skipting. Það hentar mér mjög vel
að vinna í álverinu. Þetta er þægi-
legt starf og vaktirnar skemmti-
legar. Ég átti ekki endilega von á að
ég yrði svona lengi í þessu starfi en
vaktirnir henta mér vel. Við erum
með þrískiptar vaktir og vinnum
sex vaktir á fimm dögum þannig að
það er einn dagur í vinnuhringnum
þar sem maður sér fáa aðra vinnufé-
laga,“ segir Sunna Hlín.
Fyrir utan vinnuna er það heilsan
sem skiptir hana mest máli. „Ég hef
áhuga á öllu sem viðkemur heilsu.
Ég lærði ÍAK einkaþjálfun með fram
vinnunni. Undanfarið hef ég verið í
fjarnámi að læra nudd ásamt því að
klára Stóriðjuskólann sem er innan
fyrirtækisins. Þrátt fyrir allt þetta
hef ég engu að síður tíma til að gera
flest það sem mig langar til en þau
fimm daga frí sem við fáum á milli
vakta henta mér mjög vel.“
Öll störf hjá ISAL henta jafnt konum sem körlum. Hér eru þær Bryndís Blöndal rafeindavirki, Sunna Hlín Jónsdóttir kerskálastarfsmaður og Sigríður Guðmundsdóttir, leiðtogi kerrekstrar. MYNDIR/ANTON BRINK
leyti í fyrirbyggjandi viðhaldi, próf-
unum á til dæmis vogum og mælum,
en einnig í bilanagreiningu og upp-
setningu á búnaði. Starfið er mjög
fjölbreytt og oft á tíðum krefjandi
þegar leysa þarf flóknar bilanir.“
Þegar Bryndís er spurð hvernig sé
að starfa hjá fyrirtækinu, svarar hún:
„Það er mjög gott að vinna hjá ISAL
og ég mæli eindregið með því. Starfs-
andinn er góður og sem rafeinda-
virki fer ég um alla verksmiðjuna og
kynnist því mörgum sem hér starfa.
Hér eru fjölbreytt störf og það er
alltaf mikið lagt upp úr því að öryggi
starfsmanna sé tryggt.“
Bryndís kláraði stúdentspróf af
náttúrufræðibraut samhliða grunn-
námi rafiðna. „Eftir það var ég ekki
viss hvað ég vildi gera, skráði mig í
líffræði en fann mig ekki þar. Ákvað
þá að fara í rafeindavirkjun og kunni
mjög vel við fagið, enda hef ég alltaf
haft mikinn áhuga á því að skrúfa
hluti í sundur og spá í hvernig þeir
virka, þó svo að þeir hafi nú ekki
alltaf farið rétt saman aftur,“ útskýrir
hún.
Ekki eru margar konur í iðnaðar-
störfum hjá ISAL, ein til tvær í hverri
deild. Bryndís segir að gaman væri
að sjá fleiri konur þar enda henta
störfin þeim ekki síður en körlun-
um. „Mér þætti einnig mikilvægt að
sjá fleiri stelpur velja iðnnám því þar
eru mörg spennandi tækifæri. Ég tel
ISAL vera fjölskylduvænan vinnu-
stað, fjölmörg störf á svæðinu eru
á dagvinnutíma en einnig er unnið
eftir vaktaskipan. Starfsmenn eiga
möguleika á að taka rútur í og úr
12 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-C
E
7
C
2
2
3
1
-C
D
4
0
2
2
3
1
-C
C
0
4
2
2
3
1
-C
A
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K