Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 46
Ég hef margoft
verið spurð hvers
vegna svo fáar konur
starfi við raforkumál og
hef ákveðið að taka þátt í
að snúa þessu við.
Við erum þjálfaðar
í því að veita þjón-
ustu eftir aðgerðir. Þá
hefur endermologie
meðferðin hlotið náð hjá
bandaríska lyfjaeftir-
litinu (FDA) sem áhrifa-
ríkasta meðferðin við
appelsínuhúð, hrukkum
og misfellum í húðinni.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Endermologie var upphaflega þróað á níunda áratugnum af Frakkanum Louis-Paul
Guitay. Hann hafði sjálfur lent í
slysi og fékk í lið með sér lækna
og vísindamenn til að þróa tæki
undir nafninu LPG til að hjálpa sér
til bata. Óvænt aukaverkun með-
ferðarinnar var að appelsínuhúð
minnkaði til muna og í kjölfarið
var farið að nota tækið víða í þeim
tilgangi að draga úr appelsínuhúð
og gera slappa húð stinnari.
„Líkamslögun er LPG stofa
og endermologie er okkar fag,“
segir Harpa Hauksdóttir, eigandi
Líkamslögunar á Nýbýlavegi 8.
Harpa er menntaður einkaþjálfari
og vottaður LPG meðferðaraðili
líkt og samstarfskona hennar á
stofunni sem jafnframt er sjúkra-
þjálfari.
Harpa segir fólk á öllum aldri og
af báðum kynjum koma á stofuna,
annars vegar í líkamsmeðferð og
hins vegar í andlitsmeðferð. Með-
ferðin felst í því að auka súrefnis-
flæði í húðinni og koma blóðflæð-
Fallegri húð með LPG tækni
Líkamslögun er nuddstofa sem sérhæfir sig í endermologie aðferðinni með LPG Cellu M6 tæki.
Aðferðin hefur margsannað sig og hjálpar fólki á öllum aldri að fá fallegri og stinnari húð.
„Endermologie er okkar fag,“ segir Harpa Hauksdóttir hjá Líkamslögun.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
inu af stað sem hjálpar til við að
losa um hnúta og stíflur. „Hingað
koma til dæmis konur sem eiga
erfitt með að losna við slappa húð
eftir barneignir og fólk sem er í
ræktinni en á erfitt með ákveðna
staði á líkamanum. Viðskiptavinir
okkar eru úr öllu þjóðfélagsgeirum
og með ólík vandamál. Fólk leitar
til dæmis til okkar vegna þreytu og
álags. Fjallgöngu- og íþróttafólk er
einnig duglegt að koma til okkar
en þess má geta að úti í löndum
er algengt að íþróttafélög eigi
sjálf svona tæki,“ segir Harpa en í
Líkamslögun er notast við tæki af
gerðinni LPG Cellu M6 Integral.
Læknar hafa sent fólk í eftirmeð-
ferð í Líkamslögun enda eru LPG
tækin lækningatæki í grunninn.
„Við erum þjálfaðar í því að veita
þjónustu eftir aðgerðir. Þá hefur
endermologie meðferðin hlotið
náð hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu
(FDA) sem áhrifaríkasta meðferðin
við appelsínuhúð, hrukkum og
misfellum í húðinni,“ upplýsir
Harpa og bætir við að stundum
komi fólk í einum tilgangi, til
dæmis til að losna við appelsínu-
húð, en uppgötvi þá að meðferðin
hafi bætandi áhrif á ýmislegt
annað sem tengist líkamlegri
heilsu. Harpa segir misjafnt hversu
oft þurfi að koma á stofuna, það sé
metið í hverju tilfelli fyrir sig.
Líkamslögun býður einnig upp
á LPG húðlínuna fyrir líkama og
andlit. „Þetta eru stórkostlegar
húðvörur og þær einu í heiminum
sem eru búnar til með þessari
sérstöku tækni. Þá eru þær án para-
bena og búnar til eftir sérstakri
LPG formúlu.“
Árangur meðferðanna hefur
spurst út og nóg hefur verið að gera
á stofunni. „Viðskiptavinir okkar
eru ánægðir og eru duglegir að láta
aðra vita af jákvæðum árangri.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook síðunni Líkamslögun.
Það er mikilvægt að fjölga konum í orkugeiranum á Íslandi. Fyrirtæki með jöfn
hlutföll kvenna og karla ná betri
árangri, enda ná teymi í jafnvægi
til að mynda betur til viðskipta-
vina, sem eru jú bæði konur og
karlar. Þetta segir sig auðvitað
sjálft en hefst ekki nema með því
að kveikja áhuga beggja kynja á
raforkumálum og gefa rými fyrir
bæði kven- og karllæg gildi innan
fyrirtækjanna,“ segir Íris Baldurs-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá
Landsneti.
Íris er rafmagnsverkfræðingur
og hefur starfað hjá Landsneti
síðan 2006 en þar á undan vann
hún í Svíþjóð og Mexíkó sem
verkefnisstjóri stórra rafbúnaðar-
verkefna fyrir flutningsfyrirtæki
um allan heim. Hún er því vön að
takast á við menningarlegan mun
af ýmsum toga. „Fjölbreytni gefur
starfinu tvímælalaust lit,“ segir
hún.
Íris er líka í stjórn félagsins
Konur í orkumálum.
„Þar get ég unnið á enn breiðari
grunni að auknum hlut kvenna í
orkugeiranum, en hann er og hefur
verið fremur karllægur,“ upplýsir
Íris. „Það hefur verið mjög vel tekið
á móti mér hvar sem ég hef unnið,
bæði erlendis og hér heima, en
ég hef margoft verið spurð að því
hvers vegna svo fáar konur starfi
við raforkumál. Ég get ekki svarað
því en hef einfaldlega ákveðið að
taka þátt í að snúa þessu við. Að
kveikja áhuga á orkumálum er
spennandi verkefni. Hjá Lands-
neti starfa ég í framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins. Þar erum við
tvær konur. Jafnframt er stjórn
Landsnets skipuð öflugu fólki af
báðum kynjum. Stjórnendur, sem
eru meðvitaðir um jafnrétti, eru
lykillinn að því að ná árangri í að
jafna stöðu kynjanna,“ segir hún
og brosir. „Landsnet er vinnu-
staður þar sem það viðhorf gildir
og við ræðum um jafnréttismál í
tengslum við stefnu, stjórnun og
dagleg störf.“
Með púlsinn á samfélaginu
Íris stjórnar kerfisstjórnunarsviði
hjá Landsneti og er meginhlut-
verk þess að stýra raforkukerfinu
á Íslandi.
„Það er mikið ábyrgðarhlut-
verk og má segja að við séum með
púlsinn á samfélaginu,“ segir Íris. „Í
stjórnstöð okkar fylgjumst við með
helstu þáttum íslensks samfélags.
Við sjáum þegar aflinn kemur í
land og fer í vinnslu, þegar gagna-
verin auka við sig, þegar verslun
og þjónusta eru í hámarki, hvernig
hegðun breytist á stórhátíðum sem
og áhrif rafbílavæðingar á kerfið,“
upplýsir Íris og bendir á að stjórn-
stöðin vinni þétt með rekstrar-
aðilum viðskiptavina sem tengjast
kerfinu til að lágmarka áhættu.
„Styrking flutningskerfisins og
þróun raforkumarkaðar mun hafa
mikil áhrif á hlutverk okkar sem
kerfisstjóra. Forsenda heilbrigðrar
samkeppni á markaði er sveigjan-
legt raforkukerfi þar sem flæði raf-
orku og úrval fjölbreyttrar þjónustu
er aðgengilegt,“ útskýrir Íris.
Gervigreind og spálíkön
Fjarskipti ásamt öflugum stjórn-
og hugbúnaði gera Landsneti kleift
að stýra raforkukerfi landsins þar
sem millisekúndur geta skipt máli.
„Hlutverk okkar er flókið enda
raforkunotkun og framleiðsla
síbreytileg og flutningskerfi
raforku með stærstu kerfum
landsins. Með kvikari hegðun
raforkunotenda og -framleiðenda
á samkeppnismarkaði þurfum við
að grípa til enn þróaðri lausna.
Við horfum til gervigreindar
og notkunar spálíkana í kerfis-
stjórnun og erum þegar byrjuð að
taka skref í þá átt,“ upplýsir Íris og
segir að á kerfisstjórninni starfi
öflugur hópur sem þekkir raforku-
kerfið í þaula.
Framkvæmdastjóri í núinu með
augun á rafmagnaðri framtíð
Íris Baldursdóttir segir orkugeirann kalla eftir konum í spennandi störf sem snúast um bætta
orkunýtingu, sjálfbærni og aðgengi að endurnýjanlegri orku. Hún segir stjórnendur meðvitaða
um jafnrétti, sem er lykillinn að því að ná árangri í að jafna stöðu kynjanna í orkugeiranum.
Íris Baldursdóttir er framkvæmdastjóri hjá Landsneti. MYND/ERNIR
„Við erum á fleygiferð inn í
framtíðina og búum að góðum
tengslum við erlend flutnings-
fyrirtæki raforku og háskóla sem
er mikill styrkur. Það er ómögu-
legt að sjá fyrir allar breytingar
næstu ára en þær verða ekki að
veruleika nema við séum með
öflugt og skapandi fólk sem vill
þróa nýjar lausnir og hefur trú á
krafti nýsköpunar.“
Landsnet er á Gylfaflöt 9, 112
Reykjavík. Sími 563 9300. Sjá nánar
á www.landsnet.is og á samfélags-
miðlum.
16 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-C
E
7
C
2
2
3
1
-C
D
4
0
2
2
3
1
-C
C
0
4
2
2
3
1
-C
A
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K