Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 51
Það er líka virki-
lega „inspírerandi“
að hafa aðgang að sér-
fræðingunum sem sjá um
auglýsingamál Apple á
heimsvísu.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Selma Rut hefur átt farsælan feril hjá Pipar\TBWA „Þótt ég hafi unnið hjá sömu kenni-
tölunni þá er varla hægt að segja
að ég hafi alltaf unnið á „sama“
vinnustaðnum. Auglýsingabrans-
inn er mjög breytilegur. Ég hef
farið í gegnum fjórar sameiningar
á þessum tíma ásamt mörgum
flutningum. Hef unnið með fullt af
góðu fólki svo fjölbreytnin hefur
verið mikil,“ svarar Selma Rut
þegar hún er spurð um starfið.
Vinna og áhugamál
Bakgrunnur Selmu er grafísk hönn-
un. Hún útskrifaðist með BA-gráðu
frá Listaháskóla Íslands árið 2002,
kasólétt af dóttur sinni, eins og
hún segir. „Að frátalinni einstaka
freelance vinnu og sumarvinnu
á annarri stofu þá hef ég verið á
Pipar alla mína starfsævi, enda er
sá stóri, góði hópur orðinn mér
mikilvægur. Pipar er fjölskyldu-
vænn vinnustaður og við pössum
hvert upp á annað og að öllum líði
vel. Það skiptir svo miklu máli að
allir taki þessi litlu hlutverk að sér
sem gera vinnustaðinn betri. Og
það getur verið ótrúlega dýrmætt
þar sem maður eyðir miklum tíma
dagsins í vinnunni,“ segir hún. „Ég
hef brennandi áhuga á öllu tengdu
Fjölga þarf konum í faginu
Selma Rut Þorsteinsdóttir starfar sem Chief Creative Director á auglýsingastofunni Pipar\TBWA.
Þar hefur hún starfað í sextán ár en snemma kom í ljós að hugurinn stefndi á skapandi greinar.
Selma Rut hefur átt farsælan feril hjá Pipar/TBWA. Hún segir að Pipar/TBWA sé jafnréttissinnaður vinnustaður og bæði kynin fái tækifæri til að vinna sig upp í fyrirtækinu. MYND/EYÞÓR
faginu og í raun eru það forréttindi
að geta unnið að áhugamálinu sínu
á hverjum degi.“
Pipar\TBWA er hluti af alþjóð-
legri keðju auglýsingastofa TBWA
sem kallar sig The Disruption
Company. „Við erum stolt af því
að vera hluti þeirrar keðju. Við
erum aðeins einum tölvupósti eða
símtali frá sérfræðingum um allan
heim sem eru kannski nýbúnir að
glíma við svipað verkefni og við
erum að vinna. Þeir gefa okkur
stuðning og inngjöf í verkið. Þetta
hefur hjálpað okkur gríðarlega,
sérstaklega undanfarin ár þar sem
nokkur verkefni hafa verið unnin
í góðu samstarfi við okkar erlendu
samstarfsaðila. Það er líka virkilega
„inspírerandi“ að hafa aðgang að
sérfræðingunum sem sjá um aug-
lýsingamál Apple á heimsvísu.
Jafnrétti í hávegum haft
Pipar\TBWA er jafnréttissinnaður
vinnustaður. Það skiptir miklu
máli að jafnvægi sé á milli kynja í
stjórnunarstöðum. Bæði kynin fá
tækifæri til að vinna sig upp á stof-
unni. Það skiptir sömuleiðis máli
að fjölbreytileikinn sé mikill hjá
starfsfólki í aldursdreifingu, þjóð-
erni og fleiru. Með því nær stofan
að endurspegla þá fjölbreytni sem
samfélagið hefur upp á að bjóða.
Þannig náum við auðvitað mestum
árangri í skilaboðum út á markað-
inn. Það hefur komið fyrir að við
höfum þurft að endurskipuleggja
teymi þegar við sjáum að það er of
einsleitt, ekki bara að það þurfi að
bæta konu í teymið heldur af því
að það vantar karlmann.
Við fengum jafnlaunavottun
VR árið 2016, fyrst allra fyrir-
tækja í skapandi greinum og erum
ákaflega stolt af því. Þetta er ekki
bara fínn stimpill heldur skiptir
þetta okkur raunverulega máli.
Við höfum alltaf leitast við að hafa
jafnrétti og jöfn kjör við lýði og
teljum að fyrirtæki séu einfaldlega
betur rekin þegar þessir hlutir eru
í jafnvægi. Kynjahlutfall er 50/50
í framkvæmdastjórn og í stjórn
fyrirtækisins sit ég ásamt Guð-
mundi Pálssyni framkvæmdastjóra
og Valgeiri Magnússyni stjórnar-
formanni.
Fleiri konur í dómarastörf
Ég tel að staða jafnréttis og kynja-
mála í auglýsingageiranum sé því
miður ekki nógu góð. Lengi hefur
verið talað um að það sé erfitt
að finna „réttu“ konurnar, þær
séu ekki til staðar eða ekki nógu
hæfar. Ég held að það séu mýtur,
gögn sýna að konur útskrifast í
sama og jafnvel meira mæli en
karlar en þær eru ekki að skila sér
inn á stofurnar og alls ekki í efri
lögin. Því svipar kannski aðeins til
ímyndarinnar sem sett var fram í
auglýsingu FKA á Jafnvægisvoginni
sl. haust, þar sem stjórnandinn
hreinlega sá ekki konurnar sem
stóðu allar tilbúnar með menntun-
ina og reynsluna,“ segir Selma Rut
sem fengið hefur ýmsar viður-
kenningar fyrir störf sín í gegnum
árin auk þess að vera dómari í
mörgum keppnum. Má þar nefna
FÍT keppnina, Effie verðlaunin
og ADCE (Art Directors Club of
Europe) og Lúðurinn, íslensku aug-
lýsingaverðlaunin sem er stærsta
auglýsingakeppni á Íslandi. „Það
er hins vegar sorglegt að sjá hversu
hlutfall kvenna í þeirri dómnefnd
er arfaslakt, því auglýsingar eiga
auðvitað að endurspegla íslenskt
samfélag, en spurningin er hvort
slík speglun eigi sér stað þegar
svo mikið ójafnvægi er á milli
kynjanna í dómnefndarstörfum,“
bætir Selma Rut við.
Fagið breytist hratt
Selma Rut segir að starf auglýsinga-
fólks sé alltaf að þróast og það
gerist hratt. „Við vinnum þó alltaf
með sömu grunngildin sem eru góð
hugmynd og útfærsla. Vissulega
er allt orðið mikið hraðara með
komu samfélagsmiðla og annarra
nýjunga en þarna eru líka ný tæki-
færi. Nú er hægt að tala beint við
áheyrendur og hefja samtal sem
opnar á mikla möguleika þann-
ig að ég myndi segja að framtíðin
væri spennandi,“ segir Selma Rut
sem er gift og móðir þriggja barna.
Eiginmaðurinn heitir Árni Davíð
Skúlason, forstöðumaður hjá Arion
banka, en börnin eru Tanja Kristín
16 ára, Mikael Aron, 12 ára, og
Hilmir Hrafn, 8 ára.
Fer á fjöll í frístundum
Þegar Selma Rut er spurð hvernig
vinna og fjölskyldulíf fari saman
hjá henni, svarar hún: „Börnin
mín eru miklir íþróttakrakkar
svo það fer orðið ágætis tími í að
horfa á þau keppa í frítímum sem
okkur foreldrunum finnst virkilega
skemmtilegt að gera. Ég er mikil
útivistarmanneskja, fer árlega í
þriggja daga stelpugönguferð á
hálendinu, svona „girlpower-ferð“.
Sömu stelpurnar leika körfubolta
með mér einu sinni viku í Austur-
bæjarskóla. Það höfum við gert
í um það bil 5 ár en engin okkar
hefur æft körfubolta, það er auka-
atriði. Ég er mikill jafnréttissinni og
hef áhuga á að auka hlut kvenna í
faginu. Ég er sannfærð um að fagið
verður miklu betra þegar fjölbreyti-
leika er náð,“ segir Selma Rut.
KYNNINGARBLAÐ 21 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
1
-B
F
A
C
2
2
3
1
-B
E
7
0
2
2
3
1
-B
D
3
4
2
2
3
1
-B
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K