Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 55

Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 55
Fjölbreytt fasteignamál Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, lögmaður á Fasteignamál Lögmannsstofu, sérhæfir sig í öllum lögfræðimálum tengdum fasteignum og sinnir einnig ýmiss konar ráðgjöf. Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir lögmaður sérhæfir sig í fasteignamálum og sinnir fjölbreyttum verkefnum sem tengjast þeim. MYND/ERNIR þeirra, ráðgjöf við fasteignafélög og leigufélög, meðal annars við fasteignakaup eða á sviði fjöleignar- húsamála, húsaleigumála og skipu- lags- og byggingarmála, ráðgjöf fyrir húsfélög og eigendur fjöleignar- húsa, íbúðar- eða atvinnuhúsnæðis, meðal annars vegna breytinga eða viðhaldsframkvæmda á húsum, ágreinings um eignarhald eða kostnaðaruppgjör, ráðgjöf fyrir eigendur eða verktaka vegna bygg- ingar, breytinga eða framkvæmda við fasteignir og ráðgjöf fyrir leigusala og leigjendur íbúðar- eða atvinnuhúsnæðis, svo sem gerð leigusamninga, framkvæmd eða lok leigusamnings. Guðfinna bendir á að flest ágreiningsmál sem upp koma við fasteignakaup snúast um galla. Ágreiningur vegna galla getur þó einnig komið upp við aðrar aðstæður svo sem við byggingu, breytingar eða viðhaldsfram- kvæmdir á húsum. Hefur hún tölu- vert aðstoðað kaupendur, seljendur og húsfélög í slíkum málum. „Þetta eru orðin ansi mörg gallamál á þessum árum sem ég hef komið að, einhver hundruð íbúða. Sem betur fer hefur verið hægt að leysa flest þessara mála án aðkomu dómstóla enda gallamál kostnaðarsöm og taka langan tíma. Þegar fólk kemur til mín aðstoða ég það við að meta stöðuna og ráðlegg hvað best er að gera enda mikilvægt að rétt sé brugðist við strax í upphafi.“ Hún segir að galli í daglegu tali og galli í lagalegum skilningi fari ekki endi- lega saman. „Ef um galla í lagalegum skilningi er að ræða getur kaupandi fasteignar átt rétt á skaðabótum eða afslætti af kaupverði eignarinnar. Við mat á því hvort um galla er að ræða skiptir máli hvort um nýja eða notaða fasteign er að ræða. Þannig getur kaupandi nýrrar fasteignar gert meiri kröfur en kaupandi gam- allar eignar. Nýjar fasteignir eiga einfaldlega að vera í lagi og byggðar í samræmi við lög og reglur. Ef upp koma gallar í nýrri eign getur kaup- andi oft átt kröfur á hendur fleiri aðilum en seljanda eignarinnar svo sem byggingarstjóra og hönnuði og tryggingafélögum þeirra ef rekja má tjónið til starfa þeirra. Þegar um notaða fasteign er að ræða telst hún ekki gölluð, nema ágallinn rýri verðmæti hennar svo nokkru varði, eða seljandi hefur sýnt af sér sak- næma háttsemi.“ Guðfinna hefur mikla reynslu af málaflokknum. „Þegar ég ákvað í ársbyrjun 2002 að opna lögmannsstofu ætlaði ég ekkert sérstaklega að sérhæfa mig í fasteignamálum en fólk leitaði strax í byrjun til mín með slík mál vegna reynslu minnar af málaflokknum en ég hafði áður starfað sem lög- fræðingur í félagsmálaráðuneytinu, hjá Íbúðalánasjóði og Húsnæðis- stofnun ríkisins,“ segir Guðfinna. „Þar hafði ég meðal annars séð um fjöleignarhúsa- og húsaleigu- málin og komið að reglugerðar- og frumvarpsvinnu og gerð álitsgerða á sviði húsnæðismála. Þá hafði ég kennt fjöleignarhúsalögin og húsa- leigulögin. Á þessum tíma hafði ég töluvert mikið unnið með Sigurði Helga Guðjónssyni, formanni Hús- eigendafélagsins, í tengslum við starf mitt í ráðuneytinu og þegar ég hætti þar og opnaði lögmannsstofu bað hann mig um að koma í stjórn Húseigendafélagsins. Ég var í stjórn þess frá 2002 til 2011 en sagði mig úr stjórninni þegar ég tók við sem formaður kærunefndar húsamála. Ég fór svo aftur í stjórn Húseigenda- félagsins síðastliðið vor.“ Auk starfa sinna sem lögmaður hefur Guð- finna tekið þátt í gerð lagafrum- varpa, reglugerða, úrskurða og álits- gerða, verið í stjórnum, nefndum og ráðum, kennt og haldið fyrirlestra um ýmis mál tengd fasteignum svo sem á námskeiði til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala, námskeiði í gerð eignaskiptayfir- lýsinga, löggildingarnámskeiði fyrir mannvirkjahönnuði og námskeiði fyrir matsmenn, hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Félagi fasteignasala, og mörgum fleiri fyrirtækjum og stofnunum. Guðfinna var borgarfulltrúi á árunum 2014-2018 en á þeim tíma sat hún meðal annars í borgarráði og umhverfis- og skipulagsráði. „Ég tók mér meira og minna frí frá lög- mennskunni meðan ég var í borgar- málunum en byrjaði á fullu aftur í lögmennskunni síðasta haust.“ Guðfinna er enn fremur í stjórn Landsvirkjunar, formaður próf- nefndar eignaskiptayfirlýsinga og formaður prófnefndar leigumiðl- unar. Vefsíða Fasteignamál Lögmanns- stofu er www.fasteignamal.is. Ég ætlaði ekki endilega að sérhæfa mig í fasteignamálum en fólk leitaði strax í byrjun til mín með slík mál vegna reynslu minnar af málaflokknum. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Guðfinna Jóh. Guðmunds-dóttir, lögmaður á Fast-eignamál Lögmannsstofu, sérhæfir sig í öllum lögfræðimálum tengdum fasteignum, svo sem gallamálum, fjöleignarhúsamálum, húsaleigumálum og skipulags- og byggingarmálum. „Verkefnin eru mjög fjölbreytt, þó þau snúist öll um fasteignir á einn eða annan hátt,“ segir Guðfinna. „Þar sem ég hef meira og minna starfað við fasteignalögfræði síðustu 23 árin og komið að ólíkum verkefnum tengdum fasteignum í gegnum tíðina nýtist reynsla mín vel við hin fjölbreyttustu verkefni hvort sem þau eru fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki eða stofnanir.“ Guðfinna nefnir dæmi um þau verkefni sem hún sinnir. „Það er til að mynda ráðgjöf við kaupendur og seljendur fasteigna vegna ágrein- ings við fasteignakaup, svo sem vegna galla í nýju eða notuðu hús- næði, greiðsludráttar, afhendingar- dráttar eða annarra vanefnda.“ Hún nefnir einnig ráðgjöf vegna galla í nýbyggingum, svo sem varðandi kröfur á hendur byggingarstjóra, hönnuði og tryggingarfélögum KYNNINGARBLAÐ 25 F I M MT U DAG U R 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 KONUR Í ATVINNULÍFINU 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 1 -B 0 D C 2 2 3 1 -A F A 0 2 2 3 1 -A E 6 4 2 2 3 1 -A D 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.