Fréttablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 56
boðið er upp á sólarhringsþjónustu
alla daga ársins.
Bókunarþjónusta
„Við tökum við bókunum og
hjálpum til við að halda utan
um tímaskráningar, afboðanir,
breytingar á tímum, að minna á
bókaða tíma og svo framvegis, hvort
sem er í síma eða tölvupósti,“ segir
Ingibjörg og tekur sem dæmi að
Ritari hafi verið að setja upp þjón-
ustuborð fyrir ferðaþjónustuna
þar sem fyrirtækið sér alfarið eða
að hluta um bókanir hvort sem um
ræðir gistingu eða ferðir. „Þannig
getur starfsfólk ferðaþjónustufyrir-
tækisins sinnt þeim ferðamönnum
sem eru á staðnum og þarf ekki að
hafa áhyggjur af að ná ekki að taka
á móti bókunum enda getur það að
missa af símtali eða tölvupósti þýtt
tapaðar tekjur.“
Úthringiþjónusta
Úthringiver Ritara getur aðstoðað
við hvers kyns úthringiverkefni.
„Við getum til dæmis hringt út
símakannanir, safnað upplýsingum,
bókað fundi og annast sölusímtöl,“
segir Ingibjörg en starfsfólk Ritara
getur séð um hvers kyns samskipti
sem snúa að því að selja vörur og
þjónustu, afla nýrra viðskiptavina
eða styrkja sambandið við þá sem
fyrir eru. „Við getum jafnframt séð
um að bóka sölumenn á fundi, fylgt
eftir markpóstum og aflað upp-
lýsinga meðal annars til að uppfæra
viðskiptavinaskrár.“
Ritaraþjónusta
Ritari býður fyrirtækjum ritara-
þjónustu þar sem ritarinn situr ekki
innan veggja fyrirtækisins og losar
þannig fyrirtæki undan þeirri yfir-
byggingu sem því fylgir. Fyrirtæki
geta því sparað sér umtalsvert fé
og fyrirhöfn með því að nýta slíka
þjónustu.
Vöktun á netspjalli
„Við bjóðum upp á netspjall þar
sem við setjum upp spjallbox á
vefsvæði fyrirtækja, vöktum það og
svörum einföldum fyrirspurnum
sem kunna að koma í gegn og vísum
sölutækifærum áfram á söludeild
eða stjórnendur fyrirtækisins,“ segir
Ingibjörg.
Samfélagsmiðlaþjónusta
Mikilvægt er að halda samfélags-
miðlum lifandi þegar þeir eru
notaðir sem markaðstæki og til að
viðhalda góðum tengslum við við-
skiptavini. „Við tökum að okkur að
vakta þessa miðla, aðstoða við að
setja inn efni og gefa góð ráð.“
Samfélagsmiðlaþjónusta Ritara er
tilvalin fyrir fyrirtæki sem vilja nýta
samfélagsmiðla til fulls í markaðs-
setningu og sýnileika á netinu.
Fyrirtæki geta nýtt sér þjónustuna
allt frá því að þiggja aðstoð við að
koma sér af stað á netinu upp í það
að nota þjónustuna sem alhliða
lausn þar sem Ritari hefur yfirum-
sjón með samfélagsmiðlum fyrir-
tækisins og vöktun þeirra.
Ingibjörg bendir á að fyrirtæki
í ferðaþjónustu sem nýti sér síður
eins og TripAdvisor og alþjóðlegar
bókunarsíður geti nýtt sér þessa
þjónustu. „Ritari vaktar þær fyrir-
spurnir og umsagnir sem berast og
sér til þess að þeim sé öllum svarað.
Þannig kemur fyrirtækið vel fyrir og
eykur þar með líkurnar á meiri sölu
í framhaldinu.“
Bókhaldsþjónusta
Ritari tekur að sér almenn bók-
haldsstörf, launavinnslu og VSK-
uppgjör fyrir rekstraraðila. „Við
erum í samstarfi við ýmsa fagaðila,
meðal annars í tengslum við bók-
halds- og skattaráðgjöf, endur-
skoðun og ársuppgjör.“
Ráðgjöf
„Við veitum ráðgjöf í flestu sem
tengist því að reka fyrirtæki í dag.
Ráðgjafar okkar hafa menntun
og reynslu á mörgum sviðum
þegar kemur að rekstri og vexti
fyrirtækja,“ upplýsir Ingibjörg en
meðal þess sem Ritari sérhæfir sig
í er þróun hugmynda í fyrirtækja-
rekstur, gerð viðskiptaáætlana,
hagræðingu í rekstri, að styrkja
mannleg samskipti, aðstoð við yfir-
tökur og samruna, og markaðs- og
söluráðgjöf.
Reynslumiklir starfsmenn
Ritari er á sínu tíunda starfsári og
því mikla reynslu að finna innan
fyrirtækisins í að sinna þörfum
fyrirtækja í öllum greinum atvinnu-
lífsins, allt frá einyrkjum til stærri
fyrirtækja sem eru staðsett úti um
allt land og jafnvel utan landstein-
anna. „Við leggjum áherslu á faglega
og persónulega þjónustu, sérsniðna
að þörfum hvers fyrirtækis fyrir
sig,“ áréttar Ingibjörg.
Við viljum vera leiðandi í lausnum í rekstri fyrirtækja og bjóða viðskiptavinum
okkar upp á afburðaþjónustu.
Þessi þjónusta fer að mestu leyti
fram í sýndarumhverfi en það
þýðir að rekstur fyrirtækisins sem
kaupir af okkur þjónustu fer fram
óháð stað og tíma starfseminnar,“
segir Ingibjörg Valdimarsdóttir,
framkvæmdastjóri Ritara.
Ritari sérhæfir sig í ritara-
þjónustu á borð við símsvörun,
úthringingar og bókhaldsþjónustu.
„Við getum leyst öll rekstrartengd
verkefni viðskiptavina okkar
beint af skrifstofunni okkar og
þurfum því ekki endilega að vera á
staðnum til að geta leyst verkefnin
á faglegan hátt.“ Ingibjörg segir
að með því móti sé hægt að auka
framleiðni fyrirtækja því Ritari
dragi úr kostnaði viðskiptavina.
„Við auðveldum þeim að sníða sér
stakk eftir vexti og kaupa sérfræði-
þjónustu í skrifstofurekstri eftir
þörfum.
Símsvörunarþjónusta
„Við svörum í símann fyrir fyrir-
tæki, sendum símtöl áfram, tökum
niður bókanir og sendum skilaboð.
Auk þess höldum við úti öflugu
úthringiveri,“ útskýrir Ingibjörg en
Við auðveldum
fyrirtækjum að
sníða sér stakk eftir vexti
og kaupa sérfræðiþjón-
ustu í skrifstofurekstri
eftir þörfum.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Hagræðing felst í að útvista
skrifstofurekstrinum
Fyrirtæki geta dregið úr kostnaði með því að nýta þjónustu fyrirtækisins Ritara. Starfsmenn Ritara
geta á faglegan hátt leyst öll rekstrartengd verkefni beint af skrifstofu fyrirtækisins á Akranesi.
Ingibjörg Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri Ritara, er til hægri á myndinni en með henni er Erla Ösp Lárusdóttir, þjónustustjóri fyrirtækisins.
Dæmi um þjónustu Ritara:
• Almenn símsvörun
• Bókunarþjónusta
• Úthringiþjónusta
• Ritaraþjónusta
• Vöktun á netspjalli
• Samfélagsmiðlaþjónusta
• Bókhaldsþjónusta
• Ráðgjöf
26 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFINU
3
1
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
1
-A
B
E
C
2
2
3
1
-A
A
B
0
2
2
3
1
-A
9
7
4
2
2
3
1
-A
8
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K