Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 86

Fréttablaðið - 31.01.2019, Síða 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir fer með aðalhlutverk í myndinni og segir hún þetta vera hennar stærsta hlut-verk til þessa. Elma Lísa er Íslendingum vel kunn leikkona, bæði af sviðum leikhúsanna og úr íslenskum kvikmyndum. Í kvik- myndinni Tryggð fer hún með hlut- verk Gísellu. Kvikmyndin var mikil áskorun og er Elma nánast í hverri einustu senu og tók stóran þátt í gerð myndarinnar frá upphafi. „Ásthildur leikstýra hringdi í mig fyrir um fjórum árum. Þá var hún nýbúin að fá réttinn á bókinni frá Auði Jónsdóttur. Svo hittumst við og Ásthildur býður mér hlutverkið, við fáum okkur rauðvínsglas saman og förum að spjalla um þessa sögu, þessa bók. Ég hafði lesið bókina og satt að segja hafði persónan Gísella í bókinni pirrað mig svolítið,“ segir Elma Lísa og bætir við að langt ferlið hafi bæði verið skemmtilegt og gef- andi. „Við mótuðum myndina svo- lítið saman.“ Góðverk snýst upp í andhverfu sína Það má segja að sagan snúist um samskipti og einhvers konar valdabaráttu. „Myndin fjallar um Gísellu, sem stendur á ákveðnum tímamótum. Hún missir vinnuna, er blönk og þarf í rauninni í fyrsta skipti að standa á eigin fótum. Hún er smá forréttindapía sem erfði risastórt hús eftir ömmu sína og hefur ekki mikið þurft að pæla í peningum,“ segir Elma Lísa. „Gís- ella fær vinnu við að skrifa um hús- næðismál útlendinga og þá kynnist hún þessum tveimur konum, skoðar húsnæðið þeirra og í framhaldinu býður hún þeim að koma og búa í húsinu sínu. Önnur þeirra á litla stelpu sem Gísella tengist sterkum böndum. Gísella býr ein í þessu risa- stóra húsi og er frekar einmana.“ Gísellu finnst hún vera að gera góðverk og allt gengur vel til að byrja með. Samkvæmt Elmu Lísu er Gísella frekar stjórnsöm týpa og svo lengi sem þær gera það sem hún vill, þá gengur sambúðin vel. „En svo fer að halla undan fæti, því þær eru auðvitað með ólík gildi og ólíkan smekk. Þá fara að koma ákveðnir brestir í þessa sambúð, Gísella fer að búa til fleiri og fleiri húsreglur.“ Elma Lísa bætir jafnframt við að Gísella verði einhvers konar fangi í eigin húsi og að hún hafi komið sér í það sjálf. Gísella sé hvorki sveigj- anleg né víðsýn og býst hún við því að konurnar tvær geri það sem hún segir. „Maður kynnist auðvitað aldr- ei neinum betur en þegar maður fer að búa með honum.“ Konurnar sem leika aðalhlutverk á móti Elmu Lísu í myndinni, þær Enid Mbabazi og Raffaella Brizuela Sigurðardóttir, höfðu aldrei leikið áður. Þrátt fyrir það segir Elma að tökur á myndinni hafi gengið mjög vel og leikhópurinn hafi æft vel fyrir hverja töku. „Við vorum rosa- lega dugleg að æfa. Þetta var aðeins öðruvísi að því leyti að við töluðum ensku og svo voru tvær leikkonur myndarinnar alveg óreyndar, en þær stóðu sig ótrúlega vel.“ Umræðan þörf Elma Lísa segir gerð myndarinnar hafa opnað augu sín fyrir fordóm- um gegn innflytjendum og finnst myndin koma á góðum tíma. „Þessi umræða er ótrúlega þörf og Auður er svolítið á undan sínum tíma með þessari bók.“ Hún vonar að myndin fái fólk til að hugsa og setja sig í spor annarra. „Hvernig myndi okkur líða í öðru landi og þurfa að gera það sem þær þurfa að gera? Búa í öðru landi, hjá einhverjum öðrum og á forsendum þeirra sem eiga húsnæðið.“ En svo má líka rífast um myndina og segir Elma að Ásthildur leikstýra búist við að fólk geri einmitt það. „En lítum okkur nær, skoðum okkur sjálf og stöldrum við. Hættum að dæma,“ segir Elma Lísa þegar hún er spurð að því hvaða boðskap hún vilji helst að fólk taki frá myndinni. „Það er einhvers konar grimmd í myndinni, líka væntumþykja, en þetta er oft tengt. Það er oft stutt í grimmdina hjá fólki.“ eddag@frettabladid.is Stutt í grimmdina Föstudaginn 1. febrúar verður kvikmyndin Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttur frumsýnd. Myndin er byggð á bók Auðar Jónsdóttur. Elma Lísa Gunnarsdóttir fer með hlutverk Gísellu í kvikmyndinni Tryggð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR MAÐUR KYNNIST AUÐVITAÐ ALDREI NEINUM BETUR EN ÞEGAR MAÐUR FER AÐ BÚA MEÐ HONUM. Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 145.000 m.vsk Midea KMB-E09 Max 3,4 kW 2,65 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,85) f. íbúð ca 40m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Virkar niður í -30°C Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Wifi búnaður fylgir með öllum varmadælum meðan birgðir endast Umhverfisvænn kælimiðill Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni rafhlöðu sem skilar ai til þess að slípa, er léttari en snúrurokkur í sinni stærð. Sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee ® M18™ rafhlöðum. Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FLAG Alvöru slípirokkur frá Milwaukee vfs.is Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Lengri útgáfu af viðtalinu við Elmu Lísu Gunnarsdóttur er að finna á Glamour.is. 3 1 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 1 -7 0 A C 2 2 3 1 -6 F 7 0 2 2 3 1 -6 E 3 4 2 2 3 1 -6 C F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.