Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 14

Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 14
14 Litli-Bergþór Eftir það liggur leiðin um hlað í Borgarholtskoti og komin rósbjört vornótt. Ragnar gengur að glugga, leggur að glerinu fulla viskíflösku og kallar: „Hér er kominn Hitler á flótta með allt sitt föruneyti.“ Páll rís upp í rúmi sínu, sér flöskuna – þá enn sjáandi – og kallar í mót: „Veri hann velkominn í mín hús hvort heldur er á björtum degi eða dimmri nóttu.“ Þá var vísað til þess að Páll hafði löngum talað svo að hann styddi Þjóðverja í stríðinu og líka hitt, að sumarið áður höfðu Bretar gert húsleit hjá Gunnari skáldi á Skriðuklaustri til að leita að áðurnefndum stríðsleiðtoga. Ekki er að orðlengja það að flaskan er tæmd og margt sungið í vornóttinni á Kotshlaðinu. Þegar Kristinn í Borgarholti gengur heim af þeim fundi verður til þessi vísa og samstundis fleyg í sveitinni: Nú er ekki nóttin löng, nú er vert að muna, er loftið fylltist sálmasöng við sólarupprisuna. Eftirlætislag Páls var sálmurinn, Ó, syng þínum Drottni. Einseta Páls í Kotinu varð á endanum sveitinni til vansa að dómi bestu manna. Árið 1955 var honum útvegað rúm á nýstofnuðu elliheimili í Ási í Hveragerði. En Páll harðneitaði þangað að fara. Sagðist mundu drepa sig ef hann yrði fluttur nauðugur, ganga aftur og bíta í hælana á hverjum þeim er að þeirri aðgerð kæmi. Samt gekk hreppstjórinn, Erlendur á Vatnsleysu, í það vonda verk á útmánuðum 1956. Nágrannar Páls vildu hvergi þar nærri koma. Ég man að við systkinin vorum uppi á Hól og horfðum á bílaflotann sem safnaðist við Kotið, sáum það greinilega, enda lítið meira en tveir kílómetrar í loftlínu. Þegar til kom fór Páll með hreppstjóranum mótþróalaust, bað bara um að fá að fara inn aftur og sækja stafinn sinn. Páll undi sér betur á elliheimilinu en menn höfðu þorað að vona, sagði að allir væru þar góðir við sig. Hann lifði þar rúmt ár og andaðist í maí 1957. Síðustu orð hans voru: „Það eru engir draugar til“ Raflagnir - Viðgerðir Jens Pétur Jóhannsson LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Tökum að okkur nýlagnir, hönnun raflagna og alla almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. Efnissala og varahlutaþjónusta. Fljót og góð vinna. Sumarbústaðaeigendur athugið að við sækjum um öll leyfi fyrir heim- taug að sumarhúsum og lagningu raflagna Heimasími: 486 8845 Verkstæði: 486 8984 GSM: 893 7101

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.