Litli Bergþór - 01.07.2016, Page 16
16 Litli-Bergþór
Þann 17. febrúar voru
haldnir merkilegir tónleikar
í Skálholtskirkju, þar sem
fram komu Skálholtskórinn,
Kammerkór Suðurlands og
Duo Harpverk. Flutt voru
verk eftir þrjú sunnlensk
tónskáld, þau Unni Malín
Sigurðardóttur (f. 1984),
Georg Kára Hilmarsson
(f. 1982)og Hreiðar Inga
Þorsteinsson (f. 1978).
Tónskáldin þrjú tengjast
Biskupstungum, hvert með
sínum hætti.
Unnur Malín bjó um tíma
í Laugarási, en býr nú á
Reykjavöllum. Hreiðar
Ingi ólst upp í Launrétt í
Laugarási, hjá Rut og Gylfa, en hann er sonur Rutar. Georg Kári eyddi barnæskunni í Skálholti,
sonur Hilmars Arnar og Hófíar.
Á tónleikunum voru frumflutt sex ný verk eftir þessi tónskáld, en einnig voru flutt eldri verk þeirra.
Var til þess tekið hve efnisskráin var fjölbreytt og skemmtileg.
Það var organistinn í Skálholti, Jón Bjarnason, sem stjórnaði Skálholtskórnum á tónleikunum. Kórinn
var stofnaður við vígslu nýrrar Skálholtskirkju 1963. Hilmar Örn Agnarsson, fyrrverandi organisti
í Skálholti, stjórnaði Kammerkór Suðurlands, en hann hefur verið stjórnandi kórsins frá upphafi.
Kammerkórinn var stofnaður 1997 og er skipaður tónlistarfólki og áhugamönnum víðs vegar að af
Suðurlandi.
Hljómaskál
Stórtónleikar í Skálholtskirkju
Duo Harpverk var stofnað
árið 2007. Það skipa
hörpuleikarinn Katie Buckley
og slagverksleikarinn Frank
Aarnink, sem bæði starfa í
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þau
hafa víða ferðast til tónleikahalds
og getið sér afar gott orð.
Tónleikarnir voru haldnir
að frumkvæði Unnar
Malínar og voru styrktir af
Uppbyggingarsjóði Suðurlands
sem heyrir undir SASS, Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga.
Georg Kári, Unnur Malín og Hreiðar Ingi.