Litli Bergþór - 01.07.2016, Blaðsíða 43
Litli-Bergþór 43
skulu ekki verðlagðar í ársreikningi. Umsjónarmaður safnsins er Hildur Eyþórsdóttir. Samræma þarf
skráninguna skráningarkerfi Landsbókasafns í Þjóðarbókhlöðu og koma verðmætasta hluta safnsins í
örugga geymslu.
Skálholtsstaður. Til þess að umsjón með fasteignum og umhirða í kringum kirkju og staðarhús
sé viðunandi, þarf nægilega margt starfsfólk. Ekki er nóg að einungis sumarstarfsmenn sinni þeim
störfum.
Reisa þarf þjónustuhús til að sinna vaxandi fjölda ferðamanna. Til þess að hægt sé að sækja um styrki
til uppbyggingar, þarf að ganga frá nýju deiliskipulagi.
Fasteignasvið hefur, fyrir hönd kirkjumálasjóðs þjóðkirkjunnar, eftirtalin verkefni á Skálholtsstað
á sinni könnu: Viðgerðir og endurbætur á húsnæði Skálholtsskóla (lokið að mestu), endurnýjun
dælubúnaðar og aðstöðu við Þorlákshver, endurnýjun vatnslagna um staðinn og endurbætur á húsnæði
Skálholtsbúða og þriggja húsa sem þeim tengjast.
Skálholtsjörðin. Stjórn geri tillögur um nýtingu Skálholtsjarðarinnar í tengslum við gerð nýs
deiliskipulags fyrir Skálholt, í samvinnu við leigutaka jarðarinnar og leggi fyrir kirkjuráð. Núverandi
fjós í Skálholti mun innan fárra ára ekki standast kröfur um slíkar byggingar. Kirkjuráð mun ekki
standa að byggingu nýs fjóss vegna skuldbindinga gagnvart Kirkjumálasjóði, sem er eigandi fasteigna
í Skálholti. Stjórnin hefur rætt ýmis möguleg úrræði til að viðhalda búskap í Skálholti, sem fylgt
verður eftir í samvinnu við Skálholtsbændur.
Plantað hefur verið skógi í tæplega 40 ha lands í tíð fyrrverandi Skálholtsbænda, frá 1998 í samvinnu
við Suðurlandsskóga, en gert var í upphafi ráð fyrir útplöntun í rúmlega 200 ha. Nú hefur orðið
sú breyting á að útplöntun þarf að vera í samráði við Minjastofnun, eftir að skráning fornminja í landi