Litli Bergþór - 01.07.2016, Blaðsíða 45
Litli-Bergþór 45
Veðurpistill: Veður í vetur var frekar meinlaust frá
byrjun desember 2015 til vors. Sveiflaðist hitinn upp-
og niðurfyrir núllið flesta daga með stöku stuttum
frostaköflum. Oft var fallegt veður. Úrkoma var ekki
mikil hér í uppsveitum og snjór ekki til trafala nema
helst fyrripartinn í mars og þá aðallega við ströndina.
Hafa sjaldan verið meiri snjóruðningar á Selfossi en í
vetur. Uppúr miðjum mars hafði mest allan snjó tekið
upp og voru apríl og maí mildir og góðir, en nokkuð
þurrir. Hiti fór þó flesta daga niður fyrir frostmark á
nóttunni þar til síðustu viku í maí. Eftir það fraus ekki
og hefur verið ágætis gróðrarveður það sem af er júní.
Jólatónleikar voru haldnir í Skálholtskirkju
11. desember. Voru þetta sjöundu jólin í röð sem
kirkjukórar í uppsveitum Árnessýslu héldu sam-
eiginlega tónleika. Kórarnir eru Skálholtskórinn,
Söngkór Miðdalskirkju og Kirkjukór Ólafsvalla- og
Stóra-Núpskirkju. Stórnendur voru Jón Bjarnason og
Þorbjörg Jóhannsdóttir. Einsöngvarar voru Egill Árni
Pálsson og Þóra Gylfadóttir. Þá voru trompetleikarinn
Jóhann Stefánsson og óbóleikarinn Matthias Nardeau
fengnir til að taka þátt í tónleikunum.
Þann 12. desember var samvera í Skálholtskirkju
þar sem 1. - 4. bekkingar úr Bláskógaskóla sungu
nokkur jólalög undir stjórn Karls Hallgrímssonar.
Jón Bjarnason og Bergþóra Ragnarsdóttir sáu um
stundina. Aðventukvöld var 13. des. með ljósastund,
söng og ræðu Jóhönnu Magnúsdóttur
prests á Sólheimum.
Í Hrosshaga var um miðjan
desember komið fyrir plast-
kúlu sem þjónar þeim tilgangi
að hýsa ferðamenn sem vilja njóta
norðurljósanna og stjarnanna. Stendur
hún á trépalli og er blásið í hana heitu
lofti. Kúlan er glær svo að fólk sér vel til
himins sem og allra átta annarra, hún
er 3 m í þvermál með góðu rúmi og
öllu sem þarf til að vel fari um fólk.
Fyrstu gestirnir komu í kúluna 9.
janúar og er aðsókn mikil.
Æskulýðsráð Bláskógabyggðar
hélt hóf þann 9. janúar þar sem
þeir íþróttamenn sem sköruðu fram-
úr árið 2015 voru heiðraðir, auk
Hvað segirðu til?
Fréttir úr Tungunum frá des. 2015 til júní 2016
Hvernig væri nú að
bjóða manni í kúluna.
Þessir fengu viðurkenningu Æskulýðsráðs fyrir góðan árangur á
árinu, talið frá vinstri: Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson, Ólafur
Magni Jónsson, Sigurður Sævar Ásberg Sigurjónsson
og Sveinbjörn Jóhannesson.
þess sem íþróttamaður ársins í Bláskógabyggð var
útnefndur. Það var Sveinbjörn Jóhannesson frá
Heiðarbæ í Þingvallasveit sem hlaut titilinn en hann
stundar körfubolta. Hin sem tilnefnd voru til titilsins
voru þau Bjarni Bjarnason frá hestamannafélaginu
Trausta, Brynhildur Hrönn Sigurjónsdóttir frá Umf.
Biskupstungna, Finnur Jóhannesson frá hesta-
mannafélaginu Loga og Sigurbjörn Árni Arngrímsson
frá Umf. Laugdæla. Fjögur ungmenni fengu viður-
kenningu fyrir góðan árangur á árinu, þau Agnes
Erlingsdóttir og Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Umf. Laugdæla og Sigðurður Sævar Ásberg Sig-
urjónsson og Ólafur Magni Jónsson frá Umf.
Biskupstungna. Sérstaka viðurkenningu fékk Ólafur
Aron Einarsson fyrir að vinna tvenn bronsverðlaun á
Special Olympics í Los Angeles síðastliðið sumar.
Þorrablót Tungnamanna var haldið í Aratungu 22.
janúar og var í umsjá Bræðratungusóknar að þessu
sinni. Meðal skemmtiatriða var söngur Drengjakórs
lýðveldisins úr Hafnarfirði en í honum er eitthvað um
burtflutta Tungnamenn. Hljómsveitin Vírus spilaði
fyrir dansi.
Þann 28. janúar hlaut Sigríður Vilhjálmsdóttir,
fjármálastjóri og eigandi Hótel Geysis og ferða-
þjónustunnar þar, þakkarviðurkenningu Félags
kvenna í atvinnulífinu (FKA). Sigríður segir ótrúlegt