Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.09.2018, Page 22
Franska tískuhúsið Hermès sýndi þessa í
vorlínunni fyrir árið 2019.
Úr línunni Collection 1 sem Alexander
Wang sýndi í sumar.
Pen en þó með mikinn karakt-
er fyrir helstu nauðsynjar.
Zara
3.495 kr.
Handfrjáls
búnaður
Beltistöskur eru ótrúlega þægilegar og fjöl-
hæfar fyrir bæði stráka og stelpur. Minni
gerðin fer vel um mittið á meðan þær sem eru
mýkri í lögun passa betur yfir öxlina.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Létt og stílhrein.
Lindex
2.999 kr.
Það er alltaf gott þegar eitt-hvað þægilegt kemst í tískuen segja má að beltistöskut-
ískan fylgi í kjölfar sigurgöngu
strigaskónna enda passar ekki vel
að vera með kassalaga handtösku
við sportlega skó. Beltistöskur eru
heppilegar til dæmis þegar maður
klæðist fötum sem eru ekki með
vasa. Þær eru líka sérstaklega góð-
ar því þær tolla vel á líkamanum,
það er þægilegt að bera þær og
hendurnar fá að vera alveg frjálsar
þannig að þær eru jafn góðar á
dansgólfinu og í göngutúrnum.
Lyst.com sendir frá sér Lyst-
listann ársfjórðungslega en nið-
urstöðurnar eru byggðar á hegðun
fimm milljóna manna sem leita,
skoða og versla á netinu hjá um
12.000 hönnuðum og búðum. Einu
töskurnar sem komust á topp tíu
hvað vörur varðar hjá bæði konum
og körlum eru einmitt beltistöskur.
Hjá konunum er Prada-beltis-
taskan sem er hér til vinstri í 4.
sæti en hjá körlunum er það ein
slík frá Gucci. Það eru reyndar
vörur frá Gucci sem eru efst á báð-
um listum, belti hjá konum og
sandalar hjá körlum en Gucci er
einmitt umtalaðasta vörumerkið á
öðrum ársfjórðugi samkvæmt
Lyst.
Vatnsheld mittistaska
með vísun í sjóklæða-
arfleifð framleiðandans.
66°Norður
5.500 kr.
Þessi nælontaska með
leðurskrauti frá Prada var
mjög vinsæl seint á tíunda
áratugnum og svo aftur nú.
Net-a-Porter.com
52.000 kr.
Beltistöskustíllinn hefur þróast
mjög frá því að Jerry Seinfeld
sagði við George Costanza að
það liti út fyrir að beltið hans
væri að melta lítið dýr.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.9. 2018
HÖNNUN OG TÍSKA
Chanel kynnir nýjung í förð-
unarvörum sínum, sérstaka línu
fyrir karlmenn. Línan ber nafnið
Boy de Chanel og kemur á mark-
að í dag laugardag í Suður-
Kóreu.
Chanel telur að vörurnar eigi
eftir að höfða til manna sem noti
snyrtivörur sem hluta af daglegri
rútínu, sem er mun algengara í
Asíu en annars staðar og þá ekki
síst í Suður-Kóreu.
Andlit Boy de Chanel er kór-
eski leikarinn og fyrirsætan Lee
Dong Wook.
Karlmenn annars staðar í
heiminum þurfa að bíða aðeins
lengur eftir förðunarvörunum en
þær verða fáanlegar í Chanel-
búðum frá janúar 2019.
Andlit Boy de Chanel er kóreski leik-
arinn og fyrirsætan Lee Dong Wook.
Í línunni er m.a. að finna varasalva,
fljótandi farða og augnabrúnablýant.
Förðunarlína fyrir
stráka frá Chanel
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
MYRKVA GLUGGATJÖLD
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is