Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 1

Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  271. tölublað  106. árgangur  BERST FYRIR MÁLINU MEÐ JÁKVÆÐNI BEINAGRINDUR FORTÍÐAR DRAMATÍSK EN HUGLJÚF SAGA 12VERÐLAUN JÓNASAR 42  Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir verktaka og ríkið hafa brugð- ist í húsnæðismálum. Verktakar hafi verið tregir til að byggja smærri íbúðir og ríkið dregið að samþykkja stofnframlög til félagslegra íbúða. „Við urðum vör við ákveðna íhaldssemi og að aðilar á bygging- armarkaði höfðu kannski ekki alveg trú á því að einstaklingar væru til- búnir að kaupa íbúðir í uppbyggingu með færri bílastæðum í kjallara, eða minni íbúðir, fyrr en það reyndist síðan raunin,“ segir Dagur. Hafin verður bygging 1.400-1.500 íbúða í borginni í ár. Óli Örn Eiríks- son, deildarstjóri atvinnuþróunar hjá borginni, áætlar að um 70% þeirra, eða um 1.000, verði tilbúin innan tveggja ára. Dagur kynnti að framkvæmdir væru hafnar á reitum þar sem má byggja 5.000 íbúðir. Óli Örn áætlar að þar af eigi eftir að hefja byggingu um 1.500 íbúða. baldur@mbl.is 18 Verktakar vildu ekki litlu íbúðirnar Fjöldi íbúða sem byrjað er að byggja í Reykjavík 2017 2018 2019 2020 2021 923 646 1.344 941 1.400 980 1.300 910 1.250 875 Heimild: Reykja- víkurborg 30% fullgerðar eftir meira en tvö ár frá því bygging hefst og 70% innan tveggja ára eftir meira en tvö ár frá því Guðni Einarsson Anna Sigríður Einarsdóttir „Þegar við komum á staðinn var efri hæð húss- ins alelda. Það var ekki miklu að bjarga. Við fór- um í að sækja mikið vatn og verja næstu hús. Okkur hefur sóst þetta ágætlega,“ sagði Sig- urður Lárus Fossberg, varðstjóri í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og stjórnandi aðgerða á vettvangi stórbruna í SB glugga- og hurða- smiðjunni á Hvaleyrarbraut 39 í Hafnarfirði í gærkvöld. Hann sagði að mikill eldsmatur hefði verið í húsinu. „Það voru gríðarlegar sprengingar þegar við komum og við fórum ekkert nálægt þessu. Héld- um mannskapnum frá og fórum í varnarvinnu,“ sagði Sigurður. Slökkviliðinu tókst að verja nær- liggjandi hús. Hann sagði að þeir vonuðust til að missa ekki eldinn niður á neðri hæð hússins, þótt það væri erfitt. Aðstæður voru mjög erfiðar til slökkvistarfa í gærkvöld, mjög hvasst, mikill hiti, gríðarlegur reykur og neistaflug frá eldinum. Húsið stendur við tvær götur og þurfti að vinna slökkvistarfið frá annarri hliðinni vegna aðstæðna. „Við erum með allt okkar lið hérna, hringdum út alla menn á frívakt og erum með allar stöðvar hérna,“ sagði Sigurður. Tilkynning um eldsvoðann barst Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins klukkan 22.12. Að sögn ljósmyndara Morgunblaðsins sem var á vett- vangi var mikill eldur í húsinu. Þakið féll og stóðu eldslogar upp úr húsinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi út til- kynningu klukkan 22.41 um að mikið lið lögreglu og slökkviliðs væri að eiga við stórbruna í Hafn- arfirði. „Við biðjum fólk að koma alls ekki á vett- vang, enda flækir það björgunarstarf gríðarlega og getur sett fólk í hættu,“ sagði í tilkynning- unni. Lögreglan lokaði stóru svæði í kringum brunastaðinn. Slökkvistarf stóð enn yfir þegar blaðið fór í prentun og reiknuðu slökkviliðsmenn með að það stæði langt fram eftir nóttu. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að verksmiðjan, sem þá var að Dalshrauni 17 í Hafnarfirði, hafi brunnið til kaldra kola árið 1996. Ári seinna var opnað í nýju húsnæði sem varð eldi að bráð í gærkvöld. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Erfiðar aðstæður á brunastaðnum Mikið hvassviðri, hiti, neistaflug og reykur gerðu slökkviliðsmönnum erfitt fyrir við slökkvistarfið í gærkvöld. Börðust við mikinn eld  Gríðarlegar sprengingar voru í alelda trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði  Slökkvilið varði nærliggjandi hús  Erfiðar aðstæður, hvasst og mikill reykur Eldsvoði Mjög mikill eldur var á efri hæð hússins þegar slökkviliðið kom á vettvang. Um tvöfalt fleiri sóttu um alþjóðlega vernd hér í síðasta mánuði en í jan- úar. Umsækjendur frá Albaníu voru fjórfalt fleiri í október en í janúar og talsverð fjölgun hefur verið í hópi umsækjenda frá Úkraínu. Flestir umsækjendur hafa komið frá Írak það sem af er ári, en þeir eru 100. Næstflestir frá Albaníu eða 98. Frá Pakistan koma 38, 36 frá Sómal- íu og 34 frá Sýrlandi. Í tölum Útlendingastofnunar kemur fram að það sem af er ári hafi 632 einstaklingar sótt um vernd hér á landi, sem eru 35% færri en á sama tíma í fyrra. Af þessum 632 eru karl- kyns umsækjendur 74%. Karlar eru 381 og drengir eru 84, þar af níu fylgdarlausir. 104 konur sækja um alþjóðlega vernd hér og 63 stúlkur, þar af tvær fylgdarlausar. Samtals eru fylgdarlaus börn 11 talsins. »10 Fleiri sóttu um vernd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.