Morgunblaðið - 17.11.2018, Side 2

Morgunblaðið - 17.11.2018, Side 2
Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra ákvað í gær að ut- anríkisráðuneytið myndi verja 100 milljónum króna til neyð- araðstoðar í Jem- en. Samkvæmt tilkynningu utan- ríkisráðuneyt- isins skiptist framlagið að þessu sinni jafnt milli tveggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem eru í land- inu og sinna neyðaraðstoð, annars vegar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og hins vegar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). „Neyðin er slík að hver mínúta skiptir máli. Við bregðumst við með auknum stuðningi við stofnanir á vettvangi, annars vegar til að sporna gegn yfirvofandi hungursneyð og hins vegar að stuðla að úrbótum í vatnsmálum til að verjast útbreiðslu smitsjúkdóma,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í frétt ráðuneytisins. Mikið neyðar- ástand ríkir í Jemen og það hefur farið hríðversnandi á síðustu miss- erum. 100 milljónir til neyðarað- stoðar í Jemen Guðlaugur Þór Þórðarson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Lögreglan vill að þeir ökumenn sem stöðvaðir eru og mælast með áfengismagn í blóði yfir 0,2 prómill verði sjálfkrafa sviptir ökurétti. Þetta kemur fram í athugasemd- um umferðardeildar LRH við frumvarp til nýrra umferðarlaga. Samkvæmt nýju lögunum verða mörk sviptingar færð frá 0,5 pró- millum í blóði niður í 0,2 prómill. Hinsvegar segir í frumvarpinu að ökumaður verði ekki sviptur öku- rétti fyrir fyrsta brot. Einungis sé sektað fyrir fyrsta brot. Segir í um- sögninni að það sé reynsla lög- reglu að allt að helmingur þeirra ökumanna sem hún hefur af- skipti af vegna ölvunaraksturs mælist með áfengismagn í blóði undir 0,5 prómillum. Verklag lögreglu nú er að ef ökumaður mælist með á bilinu 0,29 til 0,45 prómill í blóðinu sé honum gert að hætta akstri en ekki sé aðhafst frekar af hálfu lög- reglu. Þetta séu starfsfyrirmæli ríkislögreglustjóra, áður dóms- málaráðuneytis. Þeir sem mælast undir 0,29 fá að halda áfram för. Telur lögregla að umrædd breyting muni fela í sér fjölgun brota sem þarf að sinna. Flækju- stig verði hærra þar eð kanna þurfi feril ökumanna hverju sinni, ef reglan um sviptingu nái ekki til fyrsta brots. Eins þurfi að skýra hvað átt sé við með fyrsta broti. „Fælingarmáttur breytingarinn- ar er minnkaður verulega ef ekki á að svipta ökumann sem mælist undir 0,5,“ segir í umsögn lög- reglu. Þeir sem mælast verði sjálfkrafa sviptir ökurétti  Lögregla andsnúin því að sektað verði fyrir ölvunarakstur Löggæsla Umferð- arlög breytast. „Þetta er útgáfukynning vegna fyrstu ljósmyndaljóðabókar sem gefin er út á Íslandi,“ sagði Ómar Ragnarsson, fréttamaður og höf- undur bókarinnar Hjarta landsins ásamt Friðþjófi Helgasyni ljós- myndara. Útgáfa bókarinnar var kynnt í Veröld – húsi Vigdísar, í gærkvöld. Friðþjófur er myndritstjóri og tók 70 af 77 myndum í bókinni. Í henni eru 75 ljóð og orti Ómar þau öll nema fjögur, sem eru eftir stór- skáldin Shakespeare, Halldór Lax- ness, Snorra Hjartarson og Jón Trausta. Ómar samdi lög við öll ljóðin og voru flutt ljóð og lög á ljósmyndabókartónleikasýning- unni, eins og Ómar kallaði viðburð- inn. „Hjarta landsins er til að vekja athygli á stóra þjóðgarðinum sem þyrfti að rísa á miðhálendinu,“ sagði Ómar. gudni@mbl.is Ómar Ragnarsson og Friðþjófur Helgason gefa út Hjarta landsins Fyrsta ljósmynda- ljóðabókin Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útgáfukynning Ómar Ragnarsson kynnti nýju ljósmyndaljóðabókina og einnig voru ljóð úr bókinni flutt við tónlist. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Litlu munaði að farþegaþyrla með sex manns um borð og kennsluflug- vél með tvo um borð rækjust saman yfir Reykjavíkurflugvelli klukkan 14.26 þann 15. nóvember 2014. Þetta kemur fram í lokaskýrslu Rannsókn- arnefndar samgönguslysa um alvar- legt flugumferðaratvik á Reykjavík- urflugvelli. Fimm kennsluflugvélar voru að æfa snertilendingar á Reykjavíkur- flugvelli þennan dag. Um leið fór einnig fram annars konar atvinnu- flug á flugvellinum, bæði flugvélar í áætlunarflugi innanlands og þyrlur í farþegaflugi. Talsverð umferð var því um flugvöllinn. Veðrið var gott. Flugmaður þyrlunnar OY-HIT var að undirbúa brottför í farþega- flug á Hengilssvæðið. Þyrlan var við flugskýli 3 og í hvarfi frá flugturn- inum. Að sögn flugmannsins var fjarskiptasamband slitrótt þegar hann lagði inn flugáætlun við flug- skýlið. Skömmu eftir að flugturn gaf kennsluflugvélinni TF-FGB heimild til snertilendingar á braut 13 til- kynnti þyrluflugmaðurinn að hann væri tilbúinn til brottfarar. Fjar- skiptasendingin var þá mjög slitrótt. Flugumferðarstjóri gaf þyrlunni leyfi til flugtaks á flugbraut 19 og bað flugmanninn að fylgjast með flugvél í umferðarhring og ítrekaði þau fyrirmæli. Þyrlan hóf hins vegar flugtak á flugbraut 01 og flugturn kallaði þyrluna upp vegna þess. Flugkennarinn á kennsluflugvélinni heyrði þessi samskipti og leit snöggt til hægri og sá „að þyrla kom eftir flugbraut 01, litlu lægra en TF-FGB og í hægu klifri. Til að forðast árekstur sveigði flugkennarinn TF- FGB þá til hægri við brautarmót 13- 24,“ segir í skýrslunni. Þyrluflug- maðurinn sá kennsluflugvélina koma á móti sér á braut 13 og beygði strax og mjög ákveðið til vinstri og lækk- aði einnig flugið. „Voru ferlar OY- HIT og TF-FGB mjög nálægt því að skerast.“ Flugrekandi þyrlunnar breytti eftir þetta staðsetningu fyrir flug í samvinnu við Isavia. Þyrlurnar fara nú frá stað sem er í beinni sjónlínu við flugturn. Einnig var gripið til að- gerða sem bættu fjarskiptin við flug- turninn og gefin út tilmæli. Sambærilegt atvik varð 24. febr- úar 2016 á milli sömu þyrlu og ann- arrar kennsluflugvélar. Ekki var um sama þyrluflugmann að ræða í báð- um tilvikunum. Rákust nærri saman á flugi Morgunblaðið/RAX Reykjavíkurflugvöllur Ferlar þyrlu og kennsluvélar skárust næstum því.  Farþegaþyrla og kennsluflugvél rákust næstum saman yfir Reykjavíkurflug- velli  Þyrluflugmaðurinn fór ekki eftir fyrirmælum flugturns  Úrbætur gerðar Norræna húsið Sæmundargötu 11 Aðgangur ókeypis Sýnd til 30. apríl 2019 Ferðalag um furðuheim barnabókmenntanna Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka Barnabókaflóðið Meirihluti fjár- laganefndar leggur til að veitt verði allt að eins milljarðs króna endurlán til Vaðlaheið- arganga ehf. Valgeir Berg- mann, fram- kvæmdastjóri, sagði að ekki væri um nýtt lán að ræða. Þetta væri viðbótarlán sem ekki hefði verið notað á þessu ári vegna þess að verkið hefði tafðist og þess vegna færðist það yfir á næsta fjárlagaár. Um næstu mánaðamót verður til- kynnt hvenær Vaðlaheiðargöng verða opnuð. Malbikunarvinnu og klæðningu er lokið en ýmis frá- gangur eftir. Nú er unnið í raf- magni í göngunum, uppsetningu ljósa og tengingu rafbúnaðar. Þá er verið að ganga frá vegöxlum, setja upp skilti og vegrið, leggja ljósleið- ara og fleira. Þegar búið verður að tengja öll kerfi þarf að prófa þau. Ýmis útivinna er eftir eins og að jafna fláa. gudni@mbl.is Skýrist með opnun um mánaðamótin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.