Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Framkvæmdastjóri Samtaka fyr-irtækja í sjávarútvegi, Heið- rún Lind Marteinsdóttir, gerði í grein hér í blaðinu á fimmtudag al- varlegar og vel rökstuddar at- hugasemdir við frumvarp um veiði- gjöld.    Hún sagði að íkynningu á frumvarpinu hefði því verið haldið fram að hvorki væri verið að hækka né lækka veiði- gjöldin með frumvarpinu, en að sú staðhæfing væri röng. Rakti hún tvær ástæður fyrir því, sem ekki verður farið út í hér, en niður- staðan væri sú að veiðigjöldin myndu hækka yrði frumvarpið að lögum.    Íslenskur sjávarútvegur hefurlengi verið grunnstoð efnahags og velmegunar hér á landi. Með kvótakerfinu og frjálsu framsali aflaheimilda hefur tekist að byggja hér upp sterkan sjávarútveg sem aðrar þjóðir líta öfundaraugum.    Nauðsynlegt er að hafa í hugaþegar rætt er um veiðigjöld að aðrar þjóðir leggja ekki slíkar byrðar á þessa atvinnugrein. Þvert á móti tíðkast það víða að ríkið nið- urgreiði sjávarútveg.    Þetta er það umhverfi sem ís-lenskur sjávarútvegur vinnur í og þetta er samkeppnin; ríkis- styrktur sjávarútvegur.    Íslenskur sjávarútvegur keppir áheimsmarkaði. Hann er á heimsmælikvarða, en við getum samt ekki ætlast til að hengja á hann himinháar álögur ef hann á að standast alþjóðlega samkeppni. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Keppt við ríkis- styrkta útgerð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Álka sem fannst við Bjargtanga á Látrabjargi í júní 2016 reyndist vera elsta álka sem fundist hefur hér við land eða að minnsta kosti 31 árs. Hún var hin sprækasta þegar henni var sleppt og gæti því verið orðin 33 ára. Fyrra Íslandsmetið var 28 ár, en heimsmet í álkualdri er 42 ár. Í samantekt á heimasíðu Nátt- úrufræðistofu Norðausturlands fjallar Yann Kolbeinsson fuglafræð- ingur um Íslandsmetið, en 22. júní 2016 voru starfsmenn Náttúru- stofunnar staddir á Látrabjargi við endurheimtur dægurrita af svart- fuglum. Við leit að merktum álkum náðist fugl sem reyndist bera gamalt stálmerki frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Hluti merkisins var orðinn mjög eyddur og ólæsilegur en þó tókst að finna út úr númeri merk- isins sem var 457064. Endurheimtan var tilkynnt til Náttúrufræðistofnunar og fyrr á þessu ári bárust upplýsingar um merkingu fuglsins. Reyndist álkan hafa verið merkt á sama stað 4. júní 1987 af Arnþóri Garðarssyni, þá sem fullorðinn einstaklingur í varpi eða a.m.k. tveggja ára gömul. Fuglinn hefur því verið að minnsta kosti 31 árs gamall við endurheimtu. Methafi frá Wales Fyrra met átti álka sem merkt var sem ungi í Grímsey 11. júlí 1982 og var skotin í Eyjafirði 15. desember 2010 og varð því rúmlega 28 ára gömul. Heims- og Evrópumetið á hins vegar velsk álka sem náði 42 ára aldri. Hún var merkt sem ungi á eyj- unni Bardsey 2. júlí 1964 og endur- heimtist á sömu eyju 25. júní 2004. Hún er jafnframt annar elsti fugl sem endurheimst hefur á Bretlands- eyjum. Í N-Ameríku er elsta þekkta álkan 28 ára gömul, skrifar Yann. Elsta íslenska álkan 31 árs Ljósmynd/Yann Kolbeinsson Í bjargi Álkupar við Skoruvík á Langanesi sumarið 2017.  Merkt í Látrabjargi 1987  Endur- heimt á sama stað  Gæti verið 33 ára Á morgun, sunnudag, verður framinn gjörningur í Víkurgarði (Fógeta- garði) í miðbæ Reykjavíkur til að mótmæla því að grafir 600 Reyk- víkinga verði lagð- ar undir hótel á Landssímareitn- um. Samkoman hefst kl. 14 og stendur til kl. 16. Frú Vigdís Finn- bogadóttir, fyrr- verandi forseti Ís- lands, flytur ávarp í upphafi og síðan munu afkomendur nokkurra þeirra einstaklinga sem jarðsettir voru í garðinum á árunum 1817 til 1838 og fleiri lesa upp nöfn fólksins. Tilgangurinn er að mótmæla því að grafarró hinna jarðsettu sé raskað með byggingu hótels sem á að ná yfir austurhluta kirkjugarðsins þar sem meginþorri hinna 600 mun hafa feng- ið leg. Málefni Víkurgarðs hafa mjög ver- ið til umræðu að undanförnu. Hótel- byggingin sem rís á svkölluðum Landssímareit fer að hluta til inn á gamalt bílastæði við Kirkjustræti en þangað náði hinn forni kirkjugarður fyrr á tíð. Við fornleifarannsókn á staðnum 2016 kom í ljós mikill fjöldi beinagrinda og kistuleifa. Það var allt fjarlægt til að rýma fyrir hótelinu. Minjastofnun hefur uppi áform um að friðlýsa sérstaklega Víkurgarð eins og hann er formlega afmarkaður í dag, en ekki þann hluta kirkjugarð- ins þar sem bílastæðið var og forn- leifarannsóknin var gerð. Samkoma til að mótmæla hóteli Vigdís Finnbogadóttir Tveir voru fluttir á sjúkrahúsið í Neskaupstað vegna gruns um reyk- eitrun, eftir að eldur kviknaði í litlu verkstæði í bænum í gærdag. Slökkvilið brást snöggt við og slökkti eldinn sem hafði kviknað út frá ryksugu á verkstæðinu og barst reykur í íbúð á hæðinni fyrir ofan. Eldur í verkstæði í Neskaupstað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.