Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 16
Karlar fá athvarf
í skúr í Breiðholti
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við munum kynna verkefnið og þeir
sem hafa áhuga geta skráð sig til
leiks. Við höldum svo áfram að hittast
á fimmtudögum og ræða hvað menn
vilja gera,“ segir Hörður Sturluson,
verkefnastjóri hjá Rauða krossinum.
Á fimmtudaginn í næstu viku, 22.
nóvember, verður kynning á verkefn-
inu Karlar í skúrum í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi í Breiðholti.
Fundurinn hefst klukkan 10 og er öll-
um opinn.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu var samskonar verkefni
sett á laggirnar í Hafnarfirði í byrjun
árs. Það er að erlendri fyrirmynd og
snýst um að veita eldri mönnum
tækifæri til að sinna hugðarefnum
sínum og um leið að koma í veg fyrir
félagslega einangrun. Verkefnið þyk-
ir hafa tekist frábærlega Hafnarfirði
en þar hittast að jafnaði fjörutíu eldri
karlar.
„Þeir eru mikið að smíða, bæði að
tálga og nota rennibekkinn í allskon-
ar verk. Svo hafa þeir verið að prófa
glerskurð. Nýjasta nýtt hjá körlun-
um er að smíða bátalíkön,“ segir
Hörður.
Hörður segir að mikill áhugi sé á
Karlar í skúrum hjá velferðarsviði
Reykjavíkurborgar og verkefnið sé
nú unnið í samstarfi við þjónustumið-
stöð Breiðholts. Fyrst um sinn mun
hópurinn hittast í Gerðubergi en svo
verði fundið hentugt húsnæði.
Ekki er útilokað að Karlar í skúr-
um verði tekið upp úti á landsbyggð-
inni innan tíðar. „Það er mikill áhugi
víða um land og ég hef fengið mikið af
fyrirspurnum. Til að mynda frá Pat-
reksfirði, Ísafirði og Akureyri. Þetta
er að spyrjast út,“ segir Hörður.
Verkefnið verður kynnt í næstu viku
Morgunblaðið/Eggert
Karlar í skúrum Nýtur vinsælda í
Hafnarfirði og alltaf nóg að gera.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Stefnt er að lokun gömlu Hring-
brautarinnar 7. janúar 2019. Þetta
kemur fram í nýjum Fram-
kvæmdafréttum Hringbrautarverk-
efnis Nýs Landspítala ohf. (NLSH).
Eins og fram hefur komið í frétt-
um mun lokunin hafa í för með sér
miklar breytingar á umferð og sam-
göngum á Landspítalalóðinni, með-
al annars á leiðakerfi Strætó bs.
Lokun gömlu Hringbrautar markar
upphaf á jarðvinnu fyrir meðferð-
arkjarnann.
Stærsta bygging nýs spítala
Meðferðarkjarninn verður
stærsta bygging nýs Landspítala,
alls um 66 þúsund fermetrar. Hann
verður sunnan við Barnaspítalann,
framan við aðalbygginguna, og mun
ná yfir gömlu Hringbrautina. Ís-
lenskir aðalverktakar sjá um jarð-
vinnu vegna meðferðarkjarnans.
Fyrirtækið átti lægsta tilboð í verk-
ið, eða 2,8 milljarða króna.
Reykjavíkurborg samþykkti
byggingarleyfi fyrir meðferð-
arkjarnann í síðasta mánuði.
Framkvæmdir standa nú yfir við
lagnaskurð sunnan Barnaspítalans.
Fljótlega verður byrjað á þverun
Laufásvegar niður við gömlu
Hringbraut. Áætlað er að sá verk-
þáttur taki um fimm vikur og á
meðan verður Laufásvegur lokaður
fyrir umferð, milli gömlu Hring-
brautar og Barónsstígs. Gert er ráð
fyrir að búið verði að fylla aftur í
skurðinn frá Laufásvegi að aðal-
anddyri Barnaspítalans um miðjan
desember 2018, að því er fram
kemur í Framkvæmdafréttum
NLSH.
Mikið hefur þurft að sprengja
vegna lagnaskurðarins. Einungis
hefur verið leyfilegt að sprengja
þrisvar sinnum yfir daginn, kl.
11.00, 14.30 og 17.30.
Áætlað er að byrja á jarðvinnu
fyrir tengigang frá aðalinngangi
Barnaspítala í síðustu viku nóv-
ember 2018. Uppsteypa, fylling og
malbikun á því svæði mun standa
fram til lok janúar 2019. Á sama
tíma verður unnið við stóra lagna-
skurðinn og götustæði Efri götu frá
tengiganginum til austurs framhjá
kvennadeild og svo enn lengra í
austur framhjá gamla spítalanum.
Áætlað er að vinna við inngarð
við Barnaspítala hefjist um miðjan
desember 2018 og að þeirri vinnu
ljúki í lok janúar 2019.
Komið hefur í ljós að sú aðgerð
er öllu viðameiri en upphaflega var
áætlað, segir í Framkvæmdafrétt-
um NLSH.
Gömlu Hringbraut lokað í janúar
Miklar breytingar á umferð á Landspítalalóð á næstunni Laufásvegur verður lokaður í 5 vikur
Tölvumynd/Corpus3
Landspítali Meðferðarkjarninn rís fyrir framan aðalbyggingu spítalans og mun liggja yfir gömlu Hringbrautina.