Morgunblaðið - 17.11.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.11.2018, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Í lok nóvember verður minnst tvennra tímamóta í lífi landsmanna. Annars vegar eru 180 ár frá því að Hólavallagarður, kirkjugarðurinn við Suðurgötu, var tekinn í notkun í nóvember 1838. Í Hólavallagarði liggja saman háir sem lágir, alþýðufólk og helstu listamenn og stjórnmálamenn 20. aldar. Persónur og leikendur í fullveldis- og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Hins vegar er þess minnst að öld er liðin frá því mannskæð farsótt, spænska veikin, barst hingað til lands. Talið er að á þremur vikum í nóvember 1918 hafi veikin lagt að velli hátt í 300 íbúa Reykjavíkur sem voru jarðaðir í Hólavallagarði. Allt athafnalíf í bænum lamaðist og prestar, læknar og annað hjúkrunarfólk vann myrkranna á milli. Það gerðu einnig þeir sem önnuðust greftranir í Hólavallagarði í vetrarhörkum við ótrúlega erfiðar aðstæður. Þessara tímamóta verður minnst sunnudagana 18. og 25. nóvember. Tímamót 100ár frá Spænskuveikinnni Hólavallagarður 180ára 18. nóvember Málþing í Iðnó kl. 14:00-16:00 um spænsku veikina á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur í samvinnu við Ráðhús Reykjavíkur. Erindi flytja: Bragi Þorgrímur Ólafsson sagnfræðingur, Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir og Erla Dóris Halldórsdóttir sagnfræðingur. Boðið verður upp á tónlistarflutning og kaffiveitingar. Fundarstjóri: Alma D. Möller, landlæknir Að loknu málþingi mun Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur leiða göngu frá Iðnó að Hólavallagarði þar sem Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður garðsins og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur taka við hópnum og fjalla um spænsku veikina og Hólavallagarð. Að lokummun Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur leiða minningarstund. 25. nóvember Söguganga í tilefni af því að 180 ár eru frá því að Hólavallagarður var tekin í notkun. Safnast saman kl. 14:00 við Víkurgarð (Fógetagarð) á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður Hólavallagarðs mun stikla á stóru í sögu Víkurgarðs. Síðan mun hann leiða sögugöngu í slóð líkfylgda upp Suðurgötu í Hólavallagarð þar sem farið verður yfir sögu og þróun garðsins og áhrif ólíkra hugmynda á skipulag hans og útfararsiði. ÚR BÆJARLÍFINU Birna Guðrún Konráðsdóttir Borgarfirði Borgarfjörður er eitt laxrík- asta svæði landsins. Um 20% af öllum stangaveiddum laxi landsins koma þaðan. Ef laxveiðiárnar á Mýrum eru taldar með má áætla að um 25-30% stangveiðinnar á landsvísu séu af þessu svæði. Á vefsvæði héraðsfréttablaðsins Skessuhorns birtist 15. nóvember sl. frétt um að skýrsla hefði verið unnin að frumk0væði Lands- sambands veiðifélaga þar sem fram kemur að stangveiði sé ein meginstoð landbúnaðar á Íslandi. Tekjur af stangveiði eru 28% af hagnaði og launakostnaði í land- búnaði á landinu öllu. Nokkuð er misjafnt hvernig þessi hlunnindi skiptast milli landshluta en hagn- aður og launakostnaður af stang- veiði er mestur á Vesturlandi eða 69% á landsvísu. Áreigendur á því svæði hafa því ríkra hagsmuna að gæta.    Tekjur af lax- og silungs- veiði hafa margfaldast frá síðustu úttekt sem unnin var árið 2004. Að jafnaði jukust greiðslurnar um 6% á ári umfram neysluverð á þessu árabili. Í lögum um lax- og silungsveiði er ákvæði um að veiðiréttareigendur skuli stofna með sér félag til að skipuleggja veiði, friðun og sjálfbærni við hvert veiðivatn fyrir sig. Ekki eru öll þau lögbýli sem eiga veiðirétt í byggð, það eru því ekki einungis bændur sem njóta tekna af þess- um hlunnindum en þó er ljóst að víða skipta þau máli fyrir afkomu þeirra.    Í Reykholtskirkju fóru fram í gær tónleikar til minningar um Heimi Klemenzson, tónlistarmann frá Dýrastöðum í Norðurárdal, en Heimir lést með sviplegum hætti fyrr á þessu ári. Heimir varð snemma efnilegur tónlistarmaður og aðalhljóðfæri hans var píanó. Hann samdi tónlist, var meðleikari með kórum, leysti kennara sinn af í fríum hans ásamt því að spila í hljómsveitum. Hann var því mjög fjölhæfur listamaður sem víða kom við. Í minningu Heimis hefur verið stofnaður sjóður sem á að hafa það hlutverk að styrkja tón- listarfólk á Borgarfjarðarsvæðinu. Allir þeir listamenn sem fram komu á tónleikunum gáfu vinnu sína svo aðgangseyririnn rann óskiptur í sjóðinn. Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta lagt inn á Minningarsjóð Heimis Klem- enzsonar, reikningur: 0370-13- 906663, kennitala: 160854-7669.    Sá góði siður hefur skapast í Borgarfirði í tengslum við dag ís- lenskrar tungu að grunnskólabörn úr héraðinu komi í heimsókn í Brún í Bæjarsveit, þar sem Félag eldri borgara á svæðinu heldur sína fundi. Börnin lesa upp fyrir félagsmenn, sögur og ljóð og meira að segja eitt og annað frum- samið. Ekki hefur verið háheilagt að heimsóknin hafi átt sér stað á kórréttum degi, heldur er heim- sóknin tengd fundardegi félagsins. Þetta haustið var engin breyting á venjunni. Börnin mættu og hófu upp raust sína fyrir eldri borgara Borgarfjarðar og var klappað lof í lófa, að venju. Styrktarsjóður Minningartónleikar um Heimi Klemenzson voru haldnir í Reykholtskirkju til stofnunar sjóðs til styrktar tónlistarfólki í Borgarfirði. Laxveiði ein af meginstoðum landbúnaðar Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudaginn að fela skrifstofu eigna og atvinnuþróunar borg- arinnar að ganga til samninga um kaup á húsnæði fyrir neyðarskýli fyrir unga vímuefnaneytendur. Húsnæðið, sem er 216 fermetrar, er á Grandagarði 1A í Örfirisey og gert er ráð fyrir að starfsemin hefj- ist í mars á næsta ári. Þangað til verður tímabundin fjölgun plássa í Gistiskýlinu við Lindargötu, til að mæta því markmiði velferðarráðs að ekki þurfi að vísa neinum frá í vetur, segir í frétt á vef Reykjavík- urborgar. Í neyðarskýlinu, sem ætl- að er ungum karlmönnum í neyslu, verður sólarhringsvakt og er áætl- aður rekstrarkostnaður um 115 milljónir króna á ári. Á fundi borgarráðs var einnig far- ið yfir undirbúning vegna kaupa á 25 smáhýsum sem verða staðsett vest- an Elliðaáa. Áætlað er að framkvæmdum við þau verði einnig lokið í mars á nýju ári. Auk þess að reka neyðarskýli fyrir konur og karla þjónustar velferðar- svið borgarinnar 65 einstaklinga sem eru í virkri neyslu og búa í sér- stöku húsnæði á vegum borgarinnar. Vettvangs- og ráðgjafateymi velferðarsviðs annast stuðninginn. Reykjavík rekur einnig áfanga- heimili eða styrkir slíka starfsemi þar sem eru um 130 pláss auk þess að koma að fjölmörgum verkefnum sem tengjast vímuefnaneytendum í virkri neyslu eða í kjölfar meðferðar, segir í fréttinni. Áætlaður kostnaður Reykjavíkur- borgar á árinu 2019, vegna þjónustu við þennan hóp, sé um 1,2 milljarðar króna. sisi@mbl.is Útbúa neyð- arskýli fyrir unga karla  Verði tilbúið í mars á næsta ári Grandargarður 1A Í húsinu verður á næstunni innréttað neyðarskýli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.