Morgunblaðið - 17.11.2018, Side 20

Morgunblaðið - 17.11.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Eldborg 22. nóv. kl. 19:30 23. nóv. kl. 19:30 24. nóv. kl. 13 & 17 Börn 12 ára og yngri fá 50% afslátt Miðasala á harpa.is og í síma 528 5050 harpa.is/hbr #harpareykjavik St. Petersburg Festival Ballet ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kötlugarður, gamli varnargarður- inn austan við Vík í Mýrdal, myndi rofna í Kötluhlaupi svipuðu og varð í gosinu árið 1918, og jökulhlaupið myndi ná til Víkur. Athuganir benda til þess að nýr varnargarður sem byggður yrði í 7 metra hæð yfir sjávarmáli við Víkurklett myndi stöðva jökulflóðið og einnig minna flóð sem hugsanlega kæmi í kjölfar- ið og því verja byggðina í þorpinu. Niðurstöður vinnu með hermilík- an sem Verkfræðistofan Vatnaskil gerði vegna hönnunar nýrrar brúar á Múlakvísl og varnargarðs í kjölfar flóðs sem tók af gömlu brúna bentu til að hamfaraflóð myndi fara yfir Kötlugarð og ná til þéttbýlisins í Vík. Kötlugarður var gerður um miðja síðustu öld, eftir að vegurinn var færður niður á sandinn. Hann er austan við bæinn Höfðabrekku, við flugvöllinn sem þar er. Miðað við 1918-hlaupið Lögreglustjórinn á Suðurlandi fékk verkfræðistofuna til þess að herma sérstaklega útbreiðslu og dreifingu hamfaraflóðs úr Kötlu- jökli með áherslu á þéttbýlið í Vík. Markmiðið er að fá varfærið mat á flóðhæð við Víkurklett, komi til Kötluhlaups af sömu stærð og árið 1918, og leggja mat á hversu háan varnargarð þurfi að gera til að hindra útbreiðslu flóðsins til Víkur. Vatnaskil hafa skilað þessari skýrslu. Jökulhlaup vegna goss í Kötlu hafa oftast komið niður Mýrdals- sand, vestan Hafurseyjar. Jarðvís- indastofnun Háskólans hefur metið líklega uppsöfnun sets í farveginum samfara hlaupi. Öll tilvik sem reikn- uð voru út gerðu ráð fyrir að núver- andi Kötlugarður við Höfðabrekku- jökul myndi rofna. Hann er á fimmta hundrað metra að lengd og í um 5 metra hæð yfir sjávarmáli. Hann er aðeins byggður úr sandi og ekki rofvarinn. Talið er ólíklegt að hann myndi standa af sér stórhlaup á við það sem varð árið 1918 þótt hann yrði styrktur. Almannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra lagði fyrir forsendur um stað- setningu nýs varnargarðs út frá Víkurkletti, um 1,5 km frá þéttbýl- inu í Vík. Flóðhæð í stóru jökul- hlaupi, með rennslistopp 250 þús- und rúmmetra á sekúndu, myndi samkvæmt reiknilíkaninu og for- sendum þess ná 5,4 til 5,8 metrum yfir sjávarmál við Víkurklett. Minna flóð sem hugsanlega kæmi í kjölfar- ið og rynni yfir nýtt og hærra land eftir stóra flóðið myndi ná heldur hærra, eða um 5,8 til 6 metrum. Bæði flóðin myndu ná til Víkur og renna yfir byggðina sem stendur næst sjónum. Þetta gerist á örfáum klukkustundum. Varnargarður í 7 metrum Reiknilíkan gerir ráð fyrir varn- argarði við Víkurklett í 7 metra hæð yfir sjávarmáli. Hann yrði þvert á straumstefnu flóðsins og myndi stöðva báðar gerðir flóðanna sem prófaðar voru í líkaninu. Þar sem hann yrði mun vestar en Kötlugarð- ur nýtist hann ekki til að verja bæ- inn Höfðabrekku þar sem stórt hót- el er rekið. Í minnisblaði Vegagerðarinnar sem fylgir skýrslu Vatnaskila kem- ur fram að landhæð við Víkurklett er nú 4-5 metrar yfir sjávarmáli og því þarf 2-3 metra háan varnargarð, alls um 540 metra langan. Vega- gerðin áætlar að kostnaður við hann yrði um 40-60 milljónir kr. Jafn- framt þarf að aðlaga hringveginn þessu mannvirki með því að lyfta honum upp á kafla. Það myndi kosta 40-50 milljónir til viðbótar. Þessi framkvæmd myndi því kosta nálægt 100 milljónum króna alls. Niðurstöður úr reiknilíkaninu um flóðhæð og straumhraða jökul- hlaupsins þegar það gengur út í sjó voru einnig nýttar til að greina flóð- bylgjuna sem myndaðist í kjölfarið. Niðurstaðan studdi fyrri athuganir, það er að segja að ólíklegt væri að flóðbylgjan næði yfir sjávarkamb- inn við þorpið. Grunnkort/Loftmyndir ehf. Vík í Mýrdal Höfðabrekka Mú lak vís l 1 1 Hugsanlegt jökulflóð úr Kötlu Varnargarður Varnargarður við Víkurklett Gætu stoppað flóðið við Víkurklett  Athuganir benda til að jökulhlaup frá Kötlu myndi fara yfir Kötlugarð og ná til þéttbýlisins í Vík  2-3 metra hár varnargarður við þorpið myndi stöðva flóðið  Kostnaður áætlaður um 100 milljónir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.