Morgunblaðið - 17.11.2018, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018
Heimsmeistarinn MagnúsCarlsen mátti þakkafyrir jafntefli í sjöttueinvígisskákinni við
Fabiano Caruana í London í gær.
Skákinni lauk með jafntefli eftir 80
leiki og u.þ.þ. sex og hálfrar klukku-
stundar taflmennsku. Undir lok
skákarinnar varðist Magnús manni
undir en „vélunum“ bar ekki saman
um vinningshorfur Bandaríkja-
mannsins, þó að margt bendi til
þess að hægt verði að sanna að
hann hafi átt unnið tafl um tíma.
Staðan í einvíginu er því jöfn eftir
jafntefli í öllum sex fyrstu skák-
unum.
Eitt einkenni einvígisins í London
er það hversu erfiðlega skákmönn-
unum gengur að fá þó ekki sé nema
örlítið betra tafl þegar þeir hafa
hvítt. Hvað eftir annað er það
stjórnandi svarta liðsaflans sem
teflir til sigurs. Þannig var það
einnig í sjöttu skákinni í gær. Upp
kom Petroffs-vörn og síðan nokkrir
sérkennilegir riddaraleikir sem
leiddu til jafnrar stöðu. Margir
bjuggust við að þeir myndu slíðra
sverðin í kringum 30 leikinn en 22.
leikur Magnúsar var ónákvæmur og
Caruana fékk færi á að tefla til
vinnings og erfið vörn beið norska
heimsmeistarans. Honum brást ekki
bogalistin frekar en fyrri daginn,
hélt jöfnu og getur verið sáttur við
þau úrslit. Skákin gekk þannig fyrir
sig:
Heimsmeistaraeinvígið í London;
6. skák:
Magnús Carlsen – Fabiano Ca-
ruana
Petroffs vörn
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4.
Rd3!?
Afar sjaldséður leikur sem virðist
hafa haft þann tilgang að beina
skákinni frá þekktustu leiðum. Á
skákmótinu í St. Louis í sumar lék
Magnús 4. Rf3 Rxe4 5. Rc3 Rxc3 6.
dxc3 sem er ein algengasta leiðin.
4. ... Rxe4 5. De2 De7 6. Rf4 Rc6
7. Rd5 Rd4 8. Rxe7 Rxe2 9. Rd5
Rd4 10. Ra3 Re6 11. f3 Rc5 12. d4
Rd7 13. c3 c6 14. Rf4 Rb6 15. Bd3
d5 16. Rc2 Bd6 17. Rxe6 Bxe6 18.
Kf2 h5 19. h4 Rc8 20. Re3 Re7 21.
g3 c5 22. Bc2?
Fyrsta og eina ónákvæmni Magn-
úsar. Biskupinn stefnir til b3 en þar
stendur hann alls ekki vel.
22. ... O-O 23. Hd1 Hfd8 24. Rg2
cxd4 25. cxd4 Hac8 26. Bb3 Rc6 27.
Bf4 Ra5 28. Hdc1 Bb4 29. Bd1 Rc4
30. b3 Ra3!
Þennan þátt skákarinnar teflir
Caruana alveg sérstaklega vel. Þó
að vinningsmöguleikarir séu ekki
miklir tekst honum að halda upp
óþægilegri pressu á stöðu hvíts.
31. Hxc8 Hxc8 32. Hc1
Stofnar til uppskipta og vonast
eftir jafntefli en Caruana skynjar
vel að hann einn á vinningsmögu-
leika.
32. ... Rb5 33. Hxc8+ Bxc8 34.
Re3 Rc3 35. Bc2 Ba3 36. Bb8 a6 37.
f4 Bd7 38. f5 Bc6 39. Bd1 Bb2! 40
Bxh5 Re4+ 41. Kg2 Bxd4 42. Bf4
Bc5 43. Bf3 Rd2!
44. Bxd5 Bxe3 45. Bxc6 Bxf4 46.
Bxb7 Bd6 47. Bxa6 Re4 48. g4 Ba3
50. g5 Rc3 51. b4!
Það er betra fyrir hvítan að halda
í a-peðið.
51. ... Bxb4 52. Kf3 Ra4 53. Bb5
Rc5 54. a4 f6 55. Kg4 Re4 56. Kh5
Be1 57. Bd3 Rd6
58. a5!?
Spilar út trompinu! Með því að
láta peðið af hendi kemst kóngurinn
inn á g6. En dugar það til jafnteflis?
Ekki voru allir vissir um það.
58. ... Bxa5 59. gxf6 gxf6 60. Kg6
Bd8 61. Kh7 Rf7 62. Bc4 Re5 63.
Bd5 Ba5 64. h5 Bd2 65. Ba2 Rf3 66.
Bd5 Rd4 67. Kg6 Bg5 68. Bc4 Rf3
69. Kh7 Re5 70. Bb3 Rg4 71. Bc4
Re3 72. Bd3 Rg4 73. Bc4 Rh6 74.
Kg6 Ke7 75. Bb3 Kd6 76. Bc2 Ke5
77. Bd3 Kf4 78. Bc2 Rg4 79. Bb3
Re3 80. h6 Bxh6
Jafntefli.
Í sjöundu skákinni sem tefld
verður á morgun hefur Magnús aft-
ur hvítt.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Í lögum um mennt-
un og ráðningu kenn-
ara og skólastjórn-
enda nr. 87/2008 er
fjallað um skilyrði
þess að fá leyfi til að
nota starfsheitin leik-,
grunn- og framhalds-
skólakennari. Í reglu-
gerð nr. 872/2009 er
farið nánar yfir það
hvers konar menntun
kennarar skuli hafa til kennslu
mismunandi greina á mismunandi
skólastigum. Til dæmis skulu
framhaldsskólakennarar hafa eigi
minna en 180 námseiningar í
aðalkennslugrein og við kennslu
iðngreina skuli viðkomandi hafa
meistararéttindi í sinni grein.
Kennslufræðilegi hluti menntunar-
innar skal vera að lágmarki 60 ein-
ingar.
Í samræmi við eðli kennslu á
mismunandi skólastigum eru
menntunarkröfur kennara mis-
munandi. Í reglugerðinni er vægi
kennslufræðinnar í námi kennara
meira vegna kennslu yngri nem-
enda. Til dæmis eru gerðar kröfur
um 150 einingar að lágmarki í
kennslufræði til að fá leyfi til
kennslu í leikskóla og 120 einingar
að lágmarki vegna kennslu í
grunnskóla. Reglugerðin endur-
speglar þannig þann mun sem er á
starfi kennara á mismunandi
skólastigum.
Meðal framhaldsskólakennara
eru bæði sérfræðingar í akadem-
ískum fræðum sem og iðngreinum.
Á annað hundrað mis-
munandi starfsheiti
eru meðal framhalds-
skólakennara. Bók-
menntafræðingurinn
og bifvélavirkinn eiga
þannig lítið sameig-
inlegt annað en til-
tölulega stutt nám í
kennslufræðum til
kennsluréttinda.
Eðli málsins sam-
kvæmt er þetta auð-
vitað ekki alveg svona
klippt og skorið enda
gera lög ráð fyrir ákveðnum
sveigjanleika við útgáfu leyfisbréfa
til kennslu á mismunandi skóla-
stigum. Framhaldsskólakennarinn
getur þannig haft menntun og
færni til að kenna sína kennslu-
grein í elstu bekkjum grunnskóla
og grunnskólakennarinn sem hefur
sérhæfingu í tiltekinni kennslu-
grein getur auðvitað kennt
grunnáfanga í framhaldsskóla.
Fræðslulögin frá 2008 gera einmitt
ráð fyrir því og sambærilegum
sveigjanleika við skil leik- og
grunnskóla. Það er sveigjanleiki
byggður á þeim faglegu forsendum
sem inntak kennaramenntunar
byggist á.
Nú ber svo við að innan mennta-
og menningarmálaráðuneytisins
eru hugmyndir um að falla frá
kröfum um sérhæfingu vegna út-
gáfu leyfisbréfa til kennslu í leik-,
grunn- og framhaldsskólum. Fram-
haldsskólakennarar öðlist þannig
leyfi ráðherra til að kenna öllum
aldurshópum í leik- og grunn-
skólum óháð því hvaða menntun
býr að baki. Sjálfsagt verður ekki
slegist um bílgreinakennara úr
Borgarholtsskóla til kennslu í leik-
skólum en það grundvallarsjón-
armið að þeir hafi leyfi ráðherra til
kennslu yngstu nemendanna gerir
lítið úr þeirri sérhæfingu sem
reglugerð um inntak kenn-
aramenntunar kveður á um.
Hér væri því um grundvallar-
breytingu að ræða á þeirri hug-
myndafræði sem núverandi
fræðslulög byggjast á, sem er að
kennsla hvers skólastigs krefjist
tiltekinnar menntunar og sérhæf-
ingar. Sú sérhæfing réttlætir út-
gáfu leyfisbréfa með tiltekinn
sveigjanleika til kennslu á aðliggj-
andi skólastigum, en ekki þá rót-
tæku breytingu að setja alla kenn-
ara undir sama hatt lagalega séð,
algjörlega óháð bakgrunns-
menntun. Eða hverjum dettur í
hug að segja að það sé það sama
að kenna tveggja og 20 ára nem-
endum?
Eitt leyfisbréf til kennslu
frá tveggja til 20 ára
Eftir Guðríði
Arnardóttur
Guðríður Arnardóttir
»Nú ber svo við að
innan mennta- og
menningarmálaráðu-
neytisins eru hug-
myndir um að falla frá
kröfum um sérhæfingu
vegna útgáfu leyfisbréfa
til kennslu í leik-,
grunn- og framhalds-
skólum.
Höfundur er formaður Félags
framhaldsskólakennara.
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Magnús Carlsen
mátti þakka fyrir
jafntefli í gær