Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018
✝ Ásdís BergMagnúsdóttir
fæddist 7. apríl
1937 á Hjallatúni í
Tálknafirði. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða
Patreksfirði 5.
nóvember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Guðmundsson frá
Steinhúsum í
Tálknafirði, f. 26. september
1917, d. 21. febrúar 2003, og
Margrét Jóhannesdóttir, f. 11.
júlí 1920 í Höfðadal í Tálkna-
firði, d. 1953.
Systkini Ásdísar samfeðra
eru Hallgrímur, f. 17. janúar
1949, d. 5. mars 2017, og Vigdís,
f. 14. febrúar 1951. Systkini Ás-
dísar sammæðra eru Gunnvör
Þóra Marthinsen, f. 27. júní
1943, Kristín María Marthinsen,
f. 14. september 1944, látin,
Randy Maria Marthinsen, f. 15.
ágúst 1946, látin, og Jóhannes
Solli Marthinsen, f. 24. mars
1948. Þau eru fædd á Íslandi en
búsett í Noregi.
Hinn 11. júní 1966 giftist Ás-
börnum sínum. Móðir Ásdísar
varð bráðkvödd á haustdögum
1953, þá var Ásdís 16 ára, og að-
eins þremur árum seinna dó
Kristín amma hennar. Tók hún
þá að sér búsforráð ásamt afa
sínum og hélst það svo næstu ár-
in ásamt því að hún vann í frysti-
húsinu meira og minna. Ásdís
vann í mötuneyti Hraðfrystihúss
Tálknafjarðar veturinn 1964-
1965 en þá um vorið réð hún sig í
kaupavinnu norður í Öxnadal
þar sem hún hitti Hermann Ár-
mannsson. Ásdís Berg Magnús-
dóttir og Hermann Ármannsson
voru gefin saman í hjónaband
þann 11. júní 1966. Um svipað
leyti tóku þau við búinu á Þverá
í Öxnadal af foreldrum Her-
manns, Önnu Sigurjónsdóttur og
Ármanni Þorsteinssyni. Eftir
sex ára búskap brugðu þau búi
og fluttu vestur á Patreksfjörð.
Þar vann hún ýmis störf en
lengst af á skrifstofu Rafborgar
ehf.
Ásdís starfaði með kirkju-
kórnum á Patreksfirði og
sóknarnefndinni, slysavarna-
deildinni Unni og Birtu,
skemmtideild eldri borgara, en
þar var hún formaður í sjö ár.
Ásdís greindist með parkin-
sonsveiki haustið 2006.
Útför Ásdísar Berg verður
gerð frá Patreksfjarðarkirkju í
dag, 17. nóvember 2018, klukk-
an 14.
dís Berg eftirlifandi
eiginmanni sínum
og lífsförunaut,
Hermanni Ár-
mannssyni frá
Þverá í Öxnadal.
Ásdís Berg átti
heima fyrstu 20 ár-
in á Hjallatúni. Hún
fór fyrst í lestr-
arpróf níu ára göm-
ul og gekk síðan í
farskóla 10, 11 og
12 ára, en tók þá fullnaðarpróf.
Hún starfaði í æsku í barnastúku
og síðar í fullorðinsstúku sem
dyravörður og forsöngvari í
fyrstu, síðar dróttseti og svo sem
kapellán, en söngur var hennar
líf og yndi. Eftir fermingu fór
hún fljótlega að syngja við mess-
ur, í kirkjukór við Laugardals-
kirkju þegar hann var stofnaður
og í kirkjukórum söng hún allt
til 65 ára aldurs.
Eftir að móðir Ásdísar flutti
til Noregs með norskum eig-
inmanni árið 1949 var hún í
fóstri hjá afa sínum og ömmu á
Hjallatúni. Vorið 1949 höfðu
Marthinsen-hjónin ákveðið að
flytja til Noregs ásamt fjórum
Ég man fyrst eftir Ásdísi frá
því að hún bjó á Þverá í Öxna-
dal. Þetta var á þeim árum sem
ég fer fyrst að muna eftir mér
en sjálfur bjó ég, þá eina barn
foreldra okkar, á Akureyri þótt
ég ætti síðar eftir að flytja að
Þverá. Ég vissi ekkert betra en
þegar ég fór ásamt foreldrum
mínum í sveitina að heimsækja
Ásdísi og Hermann og bar ég
mikla virðingu fyrir þeim hjón-
um. Það er sammerkt í minn-
ingu okkar bræðra að Ásdís var
alltaf í góðu skapi, sísyngjandi
og alltaf tilbúin til að ræða mál-
in um allt milli himins og jarðar,
taka í spil og segja sögur.
Við bræður nutum saman og
hver í sínu lagi margra góðra
stunda með Ásdísi og Hermanni
föðurbróður okkar. Þegar þau
fluttu vestur á Patreksfjörð
urðu vegalengdirnar óneitan-
lega miklar og samverustund-
irnar færri en við hefðum kosið,
en þeim mun dýrmætari þegar
þær gáfust.
Ásdís hafði einstakt lag á að
láta manni líða vel. Hún hafði
sérstaklega hlýja nærveru og
gæsku sem maður skynjaði um
leið og maður kom í forstofuna í
Sigtúninu á Patró.
Við fengum hver sitt tæki-
færi til að vera á heimilinu hjá
þeim á eigin forsendum og
fengum þannig að kynnast Ás-
dísi á þann hátt sem aldrei
verður fullþakkað, hversdagur-
inn, sem mörgum þykir óspenn-
andi, var verðmætari en nokkur
viðburður gat orðið – raunar
var hversdagurinn viðburður í
sjálfum sér. Litla hluti gerði
Ásdís spennandi, eins og það
eitt að neita að segja frá hvað
hún ætlaði að hafa í kvöldmat-
inn þann daginn, spilakapall
sem gat orðið jafnvel mystískur
og svo góðlátlegt grín að manni
sjálfum.
Ásdís var ekki bara þessi
góða kona sem við heimsóttum
á Patró, nei hún var frábær fé-
lagi í hvers kyns ferðalögum og
ekki síst veiðiferðum. Það eru
færri tilefni betri en veiðiferðir
að hittast og gera sér glaðan
dag. Í veiðiferðum lá Ásdís ekki
á liði sínu að gera ferðirnar
ánægjulegar, eftirminnilegar og
bráðskemmtilegar. Hún hafði
unun af útivist, var afar athugul
á náttúruna og óþreytandi að
vekja áhuga okkar á jafnvel
hinum smæstu fyrirbrigðum.
Það var sérstaklega gaman að
fá að ferðast um firðina fyrir
vestan og njóta frásagna henn-
ar. Upp í minningunni koma
Selárdalur, Rauðisandur og
Látrabjarg – þau í Renó-bíln-
um, – enginn átti Renó á Vest-
fjörðum nema Hermann og Ás-
dís og í Renónum var tónlist
sem Ásdís hafði valið – gjarnan
Ríó Tríó.
Það voru sérstök forréttindi
að heimsækja Ásdísi á áttræð-
isafmælinu þegar við komum öll
saman, stórfjölskyldan, og átt-
um stórkostlega daga og feng-
um öll að njóta hlýrrar nærveru
Ásdísar og hennar milda hlát-
urs.
Í dag er eins og þessi afmæl-
ishelgi, þessir tveir dagar, hafi
verið samantekt á öllum góðu
stundunum – öllum minningun-
um skenkt á einn bikar sem all-
ir fengu að bergja á.
Við minnumst Ásdísar með
hlýhug og þakklæti.
Ármann Kristinn, Árni
og Ólafur Rúnar.
Ásdís Berg
Magnúsdóttir
✝ SveinbjörgFriðbjörns-
dóttir fæddist 26.
apríl 1955 í
Reykjavík. Hún
varð bráðkvödd á
heimili sínu 12.
nóvember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Anna Sig-
ríður Finnsdóttir,
f. 9. janúar 1929,
d. 17. nóvember
2005, og Friðbjörn Guðmunds-
son f. 15. maí 1931, d. 17.
ágúst 1971. Systkini hennar
voru ellefu; sex alsystkini og
fimm hálfsystkini. Alsystkini
eru Finnur, f. 1957, d. 1958,
Guðmundur, f. 1958, d. 1958,
Guðfinna, f. 1959, Hallfríður,
f. 1960, Birgir, f. 1962, d.
1963. Samfeðra eru Guðbjörn,
búskap í Reykjavík og fluttu
svo til Seyðisfjarðar. Börn
þeirra eru: 1) Anna Guðrún, f.
1977, maki hennar er Bjarni
Grétar Sigurðsson. 2)Kolbrún,
f. 1979, börn hennar eru Daní-
el Örn, f. 1997, Eyþór Arnar,
f. 1998, og Mónika Björg, f.
2006. Eyþór á synina Jasper
Cade, f. 2017, og Jace Alex-
ander, f. 2018. 3) Friðbjörn, f.
1982, sambýliskona Sigurrós
Lilja Ragnarsdóttir, barn
þeirra er Laufey Dóra, f.
2015, en fyrir átti Friðbjörn
dótturina Ólöfu Guðrúnu, f.
2009.
Sveinbjörg vann bæði í leik-
skólanum og í frystihúsinu á
Seyðisfirði. Hún hætti að
vinna eftir að hún greindist
með flogaveiki árið 1995. Hún
var mikil hannyrðakona og
prjónaði mikið út á meðan
heilsa hennar leyfði. Síðast-
liðið ár bjó hún í Ölfusi.
Útför Sveinbjargar fer fram
frá Villingaholtskirkju í dag,
17. nóvember 2018, og hefst
athöfnin klukkan 14.
f. 1968, og Birkir
Steinn, f. 1970, d.
1988. Sammæðra
eru Ragnar Sigur-
björnsson, f. 1951,
og Sveinn Indriði
Gíslason, f. 1970.
Sveinbjörg ólst
upp í Reykjavík,
fór ung í sveit og
var að passa börn,
hún fór í Hús-
mæðraskólann á
Löngumýri í Skagafirði. Að
þeim tíma loknum kom hún 19
ára til Seyðisfjarðar til þess
að passa börn fyrir bróður
sinn. Þar kynntist hún eftirlif-
andi eiginmanni sínum Gunn-
ari Sigurðssyni, f. 18. janúar
1950. Gunnar og Sveinbjörg
giftu sig 27. september 1975 í
Laugarneskirkju. Þau byrjuðu
Elsku mamma mín. Það eru
svo margar minningar sem leita á
hugann núna eftir að þú ert farin.
Ég minnist með hlýju allra
ferðalaganna með ykkur pabba
þar sem við vorum dugleg að
ferðast og lærði maður mikið um
landið sitt. Þá minnist ég þeirra
tíma þar sem við tvö vorum sam-
an á meðan pabbi var á sjó eða
fjarverandi.
Þá er ég svo þakklátur fyrir
það hvað þið pabbi voruð alltaf
tilbúin til þess að passa stelpurn-
ar mínar og gerðuð þið margt
fyrir þær sem þær minnast með
hlýju. Betri ömmu og afa er ekki
hægt að hugsa sér.
Við áttum mörg samtölin um
allt og ekkert. Þú varst alltaf til
staðar fyrir mig og fyrir það ber
að þakka. Núna í seinni tíð spil-
uðum við oft kana en aldrei
fékkst þú til þess að segja kana
þótt þú hefðir spilin á hendi og
var oft gert mikið grín að þessu
við spilaborðið.
Þá minnist ég loforðs sem ég
gaf þér og mun ég standa við það
að hugsa um pabba nú þegar þú
ert farin. Ég sakna þín sárt.
Þinn sonur,
Friðbjörn.
Elsku Sveina. Þú kvaddir okk-
ur svo snögglega, svo snögglega
að ég er eiginlega ekki að með-
taka þetta allt saman. Það er allt
eitthvað svo tómlegt núna, það
vantar þig sem límdir allt saman.
Það er svo þungt að missa,
tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt,
angistin fyllir hugann,
örvæntingin og umkomuleysið er
algjört,
tómarúmið hellist yfir,
tilgangsleysið virðist blasa við.
Það er svo sárt að sakna
en það er gott að gráta.
Tárin eru dýrmætar daggir,
perlur úr lind minninganna.
Minninga sem tjá kærleika og ást,
væntumþykju og þakklæti
fyrir liðna tíma.
Minninga sem þú einn átt
og enginn getur afmáð
eða frá þér tekið.
Tárin mýkja og tárin styrkja.
Í þeim speglast fegurð minninganna.
Gráttu, „því að sælir eru sorgbitnir
því að þeir munu huggaðir verða“.
Sælir eru þeir
sem eiga von á Krist í hjarta
því að þeir munu lífið erfa,
og eignast framtíð bjarta.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Ég hugsa um allar þær minn-
ingar sem ég á um þig. Við vorum
tæplega búnar að þekkjast í sjö
ár en á þessum sjö árum vorum
við búnar að gera eitt og annað.
Ég hafði það alla vega af að láta
þig kíkja einu sinni inn í Costco
og það sem við gátum skoðað þar.
Svo er ógleymanleg ferðin okkar
um IKEA hérna um árið en við
skulum ekki tala meira um hana.
Bara ég og þú vitum hvað skeði.
Manstu þegar við hlökkuðum svo
til að fara á Mamma Mia 2 en eft-
ir myndina löbbuðum við hálfvon-
sviknar út því Meryl Streep kom
nánast ekkert við sögu. Þið Lauf-
ey Dóra voruð góðar saman og
mörg skondin atvik svo sem þeg-
ar Laufey Dóra var að lækna þig
en þá bar hún krem á hendurnar
þínar eða þegar hún sagði að
amma væri eitthvað pirruð og
ætti að hætta þessu bulli en þá
varst þú að segja frá hvað þið
höfðuð verið að gera þann daginn
eða láta hana ganga frá eftir sig.
Þið voruð dugleg að taka hana
eftir leikskóla og fannst henni
einstaklega gaman að fara til
ykkar og fá fisk með smjöri og
tómatsósu.
Þá þótti þér mjög vænt um það
hvað Ólöf Guðrún var góð við þig
og knúsaði þig oft. Þegar þú
horfðir á teiknimyndir með stelp-
unum var erfitt að ákveða hver
skemmti sér best, þú eða þær.
Þið voruð allar jafn uppteknar af
myndinni og ekki talandi við ykk-
ur. Ég man að ég spurði þig oftar
en einu sinni hvernig þú gætir
horft á alla þessa matreiðslu-
þætti án þess að verða svöng og
þú bara hlóst að mér! Þú manst
að við vorum búnar að plana það
að fara á Bohemian Rhapsody.
Ég verð víst að fara ein en veit þú
kemur með mér í anda. Sveina
mín, ég þakka þér fyrir sam-
fylgdina þótt ekki hafi hún verið
eins löng og ég vonaði. Hvíldu í
friði.
Þín tengdadóttir,
Lilja.
Elsku amma okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Það er eitthvað svo tómlegt
núna eftir að þú ert farin og við
söknum þín sárt. Þið voruð alltaf
saman, þú og afi. Þið komuð alltaf
bæði að heimsækja okkur og vor-
uð alveg einstaklega góð við okk-
ur.
Amma, þú varst alltaf til í að
horfa á teiknimyndir með okkur
og sagðir oft að þér fyndist mjög
gaman að horfa á þær. Stundum
var samt erfitt að ná sambandi
við þig þegar þú varst að horfa á
sjónvarpsþættina þína en þá töl-
uðum við systur bara aðeins
hærra og þá vorum við búnar að
ná athyglinni. Amma, manstu
þegar þú varst lengi vel alltaf í
rauðri flíspeysu og af því mér
fannst stundum erfitt að segja
nafnið þitt kallaði ég þig konuna í
rauðu peysunni. Þér þótti það nú
heldur ekki leiðinlegt þegar litla
skottan Laufey Dóra ákvað það
mjög ung, eftir að hafa heyrt afa
segja Sveinbjörg við þig, að kalla
þig Sveinbjörgu mjög skýrt. Svo
er líka ein hvít ömmustelpa sem
saknar alls klórsins og strokanna
um vangann sinn.
Kveðja,
Ólöf Guðrún og Laufey Dóra.
Sveinbjörg
Friðbjörnsdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna andláts og útfarar bróður okkar,
mágs, frænda og vinar,
KARLS ÞÓRHALLA HARALDSSONAR,
Breiðabólsstað, Ölfusi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Selfossi,
fyrir umönnunina á síðustu ævistundum hans.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hallfríður Ólöf Haraldsdóttir Pétur Ottósson
Ástkær faðir okkar, bróðir og mágur,
GUÐMUNDUR BENEDIKT
BALDVINSSON
frá Þúfum í Óslandshlíð,
lést þriðjudaginn 6. nóvember.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á framtíðarreikning dóttur
hans, kt. 240802-2010, reikningsnr. 0111-05-260104.
Fannar Benedikt Guðmundsson
Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Íris Baldvinsdóttir Ari Grétar Björnsson
Ásmundur Baldvinsson Málfríður Haraldsdóttir
Guðrún Baldvinsdóttir Stefán Héðinsson
Kristinn Baldvinsson
B. Bjarki Baldvinsson Kristín Guðjónsdóttir
Dagur Þór Baldvinsson Þyrey Hlífarsdóttir
Herdís Ósk Baldvinsdóttir Arnar Sigurðsson
Á erfiðum stundum er gott að finna
nærveru, styrk, hlý orð og hugsanir kærra
vina.
Við þökkum fyrir ómetanlegan stuðning við
fráfall elskaðs drengsins okkar,
EGILS DAÐA ÓLAFSSONAR.
Ólafur Vigfússon María Anna Clausen
Andri Ólafsson Sigurlaug Jónsdóttir
Vigfús Ólafsson
Sif Sigþórsdóttir
Marsibil Tómasdóttir
Vigfús Ólafsson