Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á næstu vikum mun Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari og tónskáld koma fram á þrennum tónleikum í menningarhúsinu Hannesarholti við Grundarstíg og flytja drjúgan hluta þeirra tónverka sem hann hefur samið fyrir píanó. Fyrstu tónleik- arnir verða í dag, laugardag, klukk- an 16 og þeir seinni 9. desember og 19. janúar. Um einleiksverk er að ræða en á tónleikunum 9. desember mun Anna Guðný Guðmundsdóttir koma til liðs við Snorra og saman flytja þau verk sem hann hefur sam- ið fyrir fjórar hendur við píanóið. „Ég lærði á píanó og hef alltaf spilað en líka samið talsvert fyrir pí- anó, mismikið eftir aðstæðum,“ segir Snorri Sigfús þegar rætt er við hann um verkin og væntanlega tónleika- röð. „Mér finnst gott að hafa þessi verk öll í puttunum. Það er orðið langt síðan ég spilaði flest þeirra og það er aðaltilefni þessara tónleika; að takast á við þau aftur og endur- nýja kynnin. Ég man þau flest nokk- urn veginn en auðvitað fjarlægjast þau mann eftir því sem árin líða.“ Snorri Sigfús fæddist árið 1954 og lauk einleikaraprófi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík 1974. Hann hefur starfað í Reykjavík sem tón- skáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim að loknu framhaldsnámi erlendis ár- ið 1980. Hann hefur samið einleiks- verk, kammertónlist, raftónlist, kór- tónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í CAPUT-hópnum. Þjóðlögin spennandi sjóður Snorri segir hugmyndina með tónleikunum líka vera þá að gefa yfirlit yfir píanótónverk hans en elsta verkið er frá árinu 1975, þegar hann var rétt rúmlega tvítugur. Þá frumflytur hann nokkur ný. Verkin verða ekki flutt í tímaröð heldur rað- að eftir tilfinningu tónskáldsins og nokkrum sleppir hann alveg. „Ég ákvað að hafa þetta þrenna tónleika, til að dreifa álaginu,“ segir Snorri og brosir. Og þegar spurt er hvernig verkin verða til segir hann það misjafnt. „Stundum er ég beðinn að semja eitthvað, eitt sem ég flyt núna var ég til að mynda beðinn að semja fyrir píanókeppni á vegum EPTA, sambands píanókennara. Stundum sem ég fyrir vini mína, í öðrum tilvikum fyrir sjálfan mig, svo gefast af og til tilefni eins og tón- leikar eða ferðalög. Í seinni tíð hef ég unnið mikið með þjóðlög úr safni Árnastofnunar, sem eru nú aðgengi- leg á netinu, á vefnum ismus.is. Það finnst mér mjög spennandi sjóður að sækja í, bæði vegna þess hve fjöl- breytileg þjóðlögin eru en einnig vegna þess hve hægt er að nálgast þau með margvíslegum hætti.“ Mallar í eternum Snorri segir aðalstarf sitt vera að spila á píanó með söngnemendum í Söngskóla Sigurðar Demetz. „Ég reyni að vinna í mínu á milli, eins og ég mögulega get. En auðvitað getur stundum verið erfitt að skipta sér í tvennt, eins og þegar ég er að undir- búa tónleika með mjög mörgum nót- um! Maður er alltaf með samvisku- bit yfir að æfa sig ekki nóg,“ segir hann og hlær. „En ég reyni að punkta hjá mér hugmyndir að lög- um, eins og ég get.“ Þegar spurt er hvort hann pakki þessum píanóverkum nú inn og leggi þau til hliðar eftir þessa þrennu tón- leika, þá svarar Snorri að þetta sé bara einn áfangi, svo muni þetta „malla áfram í eternum“. „Ég veit aldrei hvað gerist næst – en ég held áfram að semja, ef Guð lofar!“ segir hann. „Gott að hafa þessi verk öll í puttunum“  Snorri Sigfús leikur píanóverk sín á tónleikum Morgunblaðið/Eggert Tónskáldið „Ég ákvað að hafa þetta þrenna tónleika, til að dreifa álaginu,“ segir Snorri Sigfús um tónleikaröðina með verkum hans í Hannesarholti. Frægt málverk eftir hinn 81 árs gamla breska myndlistarmann David Hock- ney, Portrait of an Artist (Pool with Two Figures), frá árinu 1972 var selt á uppboði hjá Christie’s í fyrrakvöld fyrir langhæsta verð sem greitt hefur ver- ið fyrir myndlistarverk eftir lifandi listamann. Ónefndur kaupandi greiddi 90,3 milljónir dala, 11,2 milljarða króna, fyrir verkið (með gjöldum). Fyrra met var 58,4 milljónir dala, 7,2 milljarðar kr., en það var greitt fyrir einn af Ballon Dog-skúlptúrum Jeffs Koons. Þetta stóra málverk var eitt hið umtal- aðasta á viðamikilli yfirlitssýningu á verkum Hockney sem flakkaði nýverið milli safna en í því er fjallað um samkynhneigt ástarsamband listamannsins. AFP Metverð Málverk Davids Hockney var slegið á rúma 11 milljarða króna. Það verðmætasta eftir lifandi listamann Systkinin Sigrún og Þórarinn Eld- járn munu lesa fyr- ir börn í stofunni á Gljúfrasteini í dag kl. 15 í tilefni af degi íslenskrar tungu sem haldið var upp á í gær, á fæðingardegi Jón- asar Hallgríms- sonar. Sigrún les upp úr bók sinni Silfur- lykillinn sem fjallar um Sumarliða og Sóldísi sem eru nýflutt með pabba sínum í skrítið og skemmti- legt hús sem heitir Strætó númer 7. Þórarinn mun flytja ljóð úr bók sinni Ljóðpundari en í henni búa ýmsar verur, m.a. Urgur og Surgur, klár klár, fíll í postulínsbúð og beinn banani. Aðgangur er ókeypis að við- burðinum. Lesið fyrir börn á Gljúfrasteini Sigrún Eldjárn Kristinn Sig- mundsson bassa- söngvari og Anna Guðný Guðmunds- dóttir píanóleikari halda tónleika í dag kl. 16 í Vina- minni á Akranesi. Á efnisskránni eru m.a. ljóðasöngvar eftir Robert Schu- mann og Franz Schubert og söng- lög eftir Atla Heimi Sveinsson. Kristinn og Anna í Vinaminni Kristinn Sigmundsson Þriðju tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á þessu ári verða haldnir á morgun, sunnudag, kl. 16 í Norðurljósasal Hörpu og verða þeir með óvenju- legu sniði þar sem söngröddin verður áberandi á þessum kunna vettvangi hljóðfæratónlistar. Á efn- isskránni verða Arían L’amero, saro costante úr Il re pastore eftir Mozart, Along the Field – ljóða- bálkur fyrir sópran og fiðlu eftir Vaughan Willi- ams, Píanótríó í a-moll eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, „Lysting er sæt að söng“ fyrir sópran og selló eftir Snorra Sigfús Birgisson og útsetning á skoskum þjóðlögum fyrir sópran og píanótríó eftir Beethoven. Flytjendur eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Ragnar Jóns- son sellóleikari og Richard Simm píanóleikari. Tónleikar með óvenjulegu sniði Hallveig Rúnarsdóttir Úrvalsnemendur tónlistardeildar Listaháskóla Íslands og Tónskóla þjóðkirkjunnar halda tónleika í samvinnu við Listvinafélag Hall- grímskirkju í dag kl. 14 og verður aðalverk efnisskrárinnar Sálu- messa Gabriels Faurés. Einnig verða flutt trúarleg kór- og orgel- verk úr ýmsum áttum, eftir J.S. Bach, Mendelssohn, Cécar Franck og fleiri. „Markmiðið með sam- starfinu er að kynna nemendur skólans fyrir töfrum Klaisorgelsins og rými kirkjunnar til tónlistar- flutnings og á sama tíma gefa list- vinum kirkjunnar tækifæri til að heyra hvað hæfileikaríkir nem- endur tónlistardeildar hafa fram að færa,“ segir í tilkynningu. Aðgang- ur að tónleikunum er ókeypis. Sálumessa Faurés í Hallgrímskirkju Tónskáld Málverk af Gabriel Fauré. ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.