Morgunblaðið - 30.11.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2018
HANNHORFIR, SKYNJAR OGBREGST VIÐ
EyeSight öryggiskerfið er eitt það fullkomnasta sem völ er á. Það tengir saman tværmyndavélar sem staðsettar eru innan
við framrúðuna. Myndavélarnar senda litmyndir í þrívídd til tölvu sem kennt hefur verið að bera kennsl á lögun hluta,
greina hraða og fjarlægðir með næstum sömu nákvæmni og mannsaugað býr yfir. EyeSight kerfið gerir einnig greinarmun
á gangandi vegfarendum, reiðhjólum, mótorhjólum og bílum auk þess að skynja hemlaljós svo eitthvað sé nefnt.
Subaru Outback Premium, sjálfskiptur. Verð frá: 5.890.000 kr.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
7
1
5
NÝROGGLÆSILEGUR
SUBARUOUTBACK
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reynir Árnason, framkvæmdastjóri
Póstmarkaðarins, telur Íslandspóst
hafa með aðgerðaleysi magnað vand-
ann vegna niðurgreiðslu á erlendum
pakkasendingum til landsins.
Fram hefur komið að niður-
greiðslurnar eiga þátt í að ríkissjóð-
ur veitti Íslandspósti 500 milljóna
króna lán til allt að 12 mánaða til að
styrkja lausafjárstöðu félagsins.
Rætt er um frekari ríkisstuðning.
Reynir vísar til ummæla Ingi-
mundar Sigurpálssonar, forstjóra
Íslandspósts, í kvöldfréttum Stöðvar
2 í fyrrakvöld. Fram kom í þeirri
frétt að Íslandspóstur niðurgreiði
tvo þriðju hluta af erlendum póst-
sendingum. Stór hluti þeirra kemur
frá Kína í gegnum vefverslun.
Samsvari aðeins þriðjungi
„Ófjármögnuð byrði vegna er-
lendra póstsendinga á síðasta ári var
um 500 milljónir,“ sagði Ingimundur
í samtali við Stöð 2. „Burðargjöld Al-
þjóðapóstssambandsins standa ekki
undir nema sirka einum þriðja af
dreifingarkostnaðinum hérna innan-
lands. Þannig að það er meðgjöf með
þeim sendingum sem pósturinn hef-
ur staðið undir undanfarin ár. Það
gefur augaleið að ekkert fyrirtæki
getur niðurgreitt sendingar með
þessum hætti,“ sagði Ingimundur.
Bent var á að svokallað umsýslu-
gjald hefði verið hækkað í Svíþjóð til
að mæta kostnaði við sendingar frá
Kína. Umsýslugjaldið væri enn
hærra í Noregi. Á Íslandi greiði
flestir 595 króna umsýslugjald.
„Ef við ætluðum að leggja eitthvað
mikið meira á það heldur en sem
nemur hóflegri verðlagningu þá
myndi yfirverðlagningin orka mjög
tvímælis. Þannig að við höfum ekki
viljað fara þá leið,“ sagði Ingi-
mundur í títtnefndu viðtali.
Heimildir innan 20 kílóa
Reynir gagnrýnir þessi ummæli.
„Það verður ekki annað séð en að
samkvæmt núgildandi póstlögum
hafi alþjónustuveitandi heimild til að
leggja gjald á hvern pakka innan 20
kílóa sem kemur til landsins. Þannig
greiðir viðskiptavinurinn gjaldið
fyrir póstsendingar frá Kína en ekki
íslenska ríkið eða skattgreiðendur
eins og stjórnendur Íslandspósts
hafa óskað eftir,“ segir Reynir.
„Það er stöðugt verið að skerða
póstþjónustu innan einkaréttar og
hækka gjaldskrá bréfapósts með vís-
un í tap af samkeppnisstarfssemi
fyrirtækisins. Forstjóri Íslandspósts
staðfestir nú að hluta rekstrarvand-
ans megi rekja til þess að Íslands-
póstur vilji hreinlega ekki rukka
fyrir veitta þjónustu vegna póst-
sendinga frá Kína, líkt og gert er í
nágrannalöndum okkar. Staðreynd-
in er sú að svokallað umsýslugjald
var hækkað í Svíþjóð til að mæta
kostnaði vegna sendinga frá Kína,
það nemur nú 1.050 krónum. Um-
sýslugjaldið er enn hærra í Noregi,
þar nemur það 2.370 krónum. Á Ís-
landi greiða flestir umsýslugjald
sem nemur 595 krónum. Forstjóri
Íslandspósts segist ekki vilja fara þá
leið að hækka umsýslugjaldið vegna
kostnaðar við póstsendingar frá
Kína og vill frekar taka á sig tapið og
vill núna fá peninga frá skattborg-
urum til að borga tapið. Því til við-
bótar hefur hann setið hjá og horft á
vandann vaxa. Ég efast stórlega um
að innlend verslun sé ánægð með
þessa nálgun forstjórans.“
Um 17% munar á tölunum
Athygli vekur að talan sem Ingi-
mundur nefnir um byrði erlendra
póstsendinga í fyrra, um 500 millj-
ónir, er um 17% hærri en tilgreind
upphæð í greinargerð með frum-
varpi til laga um póstþjónustu.
„Nýlegt vandamál í rekstri Ís-
landspósts ohf. tengist mikilli fjölg-
un erlendra sendinga til landsins,
einkum frá Kína, en fyrirtækið fer
með réttindi og skyldur samkvæmt
alþjóðapóstsamningnum. Sam-
kvæmt starfsþáttaryfirliti í árs-
reikningi Íslandspósts ohf. fyrir árið
2017 nam tap af þessum sendingum
um 426 milljónum,“ segir þar m.a.
Taki mið af raunkostnaði
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS)
birti 12. þessa mánaðar úrskurð þar
sem beiðni Íslandspósts um hækkun
gjaldskrár innan einkaréttar var
hafnað. Vísar einkaréttur til bréfa-
sendinga sem fyrirtækið hefur
einkarétt á samkvæmt lögum um
póstþjónustu.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
PFS, rifjar upp að henni hafi borist
erindi um hvort erlendar póstsend-
ingar falli undir alþjónustuna.
„Það er ekki búið að kveða form-
lega og endanlega upp úr um það.
Við fjölluðum talsvert um þetta í síð-
ustu ákvörðun. Við teljum að á
grundvelli þess að hér sé um alþjóð-
legan samning að ræða, samning Al-
þjóðapóstssambandsins, og að í
rekstrarleyfi Íslandspósts sé bein-
línis kveðið á um að félagið skuli
veita þjónustu varðandi alþjóðlegan
póst, sé þetta skylda sem er lögð á
félagið. Þess vegna getur það ekki
afþakkað að veita þessa þjónustu.
Við teljum því sennilegt að það komi
til skoðunar, í samhengi við alþjón-
ustuna, að kostnaður og hugsanlegt
óhagræði falli þar undir.“
Fyrst að koma fram núna
M.t.t. mögulegs uppsafnaðs taps á
undanförnum árum á erlendum
póstsendingum vill Hrafnkell einnig
geta þess að beiðni Íslandspósts um
hvernig eigi að fara með mögulegt
tap á póstsendingum frá útlöndum
hafi ekki komið til kasta PFS fyrr en
nú. Hann rifjar svo upp það álit
stofnunarinnar að annað óhagræði af
alþjónustukvöðinni en mögulega
vegna erlendra póstsendinga „hafi
að fullu verið bætt undanfarin ár“.
Þá með því hvernig gjaldskráin fyrir
einkaréttinn hafi verið stillt af.
Kostnaði velt á skattgreiðendur
Framkvæmdastjóri Póstmarkaðarins telur aðgerðaleysi stjórnenda hafa aukið á vanda Íslandspósts
Mikið tap á pakkasendingum Forstjóri PFS segir þann kostnað mögulega falla undir alþjónustu
Morgunblaðið/Rósa Braga
Fylgir netverslun Pakkasendingar frá útlöndum hafa aukist síðustu ár.