Morgunblaðið - 30.11.2018, Page 12

Morgunblaðið - 30.11.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is N ú þegar fólk lifir lengur þá fjölgar þeim sem greinast með heilabilun og um leið aðstand- endum, svo þörfin fyrir svona bók er sannarlega fyrir hendi. Aukin þekking á sjúkdómnum kemur öll- um til góða,“ segir Hanna Lára Steinsson félagsráðgjafi, sem hefur um árabil starfað að málefnum fólks með heilabilun og aðstand- endum þeirra, en hún sendi nýlega frá sér bókina Heilabilun á manna- máli. „Oft verður óeining meðal nánustu aðstandenda, til dæmis barna þeirra veiku, af því það get- ur verið svo mikill dagamunur á heilabil- uðum einstaklingum. Sumir aðstandendur fara í afneitun og vilja ekki horfast í augu við að eitthvað sé að, aðr- ir verða ráðvilltir og vita ekki hvernig þeir eiga að bregðast við. Það getur því verið erfitt fyrir afkomendur að vera sammála um hvort þurfi að leita læknis eða ekki. Þess vegna er svo mikilvægt að eiga svona lesefni og geta séð svart á hvítu hvaða ein- kenni benda til heilabilunar,“ segir Hanna Lára og bætir við að oftast sé það þannig að þegar sjúklingur fer í greiningu þá þurfi að horfa tvö til þrjú ár aftur í tímann. „Þá áttar fólk sig á að þetta hefur byrj- að fyrir nokkuð löngu, af því þetta gerist hægt, í það minnsta með Alzheimer sjúkdóminn. Fólk verð- ur samdauna og ástandið verður á einhvern hátt eðlilegt, þó það sé það alls ekki. Makinn fer oft smám saman að taka yfir hlutverkin, ryk- suga, vaska upp, elda og annað sem verður flókið fyrir þann heila- bilaða. Þetta gerist smátt og smátt á löngum tíma og fyrir vikið áttar makinn sig ekki alltaf á að eitthvað sé að.“ Hanna Lára segir að þegar fólk fer að gruna að eitthvað óeðli- legt sé á ferðinni eigi það að byrja á að leita til Alzheimersamtak- anna. „Og tala um grun sinn við aðra nána aðstandendur, til dæmis systkini ef grunur um heilabilun foreldra er að ræða. Bera saman bækur sínar. Því næst er gott að fara til heimilislæknis sem í fram- haldinu getur vísað á sérfræðing í öldrunarsjúkdómum og þá getur greining farið fram. Þetta ferli tek- ur langan tíma.“ Ranghugmyndir og ásakanir En hver eru helstu einkenni sem aðstandendur ættu að hafa í huga að geti verið merki um heila- bilun? „Það fer eftir aldri, hjá yngra fólki sem er enn á vinnu- markaði og fær heila- bilun, þá er það verklagið sem fólk tapar fyrst, það ger- ir mistök í vinnunni og getur ekki lært nýja hluti. Skamm- tímaminnið fer fyrst og þá getur fólk ekki lært á nýja þvottavél eða nýtt tölvukerfi í vinnunni. Hjá eldra fólki birtist þetta helst í því að það týnir hlutum og mikill tími fer í að leita að einhverju sem það man ekki hvar það lagði frá sér. Það birtist líka í ranghugmyndum og ásökunum um að það sé verið að stela frá því og það ásakar makann um að halda framhjá og fleira í þeim dúr. Einnig kemur það fram í stöðugum endurtekningum, alltaf er verið að spyrja að því sama og aðstandendur halda að það sé eðli- leg öldrun, en það er það ekki ef þetta er mörgum sinnum á dag. Það er eðlilegt að gleyma ein- hverju, ef þú manst það skömmu seinna, en ef þú gleymir hvað þú varst að gera fyrir stuttri stundu, þá er það áhyggjuefni. Byrjunar- einkenni birtast líka í því að fólk á erfiðara með að rata, erfiðara með akstur og að sjá um fjármál. Fólk fer líka að kaupa það sama aftur og aftur fyrir heimilið, gleymir hvað það keypti í gær.“ Fólk oft allt of lengi heima Þegar Hanna Lára er spurð að því hvort það sé algengt að fólk með heilabilun sé fast heima af því það fær ekki pláss á viðeigandi stofnun, segir hún það því miður vera þannig. „Þetta er mjög falið og stórt vandamál. Til dæmis veit ég að á Bráðamóttökunni kemur lögreglan oft með alzheimer-sjúklinga sem hún finnur á ráfi úti um nætur. Það er afar illa áttað, því þegar fólk fær dægurvillu þá ruglast það á degi og nóttu, og getur auðveld- lega farið sér að voða ef það býr eitt. Það er mjög erfitt fyrir þessa sjúklinga að fá færni- og heilsu- mat, sem áður hét vistunarmat, nema það sé líkamlega veikt og hafi verið í sjúkraþjálfun, af því fólk kemst ekki í slíkt mat nema það sé búið að reyna allt annað áð- ur, hvíldarinnlagnir og fleira. En þessir sjúklingar geta verið mjög líkamlega hraustir og fyrir vikið er fólk með heilabilun oft allt of lengi heima. Þá eru margir í nánustu fjölskyldu líka orðnir sjúklingar vegna ofurálags við að annast sjúk- linginn allan sólarhringinn. Sér- staklega á það við ef makinn er enn lifandi og er mjög fullorðinn. Makinn vill auðvitað gera sitt besta og sá heilabilaði verður al- gerlega ósjálfbjarga án makans. Sem getur leitt til mikillar ein- angrunar fyrir makann sem ekki er heilabilaður.“ Fjölskyldusjúkdómur 21. aldar „Aldur er helsti áhættuþáttur heilabilunar og hlutfall aldraðra mun hækka hratt á næstu árum og áratugum. Því er mikilvægt að samfélagið sé undir það búið að hlúa að stækkandi hópi sjúklinga og aðstandenda þeirra. Til þess þarf að auka þekk- ingu á þeim sjúkdómum sem heyra undir heilabilun,“ segir Hanna Lára Steinsson, sem sendi nýlega frá sér bókina Heilabilun á mannamáli. Morgunblaðið/Eggert Hanna Lára Hún hefur starfað um árabil að málefnum fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra. Reuters Vinir Hundar hafa reynst vel sem félagar fyrir Alzheimer-sjúklinga. Thinkstockphoto Snúið Erfitt þegar heilinn bilar. Á vefsíðu Alzheimersamtakanna, alzheimer.is, kemur eftirfarandi fram: Eitt það mikilvægasta sem þarf að muna í tengslum við heilabilunar- sjúkdóma er að manneskjan sem við elskum og þekkjum fer ekki neitt. Hún veikist. Hún er enn hún sjálf og á enn skilið alla þá virðingu sem við höfum hingað til sýnt henni. Margar breytingar eiga sér stað í kjölfar þess að veikjast af heilabilun en nauðsynlegt er að hafa í huga að það eru ekki aðeins breytingar á heilavef sem gera hinum veika erfitt fyrir. Við- brögð umhverfisins eru lykilatriði. Aðstandendur og fagaðilar sem starfa við umönnun eru oftar en ekki uppteknir af þeirri skerðingu sem sjúk- dómarnir hafa í för með sér og gleyma að virkja og njóta þeirrar færni sem enn er til staðar. Sjúkdómurinn er þarna, en hann má ekki yfir- skyggja þá persónu sem einstaklingurinn sannarlega er. Samveran við þann minnissjúka getur verið erfið. Sjúklingurinn krefst svo mikillar athygli að samskipti við aðra fjölskyldumeðlimi og vini sitja á hakanum. Sumir sem átt hafa náinn aðstandanda með minnissjúkdóm þekkja til einmanaleika og jafnvel einangrunar, þegar fjölskylda og vinir fjarlægjast. Hegðunarmynstrið hjá hinum sjúka verður stundum afbrigði- legt. Margir aðstandendur kannast við reiðiköst sem beinast að hinum sjúka. Þetta veldur oft miklu samviskubiti sem getur verið erfitt að lifa með. Ekki má gleyma því að persónuleikabreyting sjúklingsins veldur að- standendum mikilli sorg. Einstaklingurinn er ekki sá sami og því er um ákveðinn ástvinamissi að ræða. Manneskjan er enn hún sjálf SJÚKDÓMURINN MÁ EKKI YFIRSKYGGJA PERSÓNUNA Nánd Snerting og nánd skiptir miklu máli í samskiptum við heilabilaða. Sæmundargötu 11, 101 Reykjavík, Sími 551 7030, www.nordichouse.is Gefðu umhverfisvæna jólagjöf Vertu velkomin í huggulega og sjálfbæra stemningu í Norræna húsinu. Jólaglögg, tónlist, fróðleikur og innblástur. NÁNARI DAGSKRÁ Á NORRAENAHUSID.IS Jólamarkaður Norræna hússins 2. desember kl. 12–17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.