Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is
HVOLFARARKARA
Handhægir ryðfríir karahvolfarar
í ýmsum gerðum.
Tjakkur vökvadrifinn með
lyftigetu frá 900 kg.
Halli að 110 gráðum.
Vinsælt verkfæri í
matvælavinnslum
fiski – kjöti – grænmeti
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er ljóst að nefndin mun hitt-
ast, fara yfir erindi Alþingis og skila
í kjölfarið áliti sínu til forsætis-
nefndar,“ segir Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, formaður siða-
nefndar Alþingis, í samtali við
Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til þess að í
gær greindi forseti Alþingis, Stein-
grímur J. Sigfússon, frá því við upp-
haf þingfundar að mál þeirra sex
þingmanna sem nýverið viðhöfðu
gróft og niðrandi orðalag um sam-
þingmenn sína og minnihlutahópa í
samfélaginu á knæpu í miðborg
Reykjavíkur skyldi kannað sem
mögulegt siðabrotamál. „Orðbragð
sem þarna virðist sannarlega hafa
verið viðhaft er óverjandi og óaf-
sakanlegt,“ sagði Steingrímur.
Ásta Ragnheiður segist ekki geta
svarað því hversu langan tíma vinna
nefndarinnar mun taka. „Við höfum
einu sinni komið saman til umsagn-
ar um þingmál. Það tók stutta stund
að skila því áliti,“ segir hún, en auk
hennar skipa þau Hafsteinn Þór
Hauksson, dósent við lagadeild Há-
skóla Íslands, og Salvör Nordal,
doktor í heimspeki og umboðsmað-
ur barna, siðanefnd Alþingis.
Á að efla tiltrú á þinginu
Siðareglur alþingismanna taka til
starfa þeirra og fela í sér viðmið um
hátterni þeirra sem þjóðkjörinna
fulltrúa. „Tilgangur þeirra er að
efla gagnsæi í störfum alþingis-
manna og ábyrgðarskyldu þeirra,
svo og tiltrú og traust almennings á
Alþingi,“ segir í 1. gr. reglnanna.
Meginreglur um hátterni þing-
manna er að finna í 5. gr. Þar segir
meðal annars í c-lið að alþingismenn
skuli sem þjóð-
kjörnir fulltrúar
„ekki kasta rýrð
á Alþingi eða
skaða ímynd þess
með framkomu
sinni“. Í 7. gr.
reglnanna segir
að „[þ]ingmenn
skulu í öllu hátt-
erni sínu sýna Al-
þingi, stöðu þess
og störfum virðingu“.
Ákvæði um eftirlit með fram-
kvæmd siðareglna fyrir alþingis-
menn er að finna í 16. gr. Þar segir
að „[f]orsætisnefnd Alþingis skipar
þriggja manna ráðgefandi nefnd til
fimm ára í senn sem tekur til með-
ferðar erindi sem forsætisnefnd
beinir til hennar um meint brot á
siðareglum þessum. Nefndin lætur í
té álit sitt á því hvort þingmaður
hafi með hátterni sínu brotið gegn
hátternisskyldum sínum og megin-
reglum um hátterni, sbr. 5. gr.“
Klausturmálið
20. nóvember
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór
Ólason, Anna Kolbrún Árnadóttir,
Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti
Hjaltason hittust á Klaustri bar.
Maðurinn sem
hljóðritaði sam-
talið stígur
fram í DV.
28. nóvember
Fyrsta frétt Klausturmálsins
birtist á Stundinni undir fyr-
irsögninni: „Þingmaður Mið-
flokksins kallar Ingu Sæland
„húrrandi klikkaða kuntu“.
2. desember
Stjórn Fram-
sóknarfélags
Reykjavíkur
fordæmir um-
mælin harðlega.
Lögreglustjór-
inn á höfuð-
borgarsvæðinu
segir lögfræðing
lögreglunnar hafa
farið yfir ummæli
Gunnars Braga.
30. nóvember
Boðað til mót-
mæla á Alþingi
og þess krafist að
Klausturþingmenn
axli ábyrgð.
Varaþingmaður
Miðflokksins í
Suðurkjördæmi vill
að þingmenn Mið-
flokksins axli ábyrgð
og taki sér hlé frá
þingstörfum.
Ólafur og Karl
Gauti reknir
úr Flokki
fólksins.
Aðfaranótt 29. nóv.
Karl Gauti sendir frá
sér yfirlýsingu þar
sem hann harmar þau
ummæli sem féllu á
veitingastaðnum og
segist ekki vera á för-
um úr Flokki fólksins.
29. nóvember
Sigmundur Davíð bregst við
fréttaflutningi Stundarinnar og
DV. Kallar hann eftir því að gripið
verði til aðgerða gegn fjölmiðl-
um og segir hljóðritun hljóta að
hafa farið fram með innbroti á
síma eða hlerunarbúnaði.
Gunnar Bragi segist hafa
orðið sér til skammar með
ummælum sínum á barnum.
Ólafur segist hugsi yfir
upptökunni. „Getur ekki hver
og einn séð sig í þessum
sporum,“ sagði hann.
Sömu nótt segist
Bergþór í færslu
á Facebook hafa
beðið Ingu Sæland
afsökunar á fram-
göngu sinni.
Anna Kolbrún
íhugar að
segja af sér
þingmennsku.
„Ég á mér engar
málsbætur,“
segir hún.
Þingheimur bregst við ummælunum. Stein-
grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segist
vera í „rusli yfir þessu“ og að orðanotkun
þingmannanna sé „algjörlega óverjandi
og óafsakanleg“. Níu þingmenn
Samfylkingar, Viðreisnar, Vinstri
grænna og Pírata óska eftir því að
forsætisnefnd Alþingis taki upp
málið og vísi því til siðanefndar.
Vilborg G. Hansen, sem
gegndi varamennsku í
bankaráði Seðlabankans
fyrir hönd Miðflokksins,
segir sig úr flokknum og
bankaráði. Ónafngreindir félags-
menn skrá sig úr Miðflokknum.
Formaður
Landssamtaka
Þroskahjálpar
segir ummælin
„hatursorð-
ræðu sem er
ólíðandi“.
Stjórn
Flokks fólks-
ins skorar
á Ólaf og
Karl Gauta
að segja af
sér þing-
mennsku.
Þingmannaveisla
haldin á Bessastöð-
um. Sigmundur
Davíð, Anna
Kolbrún, Ólafur og
Karl Gauti mæta.
Gunnar Bragi
og Bergþór sitja
heima.
Landssam-
band fram-
sóknarkvenna
fordæmir
ummælin og
kallar eftir
afsögn,
Sigmundur Gunnar Bergþór Anna Ólafur Karl
Bæjarfulltrúar
Miðflokksins í
Suðurkjördæmi
harma ummælin.
Gunnar Bragi
og Bergþór
taka sér leyfi
frá þing-
störfum og
varaþingmenn
taka við.
Stjórn Framsóknar-
félags Grindavíkur
fordæmir ummælin
og gagnrýnir Sigmund
Davíð sérstaklega vegna
samskipta hans við
Freyju Haraldsdóttur.
3. desember
Forsætisnefnd
Alþingis vísar
Klausturmáli
til meðferðar í
siðanefnd.
Leikhópur
Borgarleikhússins
leikles hluta
samtalsins.
Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands,
ofbauð ummælin. „Eins og öllum sem á
þetta hlustuðu, orðfærið, virðingarleysið,
sjálfsupphafningin,“ segir hann.
1. desember
Mótmæli haldin á Austurvelli. „Almenningur á Íslandi
lætur ekki bjóða sér svona talsmáta,“ segir í yfirlýs-
ingu aðstandenda.
Siðanefnd tekur málið fyrir
Forsætisnefnd Alþingis óskar eftir ráðgefandi áliti siðanefndar vegna mögulegra brota á siðareglum
fyrir alþingismenn Orðbragð Klausturþingmanna óverjandi og óafsakanlegt, segir forseti Alþingis
Morgunblaðið/Eggert
Leiklestur Valdir kaflar úr samtali þingmannanna á Klaustri voru leiklesnir á Litla sviði Borgarleikhússins í gær-
kvöldi. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrði en Hilmar Guðjónsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Þórunn Arna Krist-
jánsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Brynhildur Guðjónsdóttir sáu um lesturinn.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Hafsteinn Þór
Hauksson
Salvör
Nordal
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við erum í fordæmalausu ástandi,
svona mál hefur ekki komið upp
áður,“ segir Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands, í samtali við
Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þeirrar
ákvörðunar forsætisnefndar að vísa
máli Klausturþingmanna til siða-
nefndar Alþingis. Mun nefndin nú
meta hvort þingmennirnir sex hafi
með ummælum sínum á knæpu í
miðborg Reykjavíkur gerst brotleg-
ir við siðareglur fyrir alþingismenn.
Ólafur segir nefndina koma til
með að skila ráðgefandi áliti til for-
sætisnefndar. „Það er þó ekki að
sjá að hægt verði
að gera mikið
með það álit.
Þetta er bara
ráðgefandi álit
og þótt það verði
þeim mjög óhag-
stætt breytir það
ekki því að það
eru þingmenn-
irnir sjálfir sem
ákveða hvort
þeir segja af sér eða ekki,“ segir
hann og bendir á að þingið hafi
heldur ekkert vald til þess að víkja
öðrum þingmönnum úr sæti.
„Alþingi getur því í raun mjög
lítið gert. En ef úrskurður siða-
nefndar verður umræddum þing-
mönnum óhagstæður er það auð-
vitað áfellisdómur yfir þeim. Það
mun þó ekki hafa neinar beinar af-
leiðingar varðandi stöðu þeirra,“
segir Ólafur.
Ekki með framkvæmdavald
Ólafur segir siðanefndir almennt
ekki búa yfir framkvæmdavaldi.
„Þær gefa almennt frá sér álit. Ef
til að mynda starfsmaður í háskóla
gerist að mati siðanefndar brot-
legur hefur rektor hins vegar vald
til þess að veita honum áminningu.
Og á endanum jafnvel brottrekstur.
Þingið hefur hins vegar engin slík
völd yfir einstökum þingmönnum,“
segir hann og bætir við að megin-
reglan sé því sú að þingmenn verði
sjálfir að sjá sóma sinn í að segja
af sér.
Fordæmalaust ástand uppi
Ekki verður hægt að víkja Klausturþingmönnum úr
starfi þrátt fyrir að álit siðanefndar verði þeim óhagstætt
Ólafur Þ.
Harðarson
Klausturmál á Alþingi