Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 26
Nýr borgari
Reykjavík Óskar Hrafn
Friðriksson fæddist 4.
desember 2017 kl.
17.20 og á því eins árs
afmæli í dag. Hann vó
3.765 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans
eru Svava
Óskarsdóttir og Friðrik
Helgason.
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Ég er stödd á Kanaríeyjum ásamt manninum mínum. Við höfumekkert að gera heima í frostinu,“ segir Sigríður Stefánsdóttirsem á 70 ára afmæli í dag. Þau eru búin að vera á Gran Can-
aria síðan 14. nóvember og koma heim til Þorlákshafnar 11. desem-
ber. „Við höfum komið hingað þónokkrum sinnum, maður hefur ekk-
ert annað að gera eftir að maður hætti að vinna. Ég á samt ansi bágt
með að sitja aðgerðarlaus og tók því með mér garn hingað og er að
prjóna vettlinga og hekla bjöllur. Svo fer maður í göngutúr og ætli ég
labbi ekki tíu til fimmtán kílometra á dag. Í tilefni afmælisins ætlum
við út að borða í kvöld á flottum veitingastað sem heitir Casa Luis.“
Tekur svo jólaundirbúningurinn við þegar þið komið heim? „Ég er
nú ekkert að stressa mig á honum. Smákökurnar eru löngu bakaðar
og komnar í frysti.“
Sigríður ólst upp í Götu í Hrunamannahreppi, flutti síðan til
Reykjavíkur þegar hún fór að búa en hefur átt heima í Þorlákshöfn
frá 1980. „Ég var alltaf í matvælaiðnaðinum og vann í frystihúsi, fyrst
hjá gamla Meitlinum en síðan hjá Frostfiski sem er í sama húsi.“
Eiginmaður Sigríðar er Ragnar Óskarsson húsasmíðameistari og
vann síðast í íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn. Þau áttu gullbrúð-
kaupsafmæli 2. nóvember síðastliðinn. Sigríður og Ragnar eiga tvö
börn og eiga þau bæði heima í Þorlákshöfn: Ágústa, grafískur hönn-
uður, og maðurinn hennar er Þórarinn Friðrik Gylfason, og Óskar
húsasmiður, konan hans er Helena Helgadóttir. Barnabörnin eru
Ragnar Óskarsson, kærasta hans er Guðrún Ósk Einarsdóttir, og
Sigríður Fjóla Þórarinsdóttir.
Gullbrúðkaup F.v. Helena, Óskar, Guðrún Ósk, Ágústa, Þórarinn,
Ragnar og Sigríður Fjóla og sitjandi eru Sigríður og Ragnar.
Prjónar vettlinga
á Kanaríeyjum
Sigríður Stefánsdóttir er sjötug í dag
E
inar Karl Friðriksson
fæddist á Akureyri
4.12. 1968 en flutti
ungur í Vesturbæinn í
Reykjavík og átti þar
sín æskuspor, nálægt fjörunni við
Sörlaskjólið. Hann byrjaði í grunn-
skóla á Akureyri en bjó svo flest
grunnskólaárin í Falun í Svíþjóð þar
sem faðir hans var í sérgreinarnámi
í læknisfræði.
Einar Karl lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1987 og BS-prófi í efnafræði frá Há-
skóla Íslands 1992.
Einar Karl vann við snefilefna-
mælingar á Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins en hélt svo í framhalds-
nám til Bandaríkjanna við Cornell--
háskóla í Íþöku og lauk doktorsprófi
1999 eftir fimm ára dvöl ytra. Hann
var Fulbright-styrkþegi en doktors-
rannsóknir Einars vörðuðu massa-
greiningar á prótínum og lípíða-
samsetningu frumuhimna.
Einar Karl hóf að starfa við einka-
leyfi og hugverkavernd að loknu
námi og hefur síðan verið einka-
leyfasérfræðingur hjá fyrirtækinu
Árnason Faktor þar sem hann er
einn meðeigenda og aðstoðar meðal
annarra frumkvöðla, sprota-
fyrirtæki, íslenskan lyfjaiðnað og
háskóla.
Einar Karl hefur starfað að
Einar Karl Friðriksson, efnafr. og einkaleyfisráðgjafi – 50 ára
Með eiginkonu og tvíburunum Einar Karl og Áslaug Anna með dætrunum, Eddu Melkorku og Unu Elísabetu.
Skokkar daglega og
syngur í Fílharmóníu
Harpa opnuð Einar Karl með kórfélögum sínum á kórpöllum í Eldborg.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.