Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 25
og fóruð með kökurnar til ömmu. Í einni kökuferðinni skilduð þið ekkert í því hvað þið þekktuð marga á leiðinni og allir veifuðu. „Þekkir þú þessa, Gréta?“ Það var ekki fyrr en þið lögðuð bíln- um og kakan skaust af þakinu að þið föttuðuð. Þessi saga lýsir þér svo vel. Allar stóru stundirnar í mínu lífi, Eyjólfs og fjölskyldu, þar varst þú. Gleði og sorgir í okkar lífi, þar varst þú. Styrkurinn, hlýjan og kær- leikurinn, stundum held ég að þú, mamma og Ásta frænka séu búnar til úr einhverju æðra en við hin. Þrátt fyrir að það sé mjög erf- itt að missa þig er ég samt ótrú- lega þakklát fyrir þig og allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína. Þú og mamma voruð eins og tvíburar. Dagný, Ingó, mamma og pabbi voruð eitt og allar mínar minningar eru þið fjögur. Við hin munum passa vel upp á þau. Elsku Ingó, Dísa og Raggi og fjölskyldur, mínar innilegar sam- úðarkveðjur og megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Margrét Friðriksdóttir. Í okkar huga er bara ein Dagný, yndisleg og kær vinur allra sem kynntust henni, vinur í sorg og gleði. Þú hafðir svo góða nærveru að þú hafðir áhrif á alla í kringum þig. Við hjónin, Dagný, Ingó, Gréta og Frikki, erum búin að eiga margar og eftirminnilegar stund- ir í gegnum árin, áttum saman hesthús og byggðum okkar bú- staði hlið við hlið í sveitasælunni okkar. Þar brölluðum við margt við uppeldi á börnum og barna- börnum græðlingum, hestum og nú auðvitað okkur sjálfum. Þær systur voru duglegar að gróðursetja og þar er myndarleg- ur skógur í dag. Það var svo ótrúlegt að þegar maður fór af bæ með Dagnýju var fólk endalaust að stoppa hana og knúsa og kyssa, það voru sjúk- lingar hennar af barnaspítalan- um, foreldrar eða ömmur og afar, allir elskuðu Dagnýju. Og ekki eru þeir ófáir plástr- arnir sem Dagný setti á barna- börnin okkar og ekki var verra að fá smá sögu um leið, þau elskuðu hana öll. Ég þakka Guði löngu liðinn dag sem lét mig eignast þig að ævivin. Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið með ilm og fegurð hresstu og glöddu mig. Og birtan sem þú breiddir yfir allt sló bjarma á lífið allt í kringum þig. Svo líða dagar, ár og ævitíð og ýmsum blikum slær á loftin blá. Í sorg og gleði alltaf varstu eins og enginn skuggi féll á þína brá. Svo brast á élið, langt og kólgukalt og krafan mikla um allt sem gjalda má. Og fljótið niðar enn sem áður fyrr og ennþá flúðin strýkur næman streng. Við blæþýtt ljóð, um blóm og sumaryl og bjarta kyrrð – í minningu um þig. (Oddný Kristjánsdóttir) Kæra vinkona, við þökkum þér samfylgdina þar sem hlátur, gleði og vinarkærleikurinn umvafði okkur. Minningin lifir Elsku Ingó, börn, tengdabörn og barnabörn og aðrir ástvinir, samúðarkveðjur. Þórný og Skafti. Á framhaldsskólaárunum varð til saumaklúbbur okkar tíu vin- kvennanna sem fékk nafnið SMA, við erum allar jafn gamlar og þar sem við vorum bara ung- lingar þá kynntumst við mæðrum hver annarrar vel. Við gengum flestar í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og þar sem Dísa dóttir Dagnýjar bjó handan götunnar í Austurberginu, vorum við flestar eins og heimalningar á heimili Dagnýjar og Ingólfs. Við vinkonurnar brölluðum mikið í gegnum árin og oftar en ekki var athvarf okkar í Austur- berginu. Dagný fylgdist vel með því sem við tókum upp á, án þess að gagn- rýna eða skipta sér mikið af, og oftar en ekki hló hún með okkur og tók þátt í gleðinni. Í minningunni var ekkert sem kom henni úr jafnvægi, ekki einu sinni þegar heill strætóbekkur var kominn í stofuna á fjórðu hæð, eftir eitt partíið en enginn man lengur hvernig hann komst þangað né hver kom með hann. Dagný var einstaklega hlý og brosmild manneskja. Á þessum mótunartíma sem framhaldsskóli er, var ómetanlegt að eiga jafn góða móðurímynd og hana að. Heimili hennar og sumarbústað- ur þeirra systra var ætíð opinn fyrir okkur og alltaf þegar við komum í heimsókn vorum við knúsaðar í kaf. Eins þegar Dagný og Ingó fóru í ferðalög innanlands þótti ekkert tiltökumál að bæta eins og einni „dóttur“ í hópinn. Dagný starfaði í áratugi á barnadeild Landspítalans og þar átti hún eftir að fylgjast með okk- ur áfram, þegar við fórum sjálfar að eignast börn og átti hún eftir að hlúa að nokkrum þeirra, hvort sem það var þegar þau voru ný- komin í heiminn eða eftir smáslys. Alúð hennar og hlýja var tak- markalaus. Við sendum fjölskyldu Dagnýj- ar okkar innilegustu samúðar- kveðjur um leið og við þökkum fyrir dásamlegar stundir í gegn- um árin. SMA, Annetta, Ásta, Aðalheiður (Heiða), Helena, Helga Margrét, Katrín, Sigurveig, Sesselja, Þuríður (Þurý). Í dag verður Dagný, góð vin- kona og vinnufélagi, borin til hinstu hvílu. Við kveðjum hana með miklum söknuði og á sama tíma þakklæti fyrir að hafa kynnst henni. Dagný var einstök kona. Hún umvafði samferðafólk sitt hlýju og umhyggju, sem náði bæði til samstarfsfólks og skjól- stæðinga Barnaspítala Hringsins. Það var alltaf gaman að vera í návist Dagnýjar hvort sem það var í vinnu eða utan vinnu. Hún hafði sterka kímnigáfu og gerði óspart grín að sjálfri sér. Þannig var hún þeim fágæta kosti gædd að geta snúið oft flóknum aðstæð- um upp í aðstæður þar sem hlut- irnir urðu auðveldir – allir vildu vinna með Dagnýju. Þær eru margar sögurnar úr lífi Dagnýjar sem eru ógleyman- legar. Eitt sinn hringdi hún á fæðing- ardeildina og sagði „Sæl, þetta er á barnadeildinni, ég vildi bara láta ykkur vita að það er storkur á svölunum hjá ykkur, hann virðist vera með eitthvað í kjaftinum. Eru þið ekki búnar að taka eftir honum?“ Sú sem svaraði í símann trúði Dagnýju að sjálfsögðu og eftir stutta stund fylgdumst við allar með þegar þær komu út á svalir til þess að finna storkinn. Seint að kvöldi fyrir örfáum ár- um voru Dagný og Ingó samferða hópi af hjónum heim eftir vel heppnað kvöld. Aprílgabb Dag- nýjar berst í tal og Ingó er spurð- ur hvort að þetta sé virkilega rétt. „Trúir þú henni virkilega í hvert sinn?“ Það stóð ekki á svari: „Ef konan mín er í vandræðum þá kem ég henni til bjargar. Sama hvaða dagur ársins það er.“ Þannig var þeirra samband. Ástin og hlýjan var aðdáunar- verð. Þau kenndu okkur öllum margt og voru fyrirmyndir á sviði kærleika og umhyggju. Elsku Ingó, við á bráðamót- töku barna vottum þér, börnun- um ykkar og öllum öðrum ást- vinum okkar innilegustu samúð. Minningin um Dagnýju okkar lifir. Fyrir hönd samstarfsfólks á Bráðamóttöku barna, Ingileif Sigfúsdóttir deildarstjóri. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018 25 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu LOK Á POTTA HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 Bátar      Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Tek að mér ýmis smærri verkefni fyrir jólin Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Félagslíf  EDDA 6018120419 II Raðauglýsingar Smáauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Aðalfundur Jarðefnaiðnaðar ehf. verður haldinn kl. 09.00 miðvikudaginn 12. desem- ber á skrifstofu félagsins, Nesbraut 1, Þorlákshöfn. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum. Reikningar félagsins liggja frammi á skrif- stofu þess. Stjórn Jarðefnaiðnaðar ehf. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi skipum verður háð á skrifstofu sýslumanns, Vatnsnesvegi 33, Keflavík: Bjarkartún 2, Garður, fnr. 228-9457, þingl. eig. Halldóra Margrét Magnúsdóttir og Shaun Roger Busch, gerðarbeiðendur Íbúðalána- sjóður og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 11. desember nk. kl. 09:25. Hlíðarvegur 78, Njarðvík, fnr. 209-3545, þingl. eig. Enok Holm Fann- dal, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 11. desem- ber nk. kl. 10:00. Kirkjuvegur 52, Keflavík, fnr. 208-9688, þingl. eig. Rafal Sobczak, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, þriðjudaginn 11. desember nk. kl. 09:00. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 28. nóvember 2018 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stóla jóga kl. 9.30. Safn- ferð á Kjarvalsstaði kl. 10. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Bíó í miðrými kl. 13.20. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu kl.11. Brids kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Tón-lei- kar Karlakórinn Kátir karlar kl. 14.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids og kanasta kl. 13. Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina. Hefðbundin dag- skrá. Jólalögin sungin með Arnhildi. Spilum, spjöllum og eigum ljúfa samveru saman. Allir eru velkomnir. Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9. Karlaleikfimi Ásgarði kl.12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Bónusrúta fer frá Jóns- húsi kl. 14.45. Tréskurður / smíði kl. 9 /13. í Kirkjuhvoli. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn- vægisæfingar, kl. 15 dans með Sigvalda. Grafarvogskirkja Í dag er opið hús í Grafarvogskirkju. Dagskráin byrjar með kyrrðarstund klukkan 12. Brauð og súpa í boði fyrir vægt gjald eftir stundina. Hilmar verður á sínum stað og spilar jólalög fyrir okkur. Við fáum heimsókn frá rithöfundi. Handavinna, spil og spjall er líka fyrir þau sem vilja og stundinni lýkur svo með kaffisopa klukkan 15. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin. Grensaskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Gullsmári Leshópurinn í Gullsmára: Í kvöld þriðjudaginn 4. desem- ber kynna Bryndís Björgvinsdóttir og Svala Ragnarsdóttir bók sína KROSSGÖTUR Álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi. Allir vel- komnir. Enginn aðgangseyrir. FEBK Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm- og silfur- smíði / kanasta kl. 13. Leshópur kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11. 500 kr. skiptið eða 1305 kr. mánuðurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30. útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður Hefjum daginn við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Blöðin liggja frammi, thai chi hefst kl. 9, myndlist hjá Margréti Z. kl. 9-12, leikfimi kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Spekingar og spaugarar með Ásdísi Skúla. kl. 10.30. Listasmiðja er öllum opin frá kl. 12.30, Kríur myndlistarhópur kl. 13, brids kl. 13, leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10, enska I kl. 13, kaffi kl. 14.30, U3A kl. 16.30. Uppl. í s. 411-2790. Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum. Botsía kl. 10 og kl. 16 í Borgum, Helgistund kl. 10.30 í Borgum. Leikfimishópur Korpúlfa kl. 11, í Egils- höll, sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug, Heimanámskennsla kl. 16.30. Minnum á jólabingó Korpúlfa á morgun kl. 13. Neskirkja Krossgötur kl. 13, Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikari og Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir fiðluleikari kynna og flytja sónötu eftir Beethoven. Kaffiveitingar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja / listasmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi á 2. hæð kl. 9.45, lesið úr blöðum kl. 10.15, bók-menn- tahópur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinenda kl. 13-16, samveru- stund með djákna kl. 14, kaffiúsaferð með starfsmanni kl. 14, botsía og leikir kl. 15.30. Uppl. sími 4112760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Lomber á Skólabraut kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Karla- kaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir. Aðventuhátíð félagsins fimmtudaginn 6. desember kl. 15.30, boðið verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur, Margrét Helga Kristjánsdóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Bjarni Karlsson, upplestur úr bókum og fl. ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Sr. Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 5. desember kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Húsið opnar kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Um er að ræða síðasta hádegisfund SES fyrir jól. Allir velkomnir. Stjórnin Vantar þig fagmann? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.