Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ísland mun veita 400.000 bandaríkja-
dali (49,2 milljónir ISK) á ári næstu
ár til sjóðs Alþjóðabankans sem styð-
ur við nýtingu
sjávarauðlinda.
ProBlue heitir
nýr sjóður um
sjálfbæra nýtingu
sjávarauðlinda og
bláa hagkerfið. Ís-
land gerðist stofn-
aðili að sjóðnum
fyrr í haust og
hefur skuldbundið
sig til að leggja í
hann fjármagn og mun utanríkis-
ráðuneytið veita árlega 200.000
bandaríkjadali í sjóðinn á tímabilinu
2018-2021. Sveinn H. Guðmarsson,
fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins, segir að fjármunum úr sjóðnum
verði varið til verkefna sem Alþjóða-
bankinn vinnur að í þróunarlöndum,
en bankinn vinnur einkum að
þróunarsamvinnu.
Starfsemi þessa nýja sjóðs skiptist
í fjögur meginsvið. Þau eru: 1. Bætt
fiskveiðistjórnun fyrir sjálfbæra nýt-
ingu sjávarauðlindarinnar. 2. Meng-
unarmál og plastmengun í hafi. 3.
Áhersla á að gera hefðbundna sjávar-
geira umhverfisvænni og stuðningur
við nýja atvinnustarfsemi. 4. Sam-
þætt nálgun á haf- og strandsvæðum
fyrir sjálfbæra þróun lífríkja hafsins,
að því er segir í tilkynningu frá ráðu-
neytinu.
Fiskveiðistjórn og mengun
Sjóðurinn ProFish, sem Ísland tók
áður þátt í varðandi fiskveiðimál hjá
Alþjóðabankanum, hefur verið sam-
einaður nýja ProBlue-sjóðnum. Ár-
legt 200.000 bandaríkjadala framlag
Íslands í ProFish-sjóðinn til ársins
2021 mun því renna til ProBlue-
sjóðsins með áherslu á það svið sem
snýr að bættri fiskveiðistjórnun. Ís-
land mun einnig styrkja verkefni sem
snýr að mengunarmálum í hafi. Sam-
tals mun Ísland því leggja fram
400.000 bandaríkjadali á ári til
ProBlue-sjóðsins til ársins 2021.
Aðild Íslands að sjóðnum er í sam-
ræmi við annað þeirra tveggja meg-
inmarkmiða sem sett eru fram í
þingsályktunartillögu um stefnu um
alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands
(2019-2023). Búist er við að þings-
ályktunartillagan verði lögð fyrir Al-
þingi á næstunni.
Bætt um-
gengni
við hafið
Ísland leggur til
sjóðs Alþjóðabankans
Sveinn H.
Guðmarsson
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við erum sveitungar Tryggva Ingólfssonar,
sem höfum horft á aðgerðarleysi sveitar-
stjórnar Rangárþings eystra úr fjarlægð.
Sveitarstjórnin hefði þurft að ganga mun
fyrr fram af meiri krafti í máli Tryggva. Við
höfum fengið nóg af því að ekkert hafi gerst
og þögninni í kringum hans mál,“ segir Ey-
rún María Guðmundsdóttir, íbúi í Rangár-
þingi eystra, sem stofnaði á föstudagskvöld
ásamt móður sinni, Erlu Hlöðversdóttur, og
Kristínu Ernu Leifsdóttur, sem einnig eru
sveitungar Tryggva, fésbókarhópinn „Stuðn-
ingssíða Tryggva Ingólfssonar“. Seinnipart-
inn í gær höfðu 1.870 lýst yfir stuðningi við
Tryggva og segir Eyrún ánægjulegt hversu
miklar undirtektir síðan hefur fengið
Morgunblaðið greindi frá því í lok apríl að
Tryggvi, sem lamaðist árið 2006, hefði að
lokinni aðgerð á Landspítalanum í vor ekki
fengið að snúa aftur á heimili sitt, hjúkrun-
arheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli, þar sem
hann hefur búið í 11 ár. Haft var eftir hjúkr-
unarforstjóra Kirkjuhvols í lok apríl að verið
væri að skoða mál Trygga og vinna í því að
tryggja öryggi hans. Í dag bíður Tryggvi
enn á Landspítalanum, fjarri fjölskyldunni.
„Ætlun okkar með hópnum er ekki að
stofna til leiðinda. Við höfum horft á þetta
mál utan frá og viljum að fólk stígi til baka
og reyni að brúa þá gjá sem myndast hefur
milli sveitarstjórnar og fjölskyldu Tryggva
og rjúfa þá þögn sem ríkt hefur í sveitar-
félaginu,“ segir Eyrún og bætir við að óvissu
fjölskyldunnar á Hvolsvelli verði að ljúka.
Vita ekki hvar fjölskyldan heldur jól
„Ég þekki ekki þá sem standa að baki
stuðningssíðunni fyrir pabba en það er gott
að finna hversu mikinn stuðning hann
hefur,“ segir Berglind Elva, dóttir Tryggva.
Hún segir engan vilja illindi en hún fylgi
eftir réttindum föður síns og þeim órétti
sem hann hefur verið beittur.
„Ég veit að það var ekki gert af illum
hug, ég ber ekki kala til neins,“ segir Berg-
lind.
Að sögn hennar dvelur faðir hennar enn á
Landspítalanum frá því í desember 2017.
Búið sé að tæma herbergi hans á Kirkju-
hvoli á Hvolsvelli. Á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands beið hans herbegi þar til hann
kæmist á hjúkrunarheimilið Lund á Hellu.
Sólarhring áður en kynningarfundur um
flutningana átti að fara fram í lok október
kom í ljós að ekki væri unnt að flytja föður
hennar á Selfoss fyrr en samningar tækjust
milli heilbrigðisráðuneytisins og Lundar.
Þegar þeir samningar séu í höfn geti hann
flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á með-
an unnið er að ráðningum fólks og undir-
búningi fyrir flutninginn á Lund.
„Nýjasta sem við heyrðum er að flytja
eigi pabba á Droplaugarstaði í Reykjavík.
Þremur vikum fyrir jól eru pabbi og fjöl-
skyldan í fullkominni óvissu um hvar fjöl-
skyldan geti sameinast um jólin,“ segir
Berglind.
Sveitungar Tryggva vilja aðgerðir
Tæp 1.900 styðja Tryggva Ingólfsson á Hvols-
velli Lundur á Hellu í boði ef samningar takast
Ljósmynd/Finnur Bjarki Tryggvason
Óvissa Tryggvi Ingólfsson hefur búið fjarri
fjölskyldu sinni síðan í desember 2017.
Hin svokallaða kranavísitala Vinnueftirlitsins hefur gjarnan þótt ágætis
mælikvarði á umfang framkvæmda hér á landi. Skoða þarf hvern bygg-
ingarkrana við uppsetningu og svo á árs fresti eftir það svo tölurnar gefa
nokkuð góða mynd af fjölda krana sem eru í notkun hverju sinni.
Í gær stóð kranavísitalan í 364 krönum í ár, sem er jafnmikið og hið
fræga framkvæmdaár 2007.
„Þetta er í sjálfu sér ánægjulegt því þetta bendir til mikillar starfsemi,
sem er grundvöllur velmegunar. Það sem við horfum hins vegar til er að
vinnuslysum í byggingar- og mannvirkjagerð, framkvæmdum opinberra
aðila og rafmagns- og hitaveitum hefur fækkað frá þessum tíma,“ segir á
vef Vinnueftirlitsins. 170 vinnuslys hafa verið skráð í ár en voru 659 árið
2007.
Morgunblaðið/Hari
Fjöldi byggingarkrana hér
á landi jafn metárinu 2007
Kranavísitalan í hæstu hæðum
Spölur hefur ákveðið að framlengja
skilafrest vegna veglykla og af-
sláttarmiða um hálfan mánuð, eða til
föstudagsins 14. desember. Áður
hafði verið ákveðið að lokadagurinn
yrði 30. nóvember.
Miklu var skilað í síðustu viku
nóvember og síðustu dagana fyrir
mánaðamót var ös á afgreiðslustöð-
um sem minnti á verslanir á Þorláks-
messu, segir í frétt á heimasíðu
Spalar. Fyrirtækið vill gjarnan sjá
fleiri skila og ná þannig í inneignir
sínar. Þess vegna er skilafresturinn
framlengdur.
Hins vegar verður afgreiðslustöð-
um fækkað. Tekið verður við veg-
lyklum og afsláttarmiðum fram til
14. desember hjá Olíudreifingu við
Hólmaslóð og á skrifstofu Spalar á
Akranesi. Hjá N1 í Ártúnshöfða
verður einungis tekið við veglyklum.
Samkvæmt upplýsingum Önnu
Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra
Spalar, var í nóvemberlok búið að
greiða 140 milljónir út af viðskipta-
reikningum af 231 miljón króna sem
viðskiptavinir áttu inni fyrir ónotað-
ar ferðir. Greitt hafði verið skila-
gjald fyrir um 69,5 miljónir eða rúm-
lega 23 þúsund veglykla
Greiddar höfðu verið 21,5 milljónir
fyrir afsláttarmiða sem eru rúmlega
34 þúsund miðar.
Þúsundir erinda bíða afgreiðslu og
afar ósennilegt að takist að afgreiða
þau öll fyrir jól, að mati starfsmanna
Spalar. sisi@mbl.is
Ösin eins og á
Þorláksmessu
Spölur framlengir skilafrestinn fyrir
veflykla og kort um hálfan mánuð
Morgunblaðið/Ernir
Hvalfjarðargöng Enn er hægt að
skila inn lyklum og afsláttarkortum.
Eimskip hefur birt auglýsingu þar
sem óskað er eftir umsóknum um
starf forstjóra félagsins, en nýverið
lét Gylfi Sigfússon af því starfi.
Sjaldgæft er að rótgróin stórfyrir-
tæki auglýsi forstjórastöður lausar
en þess eru þó einhver fordæmi.
Hagvangur sér um ráðningar-
ferlið fyrir Eimskip. Katrín S. Óla-
dóttir, framkvæmdastjóri Hag-
vangs, segir að við ráðningu sem
þessa sé hægt að fara margar leið-
ir. „Að þessu sinni var ákveðið að
hafa ferlið opið og faglegt. Gefa
sem flestum kost á að koma sér á
framfæri og tryggja á þann hátt að
hæfasti einstaklingurinn hljóti
starfið,“ segir Katrín.
Umsóknarfrestur um starfið er
til 16. desember nk. Skulu umsókn-
ir fylltar út á hagvangur.is og með
fylgi kynningarbréf og ítarleg fer-
ilskrá. Í auglýsingu um starfið segir
að umsækjendur þurfi að búa yfir
„framsýni og krafti til að leiða fyr-
irtækið áfram inn í framtíðina“.
Nýr forstjóri Eimskips þarf m.a.
að búa yfir háskólamenntun, hafa
ótvíræða leiðtoga- og stjórnunar-
hæfileika, vera heiðarlegur og með
traust orðspor. bjb@mbl.is
Eimskip auglýsir
eftir forstjóra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eimskip Félagið leitar að forstjóra.