Morgunblaðið - 04.12.2018, Qupperneq 16
FRÉTTASKÝRING
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Innan við sólarhring eftir að slitnaði
upp úr viðræðum um kaup Icelandair
Group á WOW air barst tilkynning
um að náðst hefði samkomulag milli
Skúla Mogensen, eiganda WOW air,
og bandaríska fjárfestingarfélagsins
Indigo Partners um að Indigo hygðist
fjárfesta í félaginu. Það yrði gert að
undangenginni áreiðanleikakönnun. Í
tilkynningunni var sérstaklega til-
greint að Skúli Mogensen yrði áfram
leiðandi hluthafi í félaginu (e. princi-
pal shareholder).
Ljóst má vera, bæði af þeim ástæð-
um sem gefnar voru upp fyrir við-
ræðuslitunum við Icelandair Group,
og einnig af bréfi sem Skúli sendi
þeim sem þátt tóku í skuldabréfaút-
boði WOW air í september, að félagið
er í brýnni þörf fyrir fjármagn. Aðrar
yfirlýsingar félagsins undirstrika
einnig að sú þörf er yfirvofandi og að
vinna þurfi hratt að því að tryggja fé-
laginu aukið fjármagn í formi láns-
eða aukins hlutafjár.
Má ekki eiga meirihluta
Á þessum tímapunkti liggur ekki
fyrir hvort af viðskiptunum verður
eða hver hlutdeild Indigo Partners
verður. Hins vegar er ljóst af þeim
lögum sem í gildi eru og varða flug-
rekstrarleyfi WOW air, að Indigo
Partners getur aldrei orðið meiri-
hlutaeigandi að félaginu, að minnsta
kosti ekki á meðan það er rekið á hinu
íslenska flugrekstrarleyfi.
Því ráða ákvæði í reglugerð Evr-
ópuþingsins og Evrópuráðsins „um
sameiginlegar reglur um flugþjón-
ustu í Bandalaginu“, eins og hún er
nefnd.
Í 4. gr. hennar, sem fjallar um skil-
yrði fyrir veitingu flugrekstrarleyfa
kemur fram að „aðildarríki og/eða rík-
isborgarar aðildarríkja eigi meira en
50% í fyrirtækinu og stjórni því í raun,
beint eða óbeint, fyrir tilstilli eins og
eða fleiri annarra fyrirtækja nema eins
og kveðið er á um í samkomulagi við
þriðja land sem Bandalagið er aðili að.“
Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá
Samgöngustofu um hvort heimilt væri
að víkja frá þessu skilyrði þegar kemur
að útgáfu flugrekstrarleyfa til fyrir-
tækja sem hyggjast stunda áætlunar-
flug milli landa.
„Ekki er að finna heimild í reglu-
gerðinni til þess að víkja frá því skil-
yrði né fordæmi fyrir slíku hjá Sam-
göngustofu. Við yfirferð gagna frá
umsækjanda flugrekstrarleyfis eða
tilkynningu um breytt eignarhald er
farið yfir öll skilyrði reglugerðar-
innar, þ. á m. um eignarhald,“ segir í
svari lögfræðings stofnunarinnar.
Þjóðerni eigenda flækist fyrir
Það er ekki aðeins meðal ríkja Evr-
ópu sem stífar reglur gilda um að
heimamenn ráði umtalsverðum hlut í
þeim fyrirtækjum sem byggja rekst-
ur sinn á útgefnum flugrekstrar-
leyfum í hverju landi.
Það sást t.d. í kjölfar þess að breska
fjárfestingafélagið Virgin Group, sem
stofnað var af Bretunum Sir Richard
Branson og Nik Powell, ákvað að
stofna dótturfélagið Virgin America
árið 2004. Það gekk ekki þrautalaust
að afla félaginu flugrekstrarleyfis í
Bandaríkjunum og stóðu samgöngu-
yfirvöld ítrekað í vegi fyrir að það
gæti gerst. Leyfið fékkst ekki fyrr en
yfirvöld höfðu fullvissað sig um að
eignarhaldið væri að 75% hluta inn-
lent, en þar í landi er erlent eignar-
hald á flugfélögum takmarkað við
fjórðungshlut. En í því tilviki stóð
fleira í yfirvöldum og þurfti Virgin
m.a. að skipta út einum af fram-
kvæmdastjórum fyrirtækisins sem
var af erlendum uppruna. Þá gerðu
stjórnvöld á einum tímapunkti kröfu
um að forstjóri félagsins, Fred Reid,
yrði látinn víkja. Hann er reyndar
Bandaríkjamaður en stjórnvöld ótt-
uðust að hann uppfyllti ekki skilyrðin
um aðkomu erlendra ríkisborgara þar
sem Richard Branson hafði valið
hann til starfa. Frá þeirri kröfu hurfu
stjórnvöld á einum tímapunkti og fé-
lagið fékk flugrekstrarleyfið. Að lok-
um náðist lausn um að hann hyrfi frá
félaginu árið 2008.
Flugrekstrarleyfi bundin
skilyrði um íslenskt eignarhald
Morgunblaðið/Eggert
50% Lögum samkvæmt þurfa Skúli Mogensen og eftir atvikum aðrir íslenskir fjárfestar að eiga meirihluta í WOW.
Tilkynnt var fyrir helgi að Indigo Partners hygðist fjárfesta í WOW air
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
TWIN LIGHT RÚLLUGRDÍNA
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
Fullkomin birtustjórnun
– frá myrkun til útsýnis
4. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.36 122.94 122.65
Sterlingspund 155.98 156.74 156.36
Kanadadalur 91.85 92.39 92.12
Dönsk króna 18.625 18.733 18.679
Norsk króna 14.275 14.359 14.317
Sænsk króna 13.454 13.532 13.493
Svissn. franki 122.72 123.4 123.06
Japanskt jen 1.0771 1.0835 1.0803
SDR 169.11 170.11 169.61
Evra 139.01 139.79 139.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.436
Hrávöruverð
Gull 1220.45 ($/únsa)
Ál 1934.5 ($/tonn) LME
Hráolía 59.28 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Heildarviðskipti með hlutabréf í
Kauphöll Íslands í nóvember síðast-
liðnum námu 60 milljörðum króna sem
er 53% hækkun frá fyrri mánuði. Þetta
kemur fram í viðskiptayfirliti Kaup-
hallarinnar. Einnig segir þar að við-
skiptin í mánuðinum hafi verið 25%
meiri en á sama tíma á síðasta ári.
Mest viðskipti voru með bréf Ice-
landair Group, eða 9,6 milljarðar, þar á
eftir kom Marel með 9,4 milljarða við-
skipti og Festi var með þriðju mestu
viðskiptin, eða 5,4 milljarða króna.
Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um
0,5% á milli mánaða og stendur nú í
1.631 stigi.
Í viðskiptayfirlitinu kemur einnig
fram að í lok nóvember hafi hlutabréf
23 félaga verið skráð á Aðalmarkaði og
Nasdaq First North á Íslandi.
Heildarviðskipti með skuldabréf í
Kauphöllinni námu 150,1 milljarði í
mánuðinum, sem er 50% hækkun frá
fyrri mánuði, og 14% hækkun frá fyrra
ári.
53% aukning í hluta-
bréfaviðskiptum
STUTT
Tíu einstaklingar bjóða sig fram til
stjórnarsætanna fimm sem kosið
verður um á hluthafafundi VÍS föstu-
daginn 14. desember næstkomandi.
Boðað var til fundarins að kröfu Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins og
Lífeyrissjóðs verslunarmanna í kjöl-
far þess að tveir stjórnarmenn sögðu
sig frá trúnaðarstörfum á vettvangi
félagsins í tengslum við trúnaðar-
brest sem kom upp, m.a. í tengslum
við verkaskiptingu stjórnarinnar.
Allir núverandi stjórnarmenn fé-
lagsins bjóða sig fram til áframhald-
andi starfa. Það eru þau Valdimar
Svavarsson stjórnarformaður,
Gestur Breiðfjörð Gestsson varafor-
maður og Svanhildur Nanna Vigfús-
dóttir meðstjórnandi. Þá bjóða sig
einnig fram til aðalstjórnar báðir nú-
verandi varamenn stjórnarinnar,
þau Sveinn Friðrik Sveinsson og
Ólöf Hildur Pálsdóttir.
Aðrir frambjóðendur eru Elvar
Árni Lund, framkvæmdastjóri Íspól-
ar ehf., Hlynur Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri xp Iceland ehf., Magn-
ús Jónsson, framkvæmdastjóri
Aktor ehf., Marta Guðrún Blöndal,
yfirlögfræðingur ORF líftækni, og
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskól-
ans á Bifröst.Tilnefningarnefnd mun
nú fara yfir framboðin og leggja
fram rökstudda niðurstöðu sína um
heppilegustu samsetningu stjórnar-
innar. Svanhildur Nanna Vigfúsdótt-
ir átti sæti í nefndinni en sagði sig úr
henni 30. nóvember þar sem hún er
sjálf í framboði. Í nefndinni á m.a.
sæti Helga Hlín Hákonardóttir, sem
sagði sig úr stjórninni í október. Með
henni sitja þrír nefndarmenn. Þeir
hafa allir tengingu við félagið Óska-
bein ehf. sem m.a. er í eigu Gests
Breiðfjörð Gestssonar. ses@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnarkjör Átök hafa einkennt
starfsemi stjórnar VÍS síðustu árin.
10 takast á um 5
stjórnarsæti í VÍS
Svanhildur
Nanna segir sig úr
tilnefningarnefnd