Morgunblaðið - 04.12.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum umáhættuog aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is
Ibuprofen Bril
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
Á hreint brilliant verði!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
400mg töflur - 30 stk og 50 stk
Helsinki. AFP. | Hvað á að gefa þjóð,
sem sett hefur heimsmet í læsi, í
hundrað ára afmælisgjöf? Í huga
stjórnmálamanna og almennings í
Finnlandi var svarið einfalt: gríðar-
stórt hágæðabókasafn, sem búið er
nýjustu tækni, eða nýja „dagstofu
fyrir þjóðina“ eins og það hefur verið
kallað.
Bókasafnið verður opnað á morg-
un, á síðasta degi hátíðarhalda í til-
efni þess að öld er liðin frá því að
Finnland lýsti yfir sjálfstæði frá
Rússlandi 6. desember 1917. Undir-
búningur byggingarinnar hófst fyrir
tuttugu árum. Hún er úr viði og gleri
og var reist á eftirsóttri lóð í miðborg
Helsinki, gegnt þinghúsinu.
Finnska fyrirtækið ALA Archi-
tects hannaði bókasafnið sem þykir
mjög ólíkt þinghúsinu, tilkomumikilli
byggingu úr graníti sem gefur henni
ábúðarmikinn og þungbúinn svip.
Bókasafnið er hins vegar úr finnsku
greni og þykir mýkra og vinalegra
ásýndum.
Hús bókmennta og tækni
Bókasafnið hefur verið nefnt Oodi,
eða „óður“ á íslensku, og á að vera
óður til þekkingar, lærdóms og jöfn-
uðar í landi sem er í efsta sæti á lista
yfir þau lönd þar sem hlutfall læsra
er hæst samkvæmt skýrslu sem birt
var árið 2016.
Síðustu daga hafa verkamenn
keppst við að ljúka frágangi bygg-
ingarinnar að utan áður en hún verð-
ur opnuð formlega. Uppsetning
viðarklæðningarinnar reyndist vera
erfiðari í vetrarkuldanum í Helsinki
en gert hafði verið ráð fyrir. Frá-
ganginum inni í húsinu er hins vegar
lokið að mestu.
Í byggingunni verða 100.000 bæk-
ur en einnig hljóðver fyrir tónlistar-
menn, myndver fyrir myndbands-
upptökur, kvikmyndasalur og
vinnustöðvar með þrívíddarprentara
og tæki til að hanna og framleiða
muni með geislaskurði. Almenningur
fær ókeypis aðgang að allri þessari
aðstöðu.
Í byggingunni verður einnig
gestamiðstöð sem Evrópusambandið
fjármagnar. Þar verða veittar upp-
lýsingar um starfsemi sambandsins
og áhrif hennar á daglegt líf íbúanna.
„Oodi gefur okkur nýja og nútíma-
lega mynd af því hvað það er að vera
bókasafn,“ segir Tommi Laitio, sem
hefur yfirumsjón með menningar- og
frístundastarfi á vegum Helsinki-
borgar. „Þetta er hús bókmennta, en
líka hús tækni, hús tónlistar, hús
kvikmynda, hús Evrópusambands-
ins. Og ég tel að allt þetta sameini
hugmyndina um von og framfarir.“
Á meðal tækjanna í bókasafninu
eru litlir, gráir róbótar, eða sjálf-
akandi vagnar sem geta notað lyftur
og farið um bókasafnið án þess að
rekast á fólk eða veggi. Róbótarnir
eiga að flytja bækur, sem skilað er,
frá neðstu hæð hússins í réttan bóka-
skáp. Starfsmenn sjá síðan um setja
bækurnar á hillurnar. Skipuleggj-
endur Oodi telja að þetta sé í fyrsta
skipti sem róbótar eða sjálfakandi
vagnar eru notaðir á bókasafni fyrir
almenning.
Hvattir til að hafa hátt
Gert er ráð fyrir að dag hvern
komi um 10.000 manns í safnið. Þeir
sem vilja lesa í ró og næði geta verið í
sérstökum lestrarsölum en á öðrum
stöðum er ekki gerð krafa um þögn,
ólíkt mörgum öðrum bókasöfnum.
Reyndar eru gestir jafnvel hvattir til
að hafa hátt og hlæja dátt á „nörda-
lofti“ byggingarinnar þar sem fólk á
öllum aldri er hvatt til að koma sam-
an og fullnægja sköpunarþörf sinni.
Gestir geta notað tæki í vinnustof-
unum til að hanna og búa til muni,
fengið hljóðfæri að láni eða notað
leikjatölvur. „Við erum alltaf tilbúin
að ræða við gestina og starfsfólkið
um hvers konar hegðun sé æskileg
hérna en þetta er svo sannarlega
staður fyrir hávaða og hvers konar
tiltæki sem andinn blæs gestunum í
brjóst,“ sagði Katri Vänttinen, sem
stjórnar bókasöfnum Helsinki-
borgar.
Hún kvaðst vera sérstaklega stolt
af þeirri ákvörðun yfirmanna safns-
ins að aðskilja ekki barnabókadeild-
ina frá öðrum bókadeildum. Bæk-
urnar eru allar á efstu hæðinni sem
er 50 metra löng, með glerveggjum
undir báróttu þaki sem minnir á ský.
„Okkur finnst að hljóðin sem börnin
koma með sér séu af hinu góða, við
heyrum í framtíðinni og njótum þess
að barnabækurnar og bækurnar fyr-
ir fullorðna fólkið eru á sömu hæð-
inni án veggja á milli þeirra,“ sagði
Vänttinen. „Byggingin hefur verið
hönnuð mjög vel hvað hljómburð
varðar, þótt fólk hrópi í öðrum end-
anum heyrist það varla í hinum end-
anum.“
Byggingin kostaði 98 milljónir
evra, jafnvirði tæpra fjórtán millj-
arða króna. Laito segir að þótt dreg-
ið hafi verið úr þjónustu bókasafna í
mörgum öðrum löndum sé mikill
stuðningur meðal Finna við nýja
bókasafnið, enda meti þeir þjónustu
safnanna mikils.
Gáfu sér hágæða-
bókasafn á afmælinu
Óður til þekkingar opnaður á 100 ára sjálfstæðisafmæli
AFP
Oodi Nýja bókasafnið í Helsinki verður opnað daginn fyrir þjóðhátíðardag
Finna. Þá lýkur hátíðahöldum í tilefni af 100 ára sjálfstæðisafmæli þeirra.
Óður til þekkingar, lærdóms og jöfnuðar Róbótar, eða sjálfakandi vagnar,
verða notaðir til að flytja bækur að réttum hillum eftir að þeim er skilað.
Mikil óvissa er enn um hvort við-
skiptadeilur Bandaríkjanna og Kína
leysist á næstu þremur mánuðum
eins og stefnt er að samkvæmt sam-
komulagi sem forsetar landanna náðu
í Buenos Aires á laugardaginn var.
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, og Xi Jinping, forseti Kína,
samþykktu þá að fresta því að leggja
á nýja tolla meðan reynt verður að
leysa deilurnar. Bandaríkjastjórn
segir að náist ekki samomulag innan
90 daga ætli hún að hækka tolla á kín-
verskan varning að andvirði 200 millj-
arða dala úr 10% upp í 25%. Tolla-
hækkunin átti að taka gildi í byrjun
næsta árs.
Trump skýrði frá því á Twitter í
fyrrakvöld að Kínverjar hefðu sam-
þykkt að „lækka og afnema tolla“ á
innflutta bíla frá Bandaríkjunum, en
hann útskýrði það ekki frekar. Kín-
versk stjórnvöld höfðu ekki staðfest
þetta í gær og ekki kom fram hvenær
lækka ætti tollana.
Kínverjar lækkuðu tolla á innflutta
bíla úr 25% í 15% í júlí. Nokkrum dög-
um síðar svöruðu þeir verndartollum
Trumps á kínverskan varning með
því að hækka tolla á innflutta bíla frá
Bandaríkjunum í 40%. Mörg banda-
rísk fyrirtæki smíða bíla sína fyrir
markaðinn í Kína en tollahækkunin
varð til þess að sala á bílum sem fram-
leiddir eru í Bandaríkjunum minnk-
aði, m.a. rafbílum Tesla, lúxusbílum
BMW og bílum Ford.
Trump gekk í „gildru“
Hermt er að Kínverjar hafi lofað að
veita bandarískum fyrirtækjum auk-
inn aðgang að kínverska markaðnum
og sagt það lið í markmiðum þeirra
um að koma á auknu viðskiptafrelsi.
Fréttaskýrandi The Wall Street
Journal segir að stjórnvöld í Kína hafi
áður gefið slík loforð án þess að
standa við þau vegna andstöðu þeirra
sem hafa hag af óbreyttu ástandi,
þeirra á meðal kínverskra ríkisfyrir-
tækja. Blaðið hefur eftir bandaríska
hagfræðingnum Peter Morici að
Trump hafi „gengið í sömu gildru“ og
forverar hans í forsetaembættinu í
viðræðunum við Kínverja með því að
trúa kínverskum stjórnvöldum þegar
þau dragi lappirnar með innantómum
loforðum.
Fréttaskýrendur segja fátt benda
til þess að erfiðustu deilumál ríkjanna
verði leyst á næstu mánuðum, m.a.
um verndun hugverkaréttinda,
gagnastuld og afnám tæknilegra við-
skiptahindrana. „Menn ættu ekki að
vera með neina óskhyggju um að
vopnahléið bindi enda á viðskipta-
stríðið milli tveggja mestu efnahags-
velda heims,“ hefur fréttavefur
breska ríkisútvarpsins eftir Philip
Wee, sérfræðingi DBS-bankans í
gjaldeyrismálum.
David Dollar, sérfræðingur í kín-
verskum efnahagsmálum, telur að
framhald viðskiptastríðsins ráðist af
því hvort hagvöxturinn í Bandaríkj-
unum minnki á næstu mánuðum. Fari
svo sé mjög ólíklegt að Trump leggi
frekari verndartolla á kínverskan
varning. Viðskiptastríðið geti hins
vegar magnast ef efnahagur Banda-
ríkjanna styrkist og samningaviðræð-
urnar ganga illa. bogi@mbl.is
Tollar sem hafa tekið gildi, eru ráðgerðir eða hefur verið hótað
Tollar í Bandaríkjunum á
kínverskar vörur
FrestaðÍ gildi
Tollastríð Bandaríkjanna og Kína
Tollar í Kína á bandarískan varning
Tóku
gildi
fyrr á
árinu
Tóku
gildi
24.
september
Viðbótartollar sem
Donald Trump
hafði hótað
Kínverjar samþykktu
einnig að lækka
tolla á bandaríska
bíla, að sögn
Trumps
Tóku
gildi
fyrr á
árinu
Tóku
gildi
24.
sept.
50* 200 267
50 60
Áttu að hækka í
25% 1. janúar nk.
10% tollar
25% tollar
*Verðmæti varnings sem tollarnir
eru lagðir á, í milljörðum dollara
Donald Trump og
Xi Jinping náðu samkomulagi
um að hækka ekki tolla
næstu þrjá mánuði
Óvissa um hvort
deilurnar leysist
Sérfræðingar vara við óskhyggju