Morgunblaðið - 04.12.2018, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
✝ BenediktGabríel
Valgarður Gunn-
arsson, listmálari
og fyrrum dósent í
myndlist við KHÍ,
fæddist 14. júlí 1929
á Suðureyri við
Súgandafjörð.
Hann lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 22. nóv-
ember 2018.
Foreldrar Benedikts voru
Gunnar Halldórsson verka-
maður, f. 1898, d. 1964, og Sig-
rún Benediktsdóttir húsmóðir, f.
1891, d. 1982.
Systkini Benedikts eru Hall-
dór Ágúst, húsvörður, f. 1921, d.
1997; Jóhanna, húsmóðir, f. 1922;
Elí, málarameistari og listmálari,
f. 1923, d. 1997; Steinþór Marinó,
málarameistari og listmálari, f.
1925; Veturliði, listmálari, f.
1926, d. 2004; Guðbjartur, kenn-
ari, f. 1928; Gunnar Kristinn,
fyrrv. útibússtjóri og landsliðs-
maður í knattspyrnu og skák, f.
1933. Hálfsystkini, sammæðra:
Anna Sólveig Veturliðadóttir
húsmóðir, f. 1911, d. 1980; Helga
Veturliðadóttir, f. 1912, d. 1915;
Jón Veturliðason matreiðslu-
meistari, f. 1914, d. 1999; Helga
Jóhannesdóttir húsmóðir, f.
1915, d. 1941.
við Kennaraháskóla Íslands frá
1965. Kenndi myndlist við Lista-
félag MR 1965-1966 og Lista-
félag VR 1985-1987.
Benedikt hélt á þriðja tug
einkasýninga hérlendis og eina í
París. Hann tók þátt í tuttugu og
þremur samsýningum víða um
heim, m.a. á öllum Norðurlönd-
unum, Þýskalandi, Frakklandi,
Ítalíu, Rússlandi, Kanada,
Bandaríkjunum, Bretlandi og í
Ástralíu og fjölda samsýninga á
Íslandi.
Málverk eftir Benedikt eru
m.a. í Listasafni Íslands, Lista-
safni Kópavogs, bæjarlistasöfn-
um og í einkasöfnum og stofn-
unum. Verk í erlendum söfnum,
m.a. í Kanada, Bandaríkjunum,
Sviss, Þýskalandi, Mexíkó, Kól-
umbíu, Danmörku, Svíþjóð og í
Ísrael.
Hann hefur gert veggmyndir
og steinda glugga í nokkrar
opinberar byggingar hérlendis,
s.s. í Grunnskólann á Hofsósi og
Vík í Mýrdal, í Héraðsskólann að
Skógum, Keflavíkurkirkju, Há-
bæjarkirkju í Þykkvabæ, Fá-
skrúðarbakkakirkju, Suður-
eyrarkirkju og í Háteigskirkju.
Benedikt sat í stjórn FÍM, í
stjórn Norræna listbandalagsins
1958-60 og í sýningarnefnd FÍM
1965-72. Var prófdómari við
MHÍ 1975-77. Myndskreytti og
gerði kápur á fjölda bóka og
tímarita, m.a. listtímaritið Birt-
ing. Heiðurslistamaður Kópa-
vogs 2002.
Útför Benedikts fer fram frá
Háteigskirkju í dag, 4. desember
2018, klukkan 15.
Benedikt kvænt-
ist 16.8. 1959 Ásdísi
Óskarsdóttur
hjúkrunarfræðingi,
f. 8.6. 1933, d. 13.3.
2016. Hún var dóttir
Óskars Jónssonar,
skrifstofu- og alþm.,
f. 1899, d. 1969, og
Katrínar Ingibergs-
dóttur húsmóður, f.
1908, d. 2004.
Benedikt og Ás-
dís eignuðust tvö börn. 1) Val-
gerður, vinnur við bókaútgáfu, f.
1965, maki Grímur Björnsson
jarðeðlisfræðingur, f. 1960. Börn
þeirra eru Gunnar og Sóley. 2)
Gunnar Óskar, f. 1968, d. 1984.
Benedikt stundaði nám við
Handíða- og myndlistarskólann í
Reykjavík 1945-48, við Listahá-
skólann í Kaupmannahöfn og
teikniskóla P. Rostrup Bøyesens
á Statens museum for kunst í
Kaupmannahöfn 1948-50, var við
nám í París 1950-53, m.a. við
Académie de la Grande Chau-
miére, og í Madríd 1953-54.
Myndlistarkennarapróf frá
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands 1964.
Kennari við Myndlistarskóla
Vestmannaeyja 1958-59, Gagn-
fræðaskólann við Lindargötu í
Reykjavík 1960-62, Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1959-68 og
Ég bjó svo vel að eiga afa og
ömmu í næstu götu. Heimsóknir
til þeirra voru fastur hluti af dag-
legu lífi og alltaf tóku þau vel á
móti mér. Þarna var um einstak-
lega góðhjartað fólk að ræða sem
ég elskaði af öllum mínum lífs- og
sálarkröftum. Ég áttaði mig
snemma á forréttindunum sem
fólust í að eiga þau að – slíkt er
alls ekki sjálfgefið. Ekkert varir
að eilífu. Dag einn myndi ég ekki
eiga þau að. Þetta viðhorf varð til
þess að ég leit alltaf til baka á
leið minni heim frá þeim. Ég varð
að sjá þau einu sinni enn. Það
merkilega var að í hvert einasta
skipti sem ég leit við sá ég afa
standa úti við handriðið. Hann
stóð brosandi, veifaði og horfði á
eftir mér ganga á brott. Svona
voru allar okkar kveðjustundir.
Dag einn í framtíðinni mun ég
stofna mína eigin fjölskyldu. Þá
mun ég standa á pallinum fyrir
framan sumarbústaðinn í Vík í
Mýrdal, þar sem áður var ómál-
aður strigi en er nú iðandi af
rauðu lyngi, grænu grasi og
bláum blómum. Ég mun halla
mér fram á handriðið og fylgjast
með henni leika sér á sólríkum
júlímorgni. Hún mun setjast nið-
ur hjá lækjarseytlunni og rifja
upp söguna af því þegar nafna
hennar hitti unga, óvenjulega
listamanninn skammt frá Skóga-
fossi. Hún mun hlusta á lögin
sem fuglarnir sungu þegar þau
giftu sig á Spönginni. Ferðalög
þeirra um þá fallegu, fjölbreyttu,
hrjóstrugu en viðkvæmu reiki-
stjörnu leynast handan sjón-
deildarhringsins og munu fylla
hana ævintýraþrá. Hún mun fara
á söfn þar sem óendanlegur
sköpunarkraftur langafa Valla
tekur blíðlega á móti henni. Hún
mun læra að þrátt fyrir erfið-
leika, sorg og mótlæti eigi alltaf
að taka lífinu af bjartsýni, æðru-
leysi og umhyggju gagnvart
þeim sem minna mega sín. Hún
mun læra að hlæja og gráta og
elska og treysta, standa óhrædd
við skoðanir sínar og leggja sitt
af mörkum við að gera jörðina að
örlítið betri stað handa öllu því
sem á henni býr.
Þakka þér fyrir að hjálpa mér
að dafna og þroskast, elsku afi
minn. Takk fyrir að horfa á eftir
mér ganga út á lífsins braut.
Takk fyrir að draga fram litina á
öllu því sem þú snertir. Ég sé
núna að kveðjustundir okkar
forðum voru einungis undanfarar
þess að við hittumst aftur. En nú
hefur þó orðið sú breyting að þú
stendur ekki lengur við handrið-
ið. Í stað þess stendur þú eilífa
vakt við hliðina á öllum þeim
góðu lífsins gildum sem þið
amma kennduð mér og ég mun
ávallt sækja aftur heim. Bless afi.
Sjáumst. Komdu sæll. Það er
gott að eiga þig alltaf að. Komdu,
ég ætla að sýna þér hvað lífið er
fallegt.
Gunnar Grímsson.
Elsku afi minn.
Takk fyrir að hafa verið besti
vinur minn, kennari um lífið og
dásamlegur ferðafélagi um allan
heim. Takk fyrir að hafa hlegið
með mér á hverjum degi og
kennt mér að brosa framan í lífið,
og takk fyrir að hafa getað talað
við mig um allt og ekkert, hvar
og hvenær sem er. Takk fyrir all-
ar stundirnar inni í vinnustofu
þar sem þú kenndir mér að
teikna, kenndir mér allt um hlut-
föll, kolavinnu og litafræði. Takk
fyrir að hafa verið minn mesti
stuðningsmaður. Takk fyrir að
hafa verið yndislegur, góður og
skemmtilegur. Takk fyrir allt.
Ég elska þig.
Þín
Sóley Grímsdóttir.
Hönd er stirð, og hjartað slær ei meir.
Harpan þögnuð, brostinn strengur
hver.
Í týndan grafreit lík mitt lögðu þeir.
Ljóð mitt skildi ég eftir handa þér.
Úr fortíðinni, minni gleymdu gröf,
af gulum blöðum flýgur kveðja mín
á vængjum tímans yfir aldahöf,
og einhvern tíma kemur hún til þín.
(Gunnar Dal)
Anna og Baldur.
Ég hef sennilega verið 10 ára
þegar ég fór á námskeið með vin-
konum mínum í Handíða- og
myndlistarskólanum. Við mætt-
um glaðbeittar og hávaðasamar
beint úr Kópavogsstrætó og
stormuðum upp á 4. hæð í Skip-
holtinu. Grannvaxinn og fölleitur
maður tók alúðlega á móti okkur.
Á svipstundu dró hann okkur úr
skarkala heimsins inn í framandi
ævintýraveröld. Við sátum í hópi
í kringum hann í rökkvaðri stof-
unni þar sem hann með litlu log-
andi kerti hóf kennsluna með því
að sýna okkur samspil ljóss og
skugga. Röddin var svo þýð og
hljómfögur, augun svo brún og
blíð og við, undurstillt og hug-
fangin, sátum heilluð.
Þetta voru fyrstu kynni mín af
Benedikt og alltaf átti hann eftir
að hafa sömu áhrif á mig þegar
ég hitti hann. Hann fór hægar en
aðrir, sá lengra, skynjaði betur,
talaði meira og einhvern veginn
hægði tíminn á sér í návist hans.
Leiðir okkar hafa legið saman á
Kársnesinu í meira en hálfa öld.
Þegar við sömu vinkonurnar
gengum ári síðar yfir kirkjuholt-
ið eftir fyrsta klarínetttímann í
Skólahljómsveit Kópavogs kom
hann svífandi út úr hálfbyggðu
húsi í Kastalagerði og fékk að
skoða þessi fínu hljóðfæri. Við
undirleik steypuhrærivélar og
hamarshögga lékum við fyrir
þennan áhugasama áheyranda
Góða mamma í moll, enda vorum
við ekki búnar að læra h.
Oft átti þessi einlægi áhugi
hans eftir að vekja mér áræði og
þor og alltaf var jafn gefandi að
syngja eða spila fyrir Benedikt.
Hann og Ásdís urðu aðdáendur
barnakóranna í Kársnesskóla og
eftir að börnin mín litu dagsins
ljós fengu þau einnig að kynnast
elskusemi þeirra. Kisurnar okk-
ar, Picasso og Stravinsky, komu
úr Kastalagerðinu og það gerðu
líka alls konar ljósmyndir, af-
mæliskort, teikningar, úrklippur
og fallegar hugrenningar sem
hann færði okkur á gleðistund-
um. Og líka þegar á mæddi.
Okkur lærðist fjölskyldunni að
stilla okkur inn á nýja vídd þegar
við hittum hann á förnum vegi
eða þegar hann kom óvænt í
heimsókn. Þá var enginn að drífa
sig neitt, enginn að flýta sér,
haska sér eða hespa hlutina af. Á
augabragði svifu þær samrýndu
systur tónlistin og myndlistin um
sálartetrið og okkur fannst við
alltaf svolítið betri manneskjur
þegar hann var farinn.
Benedikt varð hluti af tilver-
unni okkar á Kársnesinu. Ekkert
var því eðlilegra en að Grímur,
bróðir minn, og Valgerður, dóttir
hans, skyldu síðar falla kylliflöt
hvort fyrir öðru á kóræfingu hjá
Dómkórnum og við tengdumst
loksins alvörufjölskylduböndum.
Það gustaði meira um litlu fjöl-
skylduna í holtinu við að tengjast
stórfjölskyldunni á Kópavogs-
brautinni. Ekki síst eftir að
Gunnar og Sóley höfðu bæst í
hópinn og Jón frændi, æringi
vestan af fjörðum, sá um óvænt
skemmtiatriði í jólaboðum og
fjölskylduhátíðum. Mikið lifandis
skelfing var gaman að heyra þau
Benedikt og Ásdísi hlæja. Alltaf
allt svo græskulaust og gott í
kringum þessi sómahjón.
Mikið á ég eftir að sakna
þeirra. Guð blessi minningu
Benedikts og Ásdísar og styrki
Valgerði mína, Grím, Gunnar og
Sóleyju.
Þórunn Björnsdóttir.
Benedikt Gunnarsson listmál-
ari var gagnmenntaður og skap-
andi myndlistarmaður, hugsuður
og hugsjónamaður, fagurkeri og
frábær kennari.
Benedikt starfaði samhliða
listsköpun sinni sem myndlistar-
og myndmenntarkennari við
Myndlistarskóla Vestmannaeyja,
Gagnfræðaskólann við Lindar-
götu í Reykjavík, Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og víðar á
sjötta, sjöunda, áttunda og ní-
unda áratug síðustu aldar. Þá
kenndi hann verðandi kennurum
í Kennaraskóla Íslands myndlist
og myndmennt í ríflega áratug
áður en þeim skóla var formlega
breytt með lögum frá Alþingi í
kennaraháskóla árið 1971. Bene-
dikt var ráðinn lektor í myndlist
og myndmennt við nýlega stofn-
aðan Kennaraháskóla Íslands og
varð dósent við Kennaraháskól-
ann frá 1998.
Benedikt var ótrúlega mikil-
virkur myndlistarmaður en lagði
jafnframt mikla alúð og vand-
virkni í allt sem hann gerði. Mál-
verk eftir hann eru í mörgum
opinberum söfnum og stofnunum
og í eigu fjölda einstaklinga.
Ennfremur eru verk hans í er-
lendum söfnum víða um heim. Þá
gerði hann stórar veggmyndir og
steinda glugga í skóla og kirkjur,
t.d. í Háteigskirkju í Reykjavík,
Fáskrúðarbakkakirkju á Snæ-
fellsnesi og Suðureyrarkirkju.
Benedikt var í hópi þeirra
kennara við Kennaraháskóla Ís-
lands sem unnu að því að efla
grunn- og endurmenntun grunn-
skólakennara á áttunda og ní-
unda áratugnum og færa hana
formlega á háskólastig. Fyrir
1971, þegar Kennaraháskóli Ís-
lands var stofnaður á grunni hins
gamla Kennaraskóla sem hafði
starfað frá 1908, var aðeins einn
háskóli í landinu – Háskóli Ís-
lands. Það var ögrandi verkefni
að endurskoða kennaranámið og
byggja það upp að hluta til á nýj-
um grunni, efla rannsóknir í upp-
eldis- og menntunarfræðum og
öllum kennslugreinum grunn-
skólans. Ekki síst var þetta
krefjandi verkefni á sviðum list-
og verkgreina, eins og t.d. í
myndmennt, tónmennt og hand-
mennt, þar sem minna var um
fyrirmyndir hér á landi en á svið-
um náttúruvísinda, hugvísinda
og félagsvísinda. Þar starfaði
Benedikt í hópi annarra frum-
kvöðla sem lögðu grunninn að
sérmenntun þeirra kennaranema
sem stefndu á kennslustörf í list-
og verkgreinum í grunnskólum
landsins.
Benedikt kenndi ekki nem-
endum sínum einungis vinnu-
brögð og vandvirkni. Hann var
sjálfur gagnrýninn hugsuður
sem hafði einstakt lag á að fá
nemendur sína til að sjá sam-
hengi hugmynda og hluta í leit að
kjarnanum.
Kennaraháskóli Íslands og
Háskóli Íslands voru sameinaðir
fyrir tíu árum – árið 2008 – og
myndaði Kennaraháskólinn þá
kjarnann í menntavísindasviði –
einu af fimm fræðasviðum hins
sameinaða Háskóla Íslands.
Við sem kynntumst Benedikt
Gunnarssyni á vettvangi kenn-
aramenntunar innan Kennarahá-
skóla Íslands, bæði nemendur og
samstarfsfólk, minnumst hans
með virðingu og hlýhug.
Ólafur Proppé,
fyrrverandi rektor
Kennaraháskóla Íslands.
Tvær gamlar konur ættaðar
af Snæfellsnesi leiddu lista-
manninn Benedikt Gunnarsson
inn í Fáskrúðarbakkakirkju í
Miklaholtshreppi fyrir tæpum
aldarfjórðungi. Erindið var að
biðja hann um að gera steinda
glugga í kirkjuna við veginn en
þær ætluðu að gefa þá til minn-
ingar um foreldra sína og tvo
látna bræður. Benedikt gekk inn
í kirkjuna með miklum eftir-
væntingarsvip og skoðaði sig
um. Settist á einn bekkinn og
horfði vökulum og viðkvæmum
augum á altaristöfluna sem
geymir minni af atburði frá
þorpinu Emmaus en þar mættu
tveir lærisveina Jesú honum
upprisnum. Á stall altaristöfl-
unnar er letraður texti úr guð-
spjalli Lúkasar, kafla 24.29:
„Vertu hjá okkur því að kvölda
tekur og degi hallar.“ Hann sat
lengi og íhugaði, stóð upp og
horfði hátt og lágt um kirkjuna
alla. Fór upp í turn og velti fyrir
sér litlum hringlaga glugga. Í
engu fór hann sér óðslega held-
ur gekk um gólf hægum og ró-
legum skrefum. Eins og hann
væri að draga að sér anda þess-
arar sveitakirkju við þjóðbraut-
ina.
Síðan hófst hann handa og
kom nokkrum sinnum vestur til
að kynna hugmyndir sínar og
ræða við fólk. Það var mikill
skóli að kynnast honum. Hann
sagði nákvæmlega frá hug-
myndum sínum og tók marga
eftirminnilega listasögulega
spretti. Röddin var mjúk og
hógvær, hann grannur og virk-
aði á stundum sem afskaplega
brothættur. Hver gluggi – en
alls eru þeir fjórtán – var þaul-
hugsaður með fornum og sígild-
um táknum kristninnar með
sterkar skírskotanir til helstu
atburða í sögu hennar. Litir
valdir af miklu listfengi og
næmni. Glerið sömuleiðis valið
af mikilli kostgæfni. Hann var
hvort tveggja í senn hraðvirkur
og velvirkur og bar ómælda
virðingu fyrir andlegum verð-
mætum kristninnar og lista-
verkum þeim sem prýða guðs-
húsin. Sagði gjarnan að enginn
spyrði um hve langan tíma verk-
ið hefði tekið þegar það væri
komið í hús.
Nú er ævikvöldið liðið í lífi
þessa einstaka listamanns og
hann genginn á fund síns upp-
risna meistara sem lærisvein-
arnir tveir mættu forðum daga í
þorpinu Emmaus.
Það er við hæfi að benda þeim
sem aka vestur um Snæfellsnes
á að staldra við í Fáskrúðar-
bakkakirkju, gjarnan á sólbjört-
um degi, og fá að skoða list-
gluggana góðu sem prýða
kirkjuna. Þar er og hægt að lesa
sér til um hvern og einn glugga.
Þegar horft er til kirkjulegra
listaverka hans má segja að ekki
sé ofmælt að hann hafi verið einn
fremsti kirkjulistamaður lands-
ins.
Eina fegurstu og stórfengleg-
ustu altaristöflu landsins er að
finna í Háteigskirkju, mósaík-
mynd með dulúðugri og trúar-
legri dýpt. Frá þeirri fögru
kirkju verður hann kvaddur und-
ir meistarastykki sínu.
Ég minnist Benedikts Gunn-
arssonar með virðingu og þökk.
Guð blessi minningu hans.
Hreinn S. Hákonarson.
Benedikt Gunnarsson var
mikill listamaður, það er augljóst
af verkum hans sem eru á al-
mannafæri, en hann var líka mik-
ill listamaður í lífi sínu.
Hann var einstakt ljúfmenni
og umgekkst samferðamenn sína
þannig að þeir fengu notið sín.
Prúðmennska hans, tillitssemi og
ósvikinn áhugi og virðing skóp
þetta sérstæða andrúmsloft í ná-
vist Benedikts, maður fór alltaf
glaðari og jákvæðari af hans
fundi.
Hann hafði af miklu að miðla,
vestfirskur þorpsdrengur úr
stórum systkinahópi, hafði farið
víða um heim til mennta, til
Kaupmannahafnar, Parísar og
Madrid og enn víðar til fjöl-
margra samsýninga. Öll þessi
lífsreynsla mótaði skoðanir hans
og lífsviðhorf og sérstaklega naut
hann sín í samfélagi við sína fal-
legu og gáfuðu konu, Ásdísi
Óskarsdóttur.
Hún lést fyrir tveimur árum
og var öllum harmdauði, en þá
var Benedikt þegar tekinn að
berjast við þann sjúkdóm sem
dró hann sjálfan til dauða.
Við hjónin höfðum mest sam-
skipti við Ásdísi og Benedikt á
Skálholtsárum okkar um síðustu
aldamót.
Þau kunnu vel að meta kyrrð
og helgi staðarins, enda þau list-
form þar ráðandi sem hann hafði
sinnt sérstaklega, steindir
gluggar og stórar veggmyndir.
Þau tóku líka virkan þátt í helgi-
haldi staðarins og dagskrá og
auðguðu okkur með hlýrri nær-
veru og uppbyggjandi um-
ræðum.
Í dag er Benedikt svo kvaddur
í Háteigskirkju þar sem list hans
umvefur og auðgar alla sem
þangað koma, byggð á þeirri
djúpu kristnu trú sem honum var
innrætt vestur í Súgandafirði og
þroskaðist við víðfeðma lífs-
reynslu hans.
Við þökkum þau forréttindi að
hafa átt vináttu Benedikts og fel-
um hann góðum Guði sem leiddi
hann um lífið allt.
Bernharður Guðmundsson
Rannveig Sigurbjörnsdóttir.
Benedikt
Gunnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
FJÓLA EGGERTSDÓTTIR,
Ásbraut 2, Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Hvammstanga, laugardaginn 1. desember.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigga, Bára, Hanna og Dísa
Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur
og frændi,
ÞÓRÐUR ALBERT GUÐMUNDSSON
yfirflugvirki,
sem lést á Landspítalanum laugardaginn
24. nóvember, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. desember
klukkan 13.
Þórdís Þórðardóttir
Guðmundur Albertsson Áslaug Traustadóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir Hermann Jónsson
Guðrún Helga Magnúsdóttir Steinar Þór Þorfinnsson