Morgunblaðið - 04.12.2018, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
„Við Antonía Hevesi píanóleikari
vorum að velta fyrir okkur hvaða
„Ave Mariu“ við ættum að flytja, en
þær eru svo margar og skemmtilegar
að við ákváðum að bjóða upp á fjórar
mismunandi,“ segir Dísella Lárus-
dóttir sópransöngkona um efnis-
skrána á hádegistónleikum sem þær
stöllur halda í Hafnarborg í dag
klukkan 12. Yfirskrift tónleikanna
þurfti ekki að vera flókin, Maríur og
fleiri.
„Síðan tökum við „Quando m’en
vo“ úr La bohème eftir Puccini og
endum á jóla-jólalagi, „The Christ-
mas Song“,“ heldur Dísella áfram og
syngur fyrstu laglínuna, „Chestnuts
roasting on an open fire“, og spyr
hvort lagið hljómi ekki kunnuglega.
Og það er alveg rétt, sumir gætu
meira að segja þegar í stað tekið
undir næstu laglínur: „Jack Frost
nipping at your nose/Yuletide carols
being sung by a choir/And folks
dressed up like Eskimos.“
Syngur í Metropolitan-óperunni
Aðventan er gengin í garð og að
venju mun andi jólanna svífa fyrir
vötnum á tónleikunum í Hafnarborg,
síðustu hádegistónleikunum á árinu.
Antonía hefur frá upphafi verið list-
rænn stjórnandi þeirra og valið með
sér marga af fremstu söngvurum
landsins. „Tónleikunum er ætlað að
lyfta fólki upp í skammdeginu,“ segir
Dísella.
Hún hefur víða komið fram sem
einsöngvari, m.a. í Carnegie Hall í
New York, Disney Hall í Los Angeles
og á fjölda tónlistarhátíða í Banda-
ríkjunum. Nýlega þreytti hún frum-
raun sína á sviði utan Íslands í Evr-
ópu þegar hún fór með hlutverk Lulu
í samnefndri óperu eftir Alban Berg í
óperunni í Róm á Ítalíu.
Það er ekki alveg sjálfgefið að
sópransöngkonan geti notið jóla-
hátíðarinnar heima á Íslandi í faðmi
eiginmanns og sona, sem eru þriggja
og átta ára. Hún er á ferð og flugi ár-
ið um kring til að syngja í helstu
óperuhúsum og tónlistarhátíðum
heims. Aðallega liggur leið hennar þó
til New York, þar sem hún hefur
sungið í Metropolitan-óperunni
mörgum sinnum á ári allar götur frá
því hún fyrst kom þar fram árið 2011.
„Ég var með fastráðningu á árunum
2013 og 2014. Síðan þá fer ég mis-
munandi oft á ári til að taka þátt í
óperuverkum. Núna er ég nýkomin
þaðan, fer aftur út í mars til að
syngja í óperunni „La Clemenza di
Tito“ eftir Mozart og síðan í haust, en
þá verð ég í hlutverki Queen Tye í
óperunni Akhnaten eftir Philip Glass.
Í millitíðinni syng ég í nýrri óperu
eftir Silvia Colasanti á tveggja mán-
aða tónlistarhátíð í Spoleto á Ítalíu,“
nefnir Dísella sem dæmi um næstu
verkefni í útlöndum.
Í gær söng hún á tvennum jóla-
tónleikum Fíladelfíu og eftir hádegis-
tónleikana í dag eru aðeins nokkrir
klukkutímar þar til hún syngur á öðr-
um tvennum hjá þeim sömu. „Svo
ætlum við systurnar, ég, Þórunn og
Ingibjörg, að troða upp og syngja vel
valin jólalög fyrir tónleikagesti í
Salnum í Kópavogi hinn 15. desem-
ber.“
Heima um jólin
Síðasta hlutverk Dísellu í Metro-
politan-óperunni var í nútímaóper-
unni Marnie eftir bandaríska tón-
skáldið Nico Muhly. Íslendingum
gafst kostur á að sjá uppfærsluna í
beinni útsendingu frá Metropolitan í
Sambíóinu í Kringlunni í liðnum
mánuði. „Gríðarlega skemmtilegt
verk, sem byggist á sögu eftir Win-
ston Graham og Alfred Hitchcock
gerði samnefnda kvikmynd eftir.
Mér fannst stórkostlegt að kynnast
tónskáldinu, sem var á staðnum, en
við í klassíska bransanum fáum af
augljósum ástæðum ekki oft að upp-
lifa slíkt. Marnie var sjónræn veisla
sem höfðaði til margra og var mjög
vel tekið. Isabel Leonard söng titil-
hlutverkið en sjálf var ég skuggi
Marnie, sem speglaði mismunandi
tíma og raddir í kollinum á henni.“
Dísella þurfti að vera óvenju lengi
fjarri strákunum sínum og eigin-
manni þegar Marnie var sett á fjal-
irnar því æfinga- og sýningatímabilið
stóð yfir í níu vikur. Áður fyrr tók
hún gjarnan eldri son sinn með sér í
vinnuna, en eftir að hann hóf nám í
grunnskóla segir hún synina annað
slagið heimsækja sig þegar hún er að
vinna í útlöndum. „Mér finnst dásam-
legt að fá að vera heima um jólin,
setja upp jólatréð, baka svolítið og
slaka á með fjölskyldunni,“ segir hún.
Jólaleg upplyfting í hádeginu
Dísella Lárusdóttir sópransöngkona kemur fram á hádegistónleikum í
Hafnarborg í dag ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara og listrænum stjórnanda
Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir
Í jólaskapi Antonía Hevesi og Dísella Lárusdóttir verða í sannkölluðu jólaskapi á hádegistónleikunum í dag.
Hin nýja hljómplata Víkings Heið-
ars Ólafssonar píanóleikara með
verkum eftir Johann Sebastian
Bach, sem Deutsche Grammophon
gaf út, er plata mánaðarins hjá tón-
listartímariti BBC í Bretlandi. Fær
útgáfan þar fimm stjörnur, er sögð
framúrskarandi og segir gagnrýn-
andinn Michael Church plötuna
„opna dyrnar að nýjum mögu-
leikum“ fyrir tónlist hins merka
tónskálds.
Gagnrýnandinn segir að eftir að
hafa heyrt til Víkings Heiðars á
tónleikum og hrifist af hafi hann
búist við því að platan væri góð en
hversu góð hún reyndist hafi komið
á óvart. Þá er hann afar ánægður
með skrif píanóleikarans sem fylgja
útgáfunni úr hlaði, þar sem hann
útskýrir afstöðu sína til verkanna
og leiðina sem hann hefur kosið að
fara að þeim.
Church segir að sú markvissa
blanda þekktra umritana á verkum
Bachs, prelúdía, partíta og varía-
sjónanna BWV 989, sem sé eins-
konar hryggjarstykki plötunnar,
láti plötuna hljóma eins og eins-
konar performans; sem hrífandi
tónlistarlegt flæði. Öll verkin séu
áhugaverð og flutningur margra
meistaralegur, segir rýnirinn.
Plata Víkings Heiðars hefur hlot-
ið afar lofsamlega dóma víða og
iðulega fullt hús stiga eða stjarna.
Rýnir Politiken í Danmörku var þó
ekki alveg svo hrifinn og gaf fjögur
hjörtu af sex mögulegum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Víkingur Heiðar Rýnir tímarits
BBC dásamar túlkun hans á Bach.
Valin plata
mánaðarins
Plata Víkings
Heiðars lofuð hjá BBC
Hópur virtra bandarískra lista-
manna úr ólíkum listgreinum tók á
sunnudag á móti hinum kunnu
menningarverðlaunum stjórnvalda
vestanhafs sem kennd eru við Kenn-
edy-listamiðstöðina í Washington-
borg. Þetta var í 41. skipti sem verð-
launin voru afhent.
Verðlaunahafar að þessu sinni
voru söng- og leikkonan Cher, tón-
skáldið og píanóleikarinn Philip
Glass, sveitasöngkonan Reba
McEntire og djasssaxófónleikarinn
og tónskáldið Wayne Shorter. Þá
voru sérstök heiðursverðlaun veitt
höfundum hins umtalaða og vinsæla
söngleiks Hamilton, höfundinum og
leikaranum Lin-Manuel Miranda,
leikstjóranum Thomas Kail, dans-
höfundinum Andy Blankenbuehler
og tónlistarstjóranum Alex Laca-
moire. Verðlaunin voru veitt þeim
sem brautryðjendum með mikilvægt
verk sem erfitt væri að fella í ein-
hvern ákveðinn flokk. Við athöfnina
flutti Miranda lagið One Last Time
úr söngleiknum.
Hefð er fyrir því að forseti Banda-
ríkjanna sé viðstaddur afhendingu
viðurkenninganna en til þess er tek-
ið í fjölmiðlum að Donald Trump hafi
hvorki mætt nú né í fyrra.
Glass, Cher og Shorter
meðal hinna heiðruðu
AFP
Lukkulegir Fjórmenningarnir að baki söngleiknum Hamilton voru kátir;
danshöfundurinn Andy Blankenbuehler, tónskáldið Lin-Manuel Miranda,
leikstjórinn Thomas Kail og tónlistarstjórinn Alex Lacamoire.