Morgunblaðið - 04.12.2018, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Widows, Ekkjur, fellur íflokk þeirra kvik-mynda sem segja afþaulskipulögðum stór-
ránum, „heist“ eins og þau heita á
ensku, ránum sem eru svo flókin og
áhættusöm að allar líkur eru á að
þau misheppnist og að illa fari fyrir
glæpamönnunum. En hún er
óvenjuleg sem slík og fylgir um
margt ekki formúlunni því Ekkjur
er líka saga af spilltum stjórnmála-
mönnum, stéttaskiptingu, sorg, kyn-
þáttahatri og fleiru. Þeir sem búast
við hreinræktaðri „heist“-mynd á
borð við Ocean’s Eleven verða mjög
líklega fyrir vonbrigðum því hér er
mun meira púðri eytt í flest annað
en spennu og hasar. Hvort það er
gott eða slæmt er auðvitað smekks-
atriði.
Ekkjur er fjórða kvikmynd enska
leikstjórans Steve McQueen sem á
að baki mikinn fjölda stuttmynda en
var framan af þekktur sem mynd-
listarmaður og hlaut sem slíkur
ensku Turner-verðlaunin. Þykjast
margir gagnrýnendur sjá hand-
bragð eða sýn myndlistarmanns í
kvikmyndum hans og eflaust er eitt-
hvað til í því, mikið lagt upp úr sjón-
ræna þættinum og kvikmyndatakan
í Ekkjum er athyglisverð og oft
óvenjuleg. Má til að mynda nefna at-
riði þar sem spilltur stjórnmálamað-
ur, leikinn af Colin Farrell, sest upp
í bíl með aðstoðarmanni sínum og
keyrir að loknum útifundi í fátæk-
legu hverfi Chicago, borgarinnar
sem er sögusvið myndarinnar, yfir í
yfirstéttarhverfi þar sem hann býr í
glæsihýsi. Á leiðinni hellir hann úr
skálum reiði sinnar eftir ágengar
spurningar blaðamanns og allan
tímann hvílir myndavélin á skyggðri
framrúðu bílsins þannig að persón-
urnar sem eru að tala sjást ekki, að-
eins umhverfið sem bæði speglast í
rúðunni og sést til hliðar við bílinn.
Þannig fær áhorfandinn bæði að sjá
hið breiða bil milli ríkra og fátækra í
borginni og hugarheim hins ógeð-
fellda stjórnmálamanns sem er al-
gjör ljúflingur frammi fyrir kjós-
endum en lætur allt flakka þegar
enginn heyrir til hans nema aðstoð-
armaðurinn og bílstjórinn.
Kvikmyndin byrjar með látum.
Liam Neeson og Viola Davis, sem
leika glæpamanninn Harry og eigin-
konu hans Veronicu, liggja uppi í
rúmi í undarlega táningalegu kossa-
flensi. Harry bregður á leik, urrar
og þykist ætla að bíta Veronicu.
Brestur þá óvænt á með miklu has-
aratriði, glæpamenn í sendibíl á
hröðum flótta undan laganna vörð-
um, greinilegt að þeir hafa framið
rán en flóttinn ekki tekist sem
skyldi. Inn í þetta æsilega atriði
fléttast kynning á glæpamönnunum
og eiginkonum þeirra. Þessi byrjun
er bráðsnjöll, persónur kynntar
stuttlega til leiks en með þeim hætti
að maður áttar sig strax á sambönd-
um hjónanna. Frekari lýsingar
óþarfar.
Flóttinn endar með því að ræn-
ingjarnir, fjórir talsins, láta allir lífið
og skilja eftir sig eiginkonurnar
Veronicu (Davis), Lindu (Rodrig-
uez), Alice (Debicki) og Amöndu
(Coon). Fljótlega kemur í ljós að
glæpagengið, leitt af Harry, rændi
tveimur milljónum dollara af fyrr-
verandi dópsala, Jamal Manning
(Henry), sem hefur snúið við blaðinu
og er nú í framboði til borgarráðs.
Manning er ekkert lamb að leika sér
við og hans hægri hönd er bróðir
hans, Jatemme (Kaluuya), sem vílar
ekki fyrir sér að limlesta menn og
myrða. Jamal heimsækir Veronicu
og tilkynnir henni að vegna ránsins
skuldi hún honum tvær milljónir
dollara og gefur henni mánuð til að
greiða peninginn, annars verði hún
drepin. Veronica finnur í öryggis-
hólfi dagbók sem Harry hélt yfir öll
sín rán og ránsáætlanir og í stað
þess að selja bókina, líkt og henni
býðst, ákveður hún að framkvæma
rán eftir lýsingu í bókinni. Hún fer á
fund hinna ekknanna og fær þær til
liðs við sig. Ein þeirra fær hins veg-
ar ekki að vita af ráninu þar sem
hún er með nýfætt barn.
Víkur þá sögunni að fyrrnefndum
spilltum stjórnmálamanni, Jack
Mulligan (Farrell), sem er aðal-
keppinautur dópsalans fyrrverandi,
Manning, og er einnig í framboði til
borgarráðs í sama hverfi. Þeir elda
grátt silfur en hvers vegna þessi
persóna er fyrirferðarmikil í sög-
unni kemur í ljós síðar. Betra að
fara ekki nánar út í þá sálma því
ýmislegt óvænt kemur upp úr kaf-
inu. Mulligan er sonur vellauðugs og
spillts stjórnmálamanns, Tom Mul-
ligan, sem er þar að auki kynþátta-
hatari. Duvall fer mikinn í því hlut-
verki.
Nú kann mörgum að þykja full-
mikið sagt um söguþráð myndarinn-
ar en ég get fullvissað lesendur um
að margt er enn ósagt. Líkt og fyrri
myndir McQueen, að 12 Years a
Slave undanskilinni, hans bestu
mynd, er þessi býsna hæg og það
kemur niður á spennunni. Ekkj-
urnar eru allar í vanda staddar, í
fjárhagskröggum og meta ástandið
svo að þær verði hreinlega að
fremja þetta rán. Það kemur á óvart
hversu lítill hluti myndarinnar fer í
skipulagningu ránsins og undirbún-
ing og eiginlega furðulegt hversu
svellkaldar ekkjurnar eiga að vera
og harðsvíraðar. Þegar loksins kem-
ur að ráninu, eftir langa bið, er það
vissulega spennandi og vel útfært
en alltof stutt. Og eftirmálin sömu-
leiðis, án þess að farið verði nánar
út í þau, þau eru fullhratt afgreidd.
Þá þótti mér sagan einnig flækt
heldur mikið með óþörfum útúr-
dúrum og fléttum, hliðarsögum sem
þjóna litlum tilgangi og lengja bið-
ina eftir uppgjörinu.
McQueen virðist vilja forðast
formúluna í lengstu lög, ,,heist“-
formúluna góðu, með aukalögum af
dramatík og spillingu. Nálgunin er
raunsæisleg og því heldur ótrúlegt
að ekkjurnar taki þessa ákvörðun
eftir frekar litla umhugsun, að
fremja stórrán sem gæti leitt til
þess að þeim yrði öllum stungið í
steininn eða þær drepnar. Þegar við
bætist svo flóttabílstjóri, spretthörð
hárgreiðslukona sem er ekki ekkja
eins ræningjanna heldur barnfóstra
einnar þeirra, fer trúverðugleikinn
eiginlega út um gluggann.
Margt er þó gott við Ekkjur.
Leikarar standa sig allir með prýði,
sérstaklega Davis og Debicki, en
mismikið er lagt í persónusköpunina
og sumar persónur eru heldur
klisjukenndar, sérstaklega vondu
karlarnir. Reyndar eru allir karlar
myndarinnar vondir og allar kon-
urnar góðar (nema kannski ein).
Farrell er þaulvanur að leika skít-
hæla og Duvall sömuleiðis, fátt nýtt
þar á ferð en heldur þykja mér þess-
ir leikarar ólíklegir feðgar, svona út-
litslega séð. Af öllum vondu körlun-
um er Kaluuya eftirminnilegastur í
hlutverki hrikalegs sadista. Mynda-
takan er glæsileg og oft óvenjuleg,
mikið um nærmyndir, óvenjuleg
sjónarhorn og speglanir og hljóðið
er líka flott og svo kraftmikið stund-
um að manni bregður við.
McQueen er mikill listamaður,
það verður ekki af honum tekið og í
raun merkilegt að hann hafi fært sig
yfir í þennan afþreyingarflokk,
stórránsmyndina, sem hingað til
hefur ekki þótt mjög „artí“. Með
þessu stækkar hann eflaust áhorf-
enda- og aðdáendahóp sinn en hrá-
efnin í kökunni eru aðeins of mörg.
Pólitík, kynþáttahatur, sorg, ofbeldi,
glæpir, stéttaskipting (mögulega er
ég að gleyma einhverju í uppskrift-
inni), öllu er þessu hrært saman.
Ekkjur er 129 mínútur að lengd
og maður finnur fyrir lengdinni í
seinni hlutanum. Gjarnan hefði mátt
stytta myndina um 20-30 mínútur til
að auka spennu og eyða meira púðri
í undirbúning ránsins í stað fyrr-
nefndra hliðarsagna og útúrdúra.
Stundum er formúla betri en frum-
legheit.
Drama á kostnað spennu og hasars
Hörkutól Viola Davis og Cynthia Erivo í Widows, nýjustu kvikmynd leikstjórans Steve McQueen.
Háskólabíó, Borgarbíó, Smára-
bíó og Sambíó Kringlunni
Widows/Ekkjur bbbnn
Leikstjórn: Steve McQueen. Handrit:
Steve McQueen, Gillian Flynn. Aðalleik-
arar: Viola Davis, Michelle Rodriguez,
Elizabeth Debicki, Cynthia Erivo, Colin
Farrell, Brian Tyree Henry, Daniel Kaluu-
ya, Jacki Weaver, Carrie Coon, Robert
Duvall og Liam Neeson. Bretland og
Bandaríkin, 2018. 129 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Ralph Breaks the Internet Ný Ný
Creed 2 Ný Ný
Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald 1 3
The Grinch 2 4
Bohemian Rhapsody 3 5
A Star Is Born (2018) 4 9
Widows 5 2
Plagi Breslau (Plagues of Breslau) Ný Ný
Overlord 9 4
The Nutcracker and the Four Realms 6 5
Bíólistinn 30 .nóvember–2. desember 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Tekjuhæsta kvikmynd bíóhúsanna um liðna helgi var teiknimyndin Ralph
rústar internetinu, framhald teiknimyndar sem naut mikilla vinsælda fyrir
nokkrum árum. Miðasölutekjur námu um 5,7 milljónum króna. Næst-
tekjuhæst var hnefaleikamyndin Creed 2 með um 3,1 milljón króna en hún
er óbeint framhald kvikmyndanna um Rocky.
Bíóaðsókn helgarinnar
Teiknimynd á toppnum
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn
stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
Með þér í liði
Alfreð Finnbogason
Landsliðsmaðu attspyrnu
„Tækifærið er núna.“
r í kn
Registered trademark
licensed by Bioiberica
ICQC 2018-20