Morgunblaðið - 04.12.2018, Page 36
Enzymedica býður uppá öflugustu
meltingarensímin á markaðnum en
einungis eitt hylki með máltíð getur
öllu breytt.
Betri melting – betri líðan
● Ensím eru nauðsynleg fyrir
meltingu og öll efnaskipti líkamans.
● Betri melting, meiri orka, betri líðan!
● 100% vegan hylki.
● Digest Basic hentar fyrir börn
Gleðilega
meltingu
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
Lúðrasveit Reykja-
víkur heldur stór-
tónleika til heið-
urs Páli Pampich-
ler Pálssyni, sem
varð níræður fyrr
á árinu, í Kalda-
lóni í Hörpu í
kvöld kl. 20 undir
stjórn Lárusar
Halldórs Gríms-
sonar. Á tónleikunum verða ein-
göngu flutt tónverk og útsetningar
eftir Pál Pampichler. Hann var ráð-
inn til Íslands sem stjórnandi
Lúðrasveitar Reykjavíkur 1949 og
gegndi þeirri stöðu í 24 ár. Hann
var 1. trompetleikari hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands frá stofnun og
til 1960. Eftir Pál liggja fjölmargar
tónsmíðar.
Páli Pampichler níræð-
um fagnað með tónum
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 338. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Valur vann sinn sterkasta sigur á
leiktíðinni til þessa er liðið lagði
Hauka, 26:24, á heimavelli í Ol-
ísdeild karla í handbolta í gær-
kvöldi. Með sigrinum fór Valur upp í
16 stig og upp að hlið Hauka og Sel-
foss í toppsætinu. FH er þar á eftir,
með stigi minna. Toppbaráttan er
því æsispennandi þegar deildar-
keppnin er hálfnuð. »3
Sterkur sigur hjá
Val gegn Haukum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Nú sjáum við fram á að fá að
keppa um sæti á HM. Það hefur
afar jákvæð og hvetjandi áhrif á
kvennahandboltann þegar lands-
liðinu gengur vel og það sér fram
á að við getum hugsanlega komist
inn á stórmót eins og við gerðum
þrjú ár í röð, 2010, 2011 og 2012.
Að ná árangri og brjóta ísinn eins
og við gerðum í gær ýtir undir
áhugann. Á því leikur enginn
vafi,“ segir Arna Sif
Pálsdóttir, reyndasti
leikmaður íslenska
kvennalandsliðs-
ins sem
komst í
umspil
HM um helgina á
ævintýralegan
hátt. »1
Hefur afar jákvæð
og hvetjandi áhrif
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég hef alltaf verið áhugasamur um
matreiðslu og vann á kaffihúsum
með námi um helgar og á sumrin. Ég
fór í háskólanám í heimspeki þegar
ég bjó í Belgíu en matreiðslan kallaði
á mig, þannig að ég hætti í heim-
spekinni og hóf kokkanám,“ segir
Daníel Rittweger, 24 ára kokkur,
sem nýverið vann silfurverðlaun í
ungliðakokkalandskeppni í Þýska-
landi. Daníel hefur búið í Lettlandi,
Þýskalandi, Japan, Belgíu og á Ís-
landi með föður sínum, Peter Ritt-
weger, þýskum diplómat, og móður,
Svanhvíti Valgeirsdóttur listakonu.
Eftir að hafa unnið silfurverðlaunin í
Þýskalandi flutti Daníel til Íslands
og starfar nú í Veisluþjónustu Múla-
kaffis.
„Ég lærði á Michelin-veitinga-
staðnum Hotel Louis Jacob í Ham-
borg hjá sjónvarpskokkinum Tomas
Martine og vann í eitt ár á Michelin-
veitingastað í Belgíu hjá Thierry
Theys, sem einnig er sjónvarps-
kokkur. Í ungliðakokkalandskeppn-
inni fá bestu nemendur Þýskalands
að keppa. Að vinna silfrið segir mér
að það hafi verið rétt ákvörðun að
læra kokkinn,“ segir Daníel og bætir
við að það sé mikil áskorun að taka
þátt í slíkri keppni. Í stað þess að
skipuleggja í marga daga eða vikur
hvernig matseðillinn á að líta út þurfi
á einum degi að vinna allt hráefni frá
grunni í frekar einföldu eldhúsi.
Ný áskorun á hverjum degi
Daníel segir starfið í veisluþjón-
ustu Múlakaffis gefa sér tækifæri til
að vinna við fjölmennar veislur en
líka fámennari þar sem hann fái
meira að ráða matseðlinum.
„Það besta við kokkastarfið er að
það eru engir tveir dagar eins. Alltaf
eitthvað nýtt að fást við; nýr matseð-
ill, nýir réttir, öðruvísi gestir. Fólk
spáir meira í það hvað það borðar og
það er áskorun fólgin í því að búa til
veganrétti og glúteinfría rétti, nota
lífrænt hráefni og hráefni úr nær-
umhverfinu. Það er mikil gerjun í
gangi í matreiðslunni,“ segir Daníel,
sem finnst vinna um helgar og á há-
tíðisdögum galli við kokkastarfið en
það venjist og það sé ákveðin stemn-
ing að gleðja gesti með góðum mat á
hátíðarstundum.
Daníel á sér þann draum í framtíð-
inni að opna veitingastað. Í fyrstu
hafi draumurinn snúist um veitinga-
stað með „geggjaða“ hamborgara en
nú snúist hann meira um fínni mat-
seðil.
Þegar Daníel á frí spilar hann á
básúnu en hann hefur bæði spilað
með Ungfó, Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins, og Belgíska básúnu-
kórnum.
Kokkur Daníel Rittweger tekur við verðlaunum úr hendi Andreas Beckers, forseta þýska kokkalandssambandsins.
Silfurverðlaun ungliða-
kokka í Þýskalandi
Daníel Rittweger lærði kokkinn og vann á Michelin-stöðum
Páll Pampichler
Pálsson