Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 1
Bátur sem fannst á botni Þingvallavatns í haust
hefur verið aldursgreindur og er talið að hann sé
frá 16. öld eða tæplega 500 ára gamall. Erlendur
Bogason, kafari og ljósmyndari, fann bátinn á 4-5
metra dýpi í Vatnsvikinu þegar hann var að
mynda fyrir Náttúruminjasafn Íslands. „Sam-
kvæmt aldursgreiningu er um að ræða elsta báts-
flak sem þekkt er hér á landi,“ segir Hilmar J.
Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns-
ins. Miðað við 95% líkur er báturinn frá tíma-
bilinu 1482-1646 samkvæmt kolefnisgreiningu.
Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur hefur
haft umsjón með frumathugun á bátnum, en fleiri
sérfræðingar og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum
hafa komið að málinu. Tilskilinna leyfa var aflað
og báturinn myndaður í bak og fyrir. Hann verð-
ur falinn Þjóðminjasafni Íslands til vörslu og um-
sjónar lögum samkvæmt. Hilmar segist vona að
unnt verði að leggja í kostnað sem því fylgir að
ná bátnum upp af botni vatnsins og forverja
hann.
„Báturinn er mjög heillegur, um fimm metra
500 ára bátsflak finnst á botni Þingvallavatns
Ljósmynd/Erlendur Bogason
Elsta bátsflak sem þekkt er hér á landi
langur og hefur varðveist ótrúlega vel í vatninu,“
segir Hilmar. „Hann er að hluta hulinn mó og við
vitum að land hefur sigið þarna, en báturinn
fannst á dýpi sem stemmir við 4-5 metra sig frá
landnámi. Fleiri hafa rekist á bátinn af hendingu
og á þessum slóðum eru kafarar oft á ferð. Það er
því brýnt að ná bátnum upp og koma honum í
rannsókn og í vörslu áður en tjón verður. Það
hvarflaði að okkur að þarna væri kuml, en svo er
ekki. Þetta er eigi að síður mjög forvitnilegur
fundur.“ aij@mbl.is »10
L A U G A R D A G U R 8. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 289. tölublað 106. árgangur
16 dagartil jóla
Sendu jólakveðju á
jolamjolk.is
FEGURÐ OG
TREGI MÆTAST
Í VERKUNUM
HALLA
DANSAÐI Í
SUSPIRIA
HROLLVEKJA 46SIGTRYGGUR BJARNI 44
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Arkitektar sem þátt tóku í fram-
kvæmdasamkeppni um nýja viðbygg-
ingu við Stjórnarráðshúsið í Lækjar-
götu gagnrýna harkalega vinnubrögð
dómnefndarinnar sem skar úr um
hvaða tillaga af þeim 30 sem bárust
myndi bera sigur úr býtum.
Benda þeir á að dómnefndin hafi
hinn 30. ágúst síðastliðinn, 20 virkum
dögum áður en tillögur áttu að berast
í síðasta lagi, opnað á þann möguleika
að þátttakendur gætu hagað rýmis-
skipan hússins eftir eigin höfði í stað
þess að fylgja svokallaðri rýmisáætl-
un sem lögð hafði verið til grundvallar
í upphaflegri mörkun verkefnisins.
Fyrr í ferlinu hafði nefndin fortaks-
laust lýst því yfir í viðbrögðum við
fyrirspurn að ætlast væri til þess að
keppendur fylgdu húsrýmisáætlun-
inni eins og hún var lögð fyrir.
Arkitektar sem Morgunblaðið
ræddi við segja að þær kröfur sem
gerðar voru til innanrýmis bygging-
arinnar hafi verið í miklu ósamræmi
við þær stærðartakmarkanir sem
húsinu voru settar. Að lokum varð sú
tillaga hlutskörpust þar sem höfund-
um tókst að hafa bygginguna á tveim-
ur hæðum en ekki þremur. Allar hin-
ar tillögurnar, að tveimur
undanskildum, voru um húsnæði á
þremur hæðum eða meira. Fulltrúar
í dómnefndinni vísa gagnrýninni á
bug og segja að nefndin hafi ekki
breytt forsendum keppninnar í ágúst
síðastliðnum, hún hafi aðeins áréttað
að keppendum væri frjálst að haga
útfærslu húsnæðisins með þeim
hætti sem þeim þætti best henta,
þ.m.t. „þeim niðurskurði og/eða sam-
nýtingu rýma“ sem hugmynd þeirra
byggðist á.
Hörð gagnrýni á dómnefnd
Dómnefnd um nýja viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið sögð hafa breytt forsendum
Allar tillögur í keppninni reyndust umfangsmeiri en lagt var upp með í upphafi
Samkeppni
» 30 tillögur bárust í sam-
keppninni um nýja byggingu
við Stjónarráðshúsið.
» Vinningstillagan hlaut 6
milljónir króna í verðlaun.
» Hún verður auk þess lögð til
grundvallar nýrri viðbyggingu.
» Vinningstillagan er um hús á
tveimur hæðum.
MViðbygging gæti kostað … »14-17
Listasafn Nínu Tryggvadóttur
gæti verið opnað í Hafnarhúsinu
eftir tvö til þrjú ár. Una Dóra Cop-
ley, dóttir Nínu, gefur Reykjavíkur-
borg listaverkasafn móður sinnar,
alls um þrjú þúsund verk. Hún ræð-
ir um arfleifð móður sinnar og líf
sitt í viðtali við Sunnudagsblaðið.
„Þetta er höfðingleg gjöf og frá-
bært að fá annað safn en Gerðar-
safn sem er kennt við konu,“ segir
Arna Schram, sviðstjóri hjá borg-
inni, og bætir við að ráðgert sé að
ganga frá kaupum borgarinnar á
þeim hluta Hafnarhússins sem hýsa
á safnið á þessu ári eða næsta. Mik-
ið verk er þó fyrir höndum að und-
irbúa húsið, skrá verkin og flytja
heim.
Arfleifð Nínu
sýnileg öllum
Morgunblaðið/Ásdís
List Nínu „Ég veit að Ísland var alltaf í
hjarta hennar,“ segir Una Dóra Copley.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
tilkynnt að hann hafi óskað eftir að
taka sér launalaust leyfi frá þing-
störfum í tvo mánuði í kjölfar þess
að trúnaðarnefnd flokksins veitti
honum áminningu vegna framkomu
hans í garð konu í miðbæ Reykja-
víkur snemmsumars. Hann greindi
sjálfur frá þessu á Facebook-síðu
sinni í gærkvöldi. Logi Már Einars-
son, formaður Samfylkingarinnar,
svarar ekki beint út spurningu um
það hvort rétt væri að vísa málinu
til siðanefndar Alþingis, eins og
gert hefur verið vegna ummæla
þingmanna á Klaustri. »2
Tekur sér frí vegna
áreitni í garð konu