Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 41
kannski helst sjá bak við lás og slá. „Þetta er alveg rétt. Á námsárunum hefði ég aldrei getað ímyndað mér að ég yrði embættismaður næstu 17 árin. Laus störf voru ekki á hverju strái þegar ég lauk laganámi en atvikin höguðu því svo að ég fékk starf á Aust- urlandi. Þangað hafði ég aldrei komið. Ég ákvað svo að söðla um árið 1992 en þá átti ég rétt á að verða skipaður héraðsdómari í Reykjavík. Ég sé síður en svo eftir því að hafa helgað mig lögmennsku á síðari hluta starfsævinnar. Í öllum samfélögum koma upp aðstæður þar sem fjöl- miðlum og almenningi hættir til að breytast í dómstól götunnar. Einmitt þá ríður mest á að réttarríkið standi undir nafni og þá hafa góðir lögmenn mikilvægu hlutverki að gegna sem málsvarar mannréttinda, mannhelgi og réttarríkis.“ – Ertu hættur störfum, Ragnar? „Ekki er það nú alveg, en ég hef í nokkur ár verið í eins konar úrelding- arferli við að reyna að ljúka verk- efnum sem ég hef lofað að klára. Ég hef verið svo lánsamur í lífinu að mér hefur alltaf liðið vel á þeim vinnu- stöðum sem ég hef unnið á og haft frá- bæra yfirmenn og samstarfsmenn. Félagarnir á lögmannsstofunni þykj- ast ennþá geta haft eitthvert gagn af mér, þannig að nú hef ég þá virðing- arstöðu að vera skilgreindur ráðgjafi. Það verður um einhvern óvissan tíma.“ Fjölskylda Ragnar kvæntist 24.6. 1972 Guðríði Gísladóttur, f. 23.8. 1949, bókasafns- og upplýsingafræðingi. Foreldrar hennar voru Gísli Guðni Jónasson, f. 4.9. 1911, d. 19.7. 2002, skipstjóri í Reykjavík, og k.h., Aðalheiður Hall- dórsdóttir, f. 10.11. 1911, d. 20.1. 2002, verslunarmaður. Synir Ragnars og Guðríðar eru Gísli Guðni, f. 5.3. 1972, hrl. hjá Mörk- inni lögmannsstofu, kvæntur Lindu Urbancic verslunarmanni; Steindór Ingi, f. 22.4. 1977, flugstjóri hjá Ice- landair, kvæntur Lilju Dögg Ár- mannsdóttur hjúkrunarfræðingi, börn þeirra eru Ragnar Halldór, f. 2010, og Guðný Lilja, f. 2015. Systkin Ragnars eru Hannes, f. 14.9. 1935, Herdís, f. 29.7. 1939, Sig- urður, f. 16.1. 1945, Kristján, f. 20.8. 1946, Steindór, f. 22.4. 1950, Gunnar Hjörtur, f. 23.12. 1951. Foreldrar Ragnars voru Gunnar Hall, f. 31.8. 1909, d. 12.4. 1970, kaup- maður og landsþekktur bókasafnari, og k.h., Steinunn Hall, f. 10.8. 1909, d. 17.4. 2000, iðnrekandi. Ragnar Halldór Hall Steinunn Hall iðnrekandi í Rvík Sigurður Oddsson hafnsögum. í Rvík Steinunn Sigurðardóttir húsfr. í Landakoti, frá Pétursey í Mýrdal Oddur Jónsson b. í Landakoti á Miðnesi Anna Margrét Hjartarson húsfr. í Rvík (varð kjördóttir Jóns Þorlákssonar forsætisráðh. og Ingibjargar Claessen) Karl K. Hall verkam. í Rvík Unnur Valdís Kristjánsdóttir Hall húsfr. í Rvík Óskírð Kristjánsdóttir Hall, lést í spænsku veikinni Guðlaug Kristjánsdóttir Hall, lést í spænsku veikinni Jón Sigurðsson skipstj. í Rvík Elín Valgerður Sigurðardóttir húsfr. í Danmörku Oddur Sigurðsson iðnrekandi í Rvík Þórleif Sigurðardóttir iðnrekandi og kaupm. í Rvík Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari í Rvík Málfríður Andrea Sigurðardóttir skrifstofum. í Rvík Sigríður Herdís Sigurðardóttir kaupm. í Rvík Guðrún Frímannsdóttir húsfr. á Miðhópi, frá Helgavatni, Vatnsdal Jósep Jónatansson b. á Miðhópi, Þorkelshólshr. V-Hún. Kristín Jósefína Jósepsdóttir Hall húsfr. í Rvík, lést í spænsku veikinni Elías Kristján Kristjánsson vörubílstj. og bifvélavirki í Kópavogi Kristján Pétur Hall Ásmundsson bakaram. í Rvík, lést í spænsku veikinni 1918 í Reykjavík Guðrún Karólína Pétursdóttir Hall húsfr. í Rvík Ásmundur Sveinsson sýslum. í Barðastr.s. og víðar, síðar málflytjandi í Rvík Úr frændgarði Ragnars Halldórs Hall Gunnar Hall kaupm. og bókasafnari í Rvík, varð aldursforseti fjölskyldunnar aðeins níu ára gamall í kjölfar spænsku veikinnar Sveinbjörn Jónsson hrl. í Rvík Valgerður Jóhanna Jónsdóttir frá Skipholti í Árnessýslu, flutti til Vesturheims Jón Sveinbjörnsson hreppstj. á Bíldsfelli í Grafningi Herdís Jónsdóttir húsfr. í Rvík ÍSLENDINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 DU EKKI FLATT  SVELLINU! ktrax halkugormar og broddar er svario      Ver5 fra 3.495 kr. Kringlan 7 I Laugavegur 11 I Reykjavikurvegur 64 I S: 510 9505 I fjallakofinn.is IJ@ Ólafur Þ. Þórðarson fæddist áStað í Súgandafirði 8.12.1940. Foreldrar hans voru Jófríður Pétursdóttir og Þórður Ágúst Ólafsson, bændur þar. Ólafur var náskyldur Kjartani Ólafssyni, fv. alþingismanni og rit- stjóra Þjóðviljans. Feður þeirra voru bræður en mæður systur. Systkini Ólafs: Arndís, nú látin, húsfreyja og bóndi í Bessatungu í Saurbæ í Dölum, Þóra, kennari á Suðureyri; Lilja sem lést í barn- æsku, Pétur Einir, rafmagnsverk- fræðingur hjá RARIK, og Þorvaldur Helgi, bóndi á Stað. Fyrri kona Ólafs er Þórey Eiríks- dóttir kennari en börn þeirra eru Áslaug tryggingaráðgjafi, og Arin- björn, framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum. Seinni kona Ólafs er Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, búsett á Stíflu á Hvolsvelli og eru börn þeirra Heiðbrá lögfræðingur, og Ágúst Heiðar, starfar á Grundartanga. Ólafur lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1960 og kennaraprófi frá KÍ 1970. Hann var skólastjóri Barnaskólans á Suð- ureyri 1970-78 og skólastjóri Hér- aðsskólans í Reykholti frá 1978. Hann kjörinn á Alþingi fyrir Fram- sóknarflokkinn í Vestfjarðakjör- dæmi og sat á þingi þar til hann lét af störfum vegna veikinda 1994. Ólafur var oddviti Suðureyrar- hrepps 1974-78 og formaður Fjórð- ungssambands Vestfirðinga á sama tíma. Hann sat í stjórn Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands, í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins, síðar Byggðastofnunar og sat á alls- herjarþingi Sþ 1982. Ólafur var skemmtilegur stjórn- málamaður og óháður tísku og yfir- borðskenndu almenningsáliti. Hann vildi banna áfram bjórinn, barðist gegn rýmkun fóstureyðinga og var ötull talsmaður þess að allt nám væri nemendum að kostnaðarlausu hér á landi. Hann var mikill hestamaður og stofnandi og formaður hesta- mannafélagsins Storms. Ólafur lést 6.9. 1998. Merkir Íslendingar Ólafur Þ. Þórðarson Laugardagur 101 árs Ingveldur Haraldsdóttir 95 ára Sigrún Aðalbjarnardóttir 85 ára Hlín Gunnarsdóttir Ragnar Gunnarsson 80 ára Halldóra Gunnarsdóttir Jóhanna D. Jóhannesdóttir Kristján Vilmundarson Pálína G. Þorvarðardóttir Svandís U. Sigurðardóttir 75 ára Aðalfríður S. Stefánsdóttir Eiríkur Kinchin Erla I. Hólmsteinsdóttir Halla Svanþórsdóttir Hildur Harðardóttir Jón Sigurjónsson María Halldórsdóttir Páll Steinþórsson Sigþór Jóhannesson Vilhjálmur B. Hannes Roe 70 ára Ásta G. Sigurðardóttir Björg S. Guðmundsdóttir Friðrik Steinsson Gunnar Gunnarsson Jón S. Thoroddsen Málmfríður Sigurðardóttir Oddný Óskarsdóttir 60 ára Anna Elín Bjarkadóttir Efemia G. Björnsdóttir Guðrún Þorvaldsdóttir Gunnar S. Gunnarsson Hólmfríður I. Eiríksdóttir Hrafn Sigurðsson Kristinn Hugason Sigurður Stefán Jónsson Svavar Gíslason Valur Arnórsson Þorsteinn K. Adamsson Þórarinn Jón Þórarinsson 50 ára Anna Blöndal Bjarnveig I. Sigbjörnsdóttir Elmar Gíslason Guðrún Björg Alfreðsdóttir Haraldur Eiríkur Stígsson Hörður Arnarson Íris Björk Viðarsdóttir Jóhann Sigurðsson Jón Gunnar Margeirsson Kristín Stefánsdóttir Margrét Jónsdóttir Ólafía Hreiðarsdóttir Rúnar Örn Friðriksson Sigurður B.H. Halldórsson Stefán V. Halldórsson Sveinbjörn Allansson 40 ára Árdís Jóna Pálsdóttir Benjamín Ingi Böðvarsson Elísabet Anna Vignir Erla Agnes Álfhildardóttir Erla Björg Hafsteinsdóttir Gunnlaugur F. Jónsson Hólmfríður M. Hjaltadóttir Inga Hrönn Hasler Jolanta Balcikonyté Jón Guðmann Jakobsson Láretta Georgsdóttir Lilja Sigurgeirsdóttir Lukasz Marcin Bobowski Sveinn Hákon Harðarson 30 ára Arnar Gunnarsson Arnar Marvin Kristjánsson Ásgeir Guðmundsson Birta Kristín Helgadóttir Ewa Kolodziejczyk Gunnar Ingi Jónsson Kristín Gestsdóttir Rakel Ósk Orradóttir Amin Stefanía Helga Bjarnadóttir Stefán Gunnarsson Tinna L. Andrésdóttir Þuríður Björg Guðnadóttir Sunnudagur 90 ára Sigríður Steindórsdóttir 85 ára Jóhanna G. Bjarnadóttir Marselína Jónasdóttir Þorgrímur Sigurjónsson 80 ára Bragi Hrafn Sigurðsson Erla Guðmundsdóttir Svanhildur Sigurðardóttir Unnur Óskarsdóttir 75 ára Agnes Árnadóttir Anton Guðjón Ottesen Oddný Björgólfsdóttir Rósa Guðrún Sighvats 70 ára Björn Stefán Eysteinsson Hansína Bjarnadóttir Herborg Ívarsdóttir Hilmar Hjartarson Karl Jónsson Sigrún Sigurðardóttir Sigurður Þórir Eggertsson Veronika Leskiene 60 ára Bryndís Guðjónsdóttir Ebba Pálsdóttir Guðrún Gísladóttir Ingibjörg Birgisdóttir Ingunn Elín Sveinsdóttir Jorge Sérgio Santo Costa Jón Heiðar Allansson Kristín Sverrisdóttir Kristín Tryggvadóttir Marzena L. Dabrowska Óskar Jóhannesson Páll Du Valgerður Olga Lárusdóttir 50 ára Arvi Puekkenen Árni Þór Gunnarsson Borgar Gunnarsson Dariusz Maczyszyn Eiður Sigurjón Eiðsson Gísli Pálsson Hrefna Rós Wiium Ingólfur Oddgeir Jónsson Jóhanna Lind Elíasdóttir Malgorzata Rzepnicka Óskar Garðarsson 40 ára Adam Wieslaw Marzec Andri Guðmundsson Arnar Þórðarson Björn Albertsson Daði Sverrisson Elín María Óladóttir Finnur Örn Þórðarson Guðný Svava Gestsdóttir Jóhanna M. Þórhallsdóttir Katrín María Lehmann Logi Helguson Signý Rós Þorsteinsdóttir Stefán B. Önundarson Steinunn Benediktsdóttir 30 ára Arna Þöll Sigmundsdóttir Guðmundur P. Kjartansson Harpa Lind Ingadóttir Helena G. Marteinsdóttir Helga L. Sigurbergsdóttir Herdís E. Hermundardóttir Magnús Guðmundsson Ómar Ástþór Ómarsson Rannveig Guðmundsdóttir Sindri Gunnarsson Vala Ósk Ásbjörnsdóttir Þóra Ágústa Úlfsdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.