Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Á annað hundrað myndlistarmanna á verk á viðamikilli
sýningu sem verður opnuð í Ásmundarsal við Freyju-
götu í dag, laugardag, klukkan 15. Yfirskrift sýningar-
innar er Jólasýningin Le Grand Salon de Noël.
Á fimmta áratug síðustu aldar voru haldnar sölusýn-
ingar fyrir jólin í Listvinasalnum við Skólavörðustíg. Þá
voru verk margra þekktustu listamanna þjóðarinnar
sýnd samhliða verkum yngri og minna þekktra lista-
manna. Nú hyggjast aðstandendur sýningarinnar end-
urvekja þá gömlu hefð í nýuppgerðum Ásmundarsal.
Um 300 myndverk að öllu tagi verða til sölu á Jólasýn-
ingunni og býðst áhugasömum gestum, sem vilja kaupa
sér verk, að pakka þeim beint inn í silkiþrykktan jóla-
pappír á innpökkunarstöð Prents & vina sem sjá um sýn-
ingarstjórn. Að því búnu geta gestir gengið út með verk-
in og önnur verða sett upp í staðinn. Í Gryfjunni verður
sett upp grafíkverkstæði þar sem valdir listamenn vinna
myndverk í upplagi á hverjum degi á meðan á sýning-
unni stendur.
Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni má
nefna Söru Riel, Margréti H. Blöndal, Nínu Óskars-
dóttur, Önnu Líndal, Roman Signer, Siviu Bächli, Stein-
grím Eyfjörð, Bjarka Bragason, Katrínu Elvarsdóttur,
Katrínu Mogensen, Þór Vigfússon, Steinunni Gunn-
laugsdóttur, Eggert Pétursson og Guðjón Ketilsson.
Sýningin verður opin út desember og er aðgangur
ókeypis. Það er opið í Ásmundarsal frá 8 til 17 á virkum
dögum, frá 9 til 17 um helgar.
Morgunblaðið/RAX
Verkin þekja alla veggi
Sýningarstjórarnir Sigurður Atli Sigurðsson og Leifur Ýmis Eyjólfsson hjá Prent & vinum í Gryfjunni í Ásmundar-
sal. Myndverk á annað hundrað listamanna þekja veggi byggingarinnar og koma ný upp fyrir þau sem seljast.
,Nú get ég“ nefnist leikin tónlistar-
dagskrá fyrir alla fjölskylduna í
leikstjórn Ingridar Jónsdóttur sem
frumsýnd verður í Kaldalóni Hörpu
á morgun, sunnudag, kl. 13. „Ólafía
Hrönn Jónsdóttir leiðir áheyrendur
í gegnum sögu fullveldistímans á
léttan og skemmtilegan hátt,“ segir
Pamela De Sensi, listrænn stjórn-
andi Töfrahurðar sem stendur fyrir
tónleikunum og gefa mun efnið út á
bókarformi á næsta ári.
„Mér fannst spennandi að fjalla
um sögu Íslands á síðustu 100 árum
í tilefni fullveldisafmælisins og
skoða hvernig íslenskt samfélag
hefur þróast og breyst á þessum
tíma,“ segir Pamela sem átti hug-
myndina að tónleikunum og vænt-
anlegri útgáfu. Í framhaldi leitaði
hún til Þórarins Eldjárn og bað
hann að semja söngtexta, en Elín
Gunnlaugsdóttir samdi tónlistina og
handritið í kringum söngtextana
samdi Karl Ágúst Úlfsson. „Tónlist
Elínar er fjölbreytt og rekur í raun
tónlistarsöguna á Íslandi. Þarna má
heyra lög í þjóðlegum stíl, blús,
djass, rokk, rapp og popp.“
Að sögn Pamelu leggur hún
ávallt mikla áherslu á hið sjónræna
á tónleikum Töfrahurðar og af þeim
sökum hefur Heiða Rafnsdóttir
unnið myndir sem varpað er á skjá
í salnum. „Í raun má segja að Ólafía
Hrönn sé á stundum að tala við
myndirnar, sem eru stór hluti af
verkinu. Mér finnst mjög mikilvægt
að ungir áhorfendur séu ekki aðeins
mættir til að hlusta heldur upplifi
frásögnina og tónlistina í gegnum
myndir.“
Um tónlistarflutning sjá Vignir
Þór Stefánsson sem leikur á píanó,
Haukur Gröndal á klarínett og
saxófón, Hávarður Tryggvason á
kontrabassa, Pétur Grétarsson á
slagverk og Snorri Sigurðarson á
trompet. Aðspurð reiknar Pamela
með því að halda formlega útgáfu-
tónleika á næsta ári auk þess sem
ætlunin sé að flytja tónlistar-
dagskrána fyrir miðstig grunnskól-
anna á nýju ári.
Fullveldistíminn í tónum
Ljósmynd/Egill Bjarnason
Listafólk Vignir Þór Stefánsson, Haukur Gröndal, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hávarður Tryggvason og Pétur
Grétarsson ásamt Snorra Sigurðarsyni sem vantar á myndina koma fram á tónleikunum á morgun.
Töfrahurð sýnir á morgun tónlistardagskrána Nú get ég
Elly (Stóra sviðið)
Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas.
Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas.
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s
Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Fös 18/1 kl. 20:00 aukas.
Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s
Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Fös 25/1 kl. 20:00 24. s
Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðasta sýning!
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Lau 8/12 kl. 15:00 aukas. Sun 16/12 kl. 13:00 8. s
Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s
Aðeins sýnt á aðventunni.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 12/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna