Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
VERÐ FRÁ 89.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
SKÍÐAFERÐIR TIL
MADONNA, ÍTALÍU
SÍÐUSTU SÆTIN Á SKÍÐI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjárlög óvenjusnemma í ár
Þingforseti segir að nýtt fyrirkomulag virki Næg verkefni í næstu viku
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki er einsdæmi að fjárlög hafi verið samþykkt
eftir þriðju umræðu 7. desember, eins og í ár.
Það gerðist sama dag á árinu 2012 og á sama
tíma eða jafnvel 1-3 dögum fyrr á árunum 2002
til 2007. Ef litið er á tímabilið frá aldamótum sést
að fjárlög hafa almennt ekki verið afgreidd fyrr
en um miðjan desember og jafnvel ekki fyrr en
rétt fyrir jól. Á síðasta ári voru fjárlög samþykkt
30. desember en þá voru sérstakar aðstæður.
Þetta má sjá á samantekt sem starfsmenn
þingsins gerðu fyrir Steingrím J. Sigfússon, for-
seta Alþingis. „Í fyrsta sinn í nokkuð langan tíma
erum við með venjulegan þingvetur og vel und-
irbúið þing og engar kosningar að trufla.“ Hann
segir að það hjálpi til að fyrsti samkomudagur
þingsins hafi verið færður fram, sé nú annar
þriðjudagur í september, en fjármálaráðherra á
að leggja fram fjárlagafrumvarp þann dag. Segir
Steingrímur að það hafi verið gert til þess að
fjárlagavinnan hefði rýmri tíma í þinginu og
menn lentu ekki í því að afgreiða fjárlög rétt fyr-
ir jól. Áður kom þingið yfirleitt saman í byrjun
október.
Þá segir Steingrímur að ný lög um opinber
fjármál hafi í för með sér að búið sé að vinna
meiri vinnu fyrirfram en áður og meiri tími fari í
umfjöllun um ríkisfjármál. Hann nefnir að ný
ríkisstjórn leggi fram fjármálastefnu í upphafi
kjörtímabils og að vori sé lögð fram þingsálykt-
unartillaga um endurskoðun fimm ára áætlunar.
Vinnan við fjárlagafrumvarp snúist frekar um að
fylla inn í þá ramma sem settir hafi verið upp áð-
ur. „Ánægjulegt er að sjá að þetta virkar eins og
til var ætlast,“ segir Steingrímur.
Andrúmsloftið mætti vera betra
Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað
á föstudaginn í næstu viku. „Enn sem komið er
bendir ekkert til annars en það ætti að ganga
vel,“ segir Steingrímur. Hann segir að mörg mál
séu að koma úr nefndum, meðal annars fjárlaga-
tengd frumvörp. Eftir sé þriðja umræða um
veiðigjaldafrumvarp. Viðamestu málin sem enn
er unnið að í nefndum eru samgönguáætlanir.
Spurður um vinnuandann í ljósi Klausturmála,
svarar Steingrímur: „Störfin hafa gengið furð-
anlega vel, þótt andrúmsloftið mætti vera
betra.“
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Íslands, hefur ákveðið
að víkja úr því embætti. Hann segir
það enga bið þola að ná á nýjan leik
víðtækri samstöðu innan félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem Jónas sendi fjölmiðlum í gær.
Þar segir hann m.a. að fjölskyldu
sinni hafi verið fléttað, „með grímu-
lausum hætti“, inn í umfjöllun fjöl-
miðla.
Jónas fullyrðir að áhlaupi, sem
ætlað hafi verið að yfirtaka félagið,
hafi verið hrundið. Vísar hann þar til
formannsframboðs Heiðveigar Mar-
íu Einarsdóttur.
„Í þeirri varnarbaráttu var í einu
og öllu farið að lögum félagsins. Ef-
laust eru skiptar
skoðanir um ein-
hver ákvæði í lög-
unum. Til stend-
ur að skipa
sérstaka nefnd til
þess að endur-
skoða lögin með
heildstæðum
hætti og leggja
tillögur sínar fyr-
ir aðalfund árið
2019,“ segir Jónas og bætir við að fé-
lagið hafi verið borið þungum sök-
um.
„Flestar þeirra ásakana voru
beinlínis rangar. Þeim var slegið
hverri á fætur annarri upp í þeim
fjölmiðlum sem mest lögðu sig fram í
umfjöllun um deilur innan félagsins.
Minni áhugi hefur verið á að leið-
rétta þær rangfærslur jafnóðum og
sýnt var fram á upplognar sakir.“
Fullyrðir Jónas að í þessum efn-
um hafi persóna hans sjálfs verið
sett sérstaklega í sviðsljósið.
Þá segir hann að það verði verk-
efni nýrrar forystu, „að sameina á
nýjan leik þann styrk sem felst í víð-
tækri samstöðu innan Sjómanna-
félags Íslands og lagt hefur grunn að
þeim mikla árangri sem náðst hefur
á undanförnum árum. Sú vinna þolir
enga bið“. Til þess að flýta fyrir því
ferli hafi hann ákveðið að stíga til
hliðar sem formaður félagsins.
Jónas víkur sem formaður
Sjómannafélags Íslands
Segir að brýnt sé að ná víðtækri samstöðu innan félagsins
Jónas
Garðarsson
0Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, hefur óskað eftir launalausu
leyfi næstu tvo mánuði. Í síðustu viku fékk
Ágúst Ólafur áminningu frá trúnaðarnefnd
Samfylkingarinnar vegna óviðeigandi fram-
komu við konu og ákvað í kjölfarið að leita sér
faglegrar aðstoðar.
Ágúst Ólafur greindi
frá þessu á Facebook-síðu
sinni í gærkvöldi og sagði
þar að umrætt atvik hefði
átt sér stað kvöld nokkurt
í byrjun sumars. Hann
hefði nálgast konuna óum-
beðinn, hún hefði hafnað
honum og í kjölfarið hefði
hann látið „mjög særandi
orð falla um hana“.
Nokkru síðar tilkynnti konan framkomu
Ágústs Ólafs til trúnaðarnefndarinnar þar
sem bæði lýstu atburðarásinni og í kjölfarið
var honum veitt áminning.
Vildu vísa til siðanefndar
Ágúst Ólafur og tveir aðrir þingmenn Sam-
fylkingarinnar voru meðal þeirra níu þing-
manna sem óskuðu eftir því að forsætisnefnd
Alþingis tæki upp mál þingmannanna sem
kenndir eru við veitingastaðinn Klaustur,
strax eftir að fjölmiðlar fóru að birta upp-
tökur þaðan, og vísaði til siðanefndar. Fram-
kvæmdastjórn Samfylkingarinnar fordæmdi
ummæli þingmanna Miðflokksins og Flokks
fólksins í umræddum samtölum í sérstakri
samþykkt í fyrradag og sagði þau ekki sæm-
andi þingmönnum. „Framkvæmdastjórn
Samfylkingarinnar telur að vegna fram-
göngu sinnar og viðbragða séu viðkomandi
þingmenn rúnir trausti. Óskandi væri að þeir
settu virðingu Alþings og traust á stjórn-
málum í landinu ofar eigin hag, og segðu af
sér þingmennsku.“
„Það getur vel verið að einhver óski þess,“
segir Logi Már Einarsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, þegar hann er spurður að því
hvort hann telji ástæðu til að siðanefnd Al-
þingis taki málið til skoðunar. Bendir hann á
að málið hafi farið í gegnum siðanefnd Sam-
fylkingarinnar og Ágúst Ólafur hafi gengið
lengra en hún leggur til með því að óska eftir
leyfi frá þingstörfum. Spurður að því hvort
ástæða sé til að Ágúst segi af sér þing-
mennsku vegna málsins segir Logi að hann
virði ákvörðun Ágústs. Hann hafi upplýst um
áminninguna og óskað eftir að taka sér leyfi
frá þingstörfum tímabundið og leita sér að-
stoðar. Tíminn verði síðan að leiða í ljós hvað
verður.
Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon, for-
seta Alþingis, í gærkvöldi til að spyrja hvort
mál Ágústs Ólafs væri þess eðlis að rétt væri
að forsætisnefnd tæki það til umfjöllunar og
eftir atvikum vísaði því til siðanefndar sem
hefur verið virkjuð vegna Klausturmálsins.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík,
er 1. varamaður Samfylkingarinnar í Reykja-
vík suður.
Fer í leyfi frá
þingstörfum
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Ágústi veitt áminning
Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Há-
skóla Íslands, hlaut í gær heiðursverðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur
Wright. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin við
hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafninu. Brynhildur fékk verðlaunin fyrir
brautryðjendastarf sitt í rannsóknum í vist- og hagfræði, sjálfbærni, þró-
un orkukerfa og á sviði loftslagsmála. Hún hefur m.a. rannsakað samspil
umhverfis og lífríkis og áhrif mannanna á hvort tveggja.
Verðlaun Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt þeim íslenskum vís-
indamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sínu sérsviði í vís-
indum eða fræðum.
Brynhildur fékk verðlaun Ásu G. Wright
Morgunblaðið/Eggert
Hefur unnið brautryðjendastarf í rannsóknum á vist- og hagfræði, sjálfbærni og á sviði loftslagsmála