Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
fyrir alla fagurkera...
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is
HEIMILI & HUGMYNDIR
Ívar Pálsson viðskiptafræðingurskrifar á blog.is: „Áherslur borg-
arstjórnarmeirihlutans í umferðar-
málum Reykjavíkur skila sér í þrem-
ur dögum á ári í umferðartöfum.
Milljarði króna á ári
heldur áfram að
vera sóað í að reyna
að fá strætó-elítu-
hópinn sem fer 4%
ferðanna, til þess að
stækka, en það ger-
ist ekki. Fyrst ár-
angur af því er eng-
inn, þá er bætt um
betur og tugir millj-
arða króna settir í
Borgarlínu, sem
mun auka tafirnar
enn frekar.
Bílafloti Reykvík-inga stækkaði ört og fólk mun
ekki skilja nýja bílinn eftir heima
næstu árin, hvort sem hann er drif-
inn áfram af rafmagni eða af öðru.
Framlag til vegabóta og aukins um-
ferðarflæðis er skammarlegt á sama
tíma, auk þess sem áhersla Dags
borgarstjóra er enn á það að hægja
á umferð (með frábærum árangri),
ekki að hámarka flæði, sem t.d.
tölvukerfin geta gert.
Djöfullinn finnst alltaf í smáatrið-unum og nú er að koma í ljós
hvernig Borgarlínan er: stærðar
svæði tekið undir strætó, hjól og
gangstíga, en ein akrein fyrir bíla,
sem fara 70-80% ferðanna.“
Við þetta bætist að þeir sem verðasvo óheppnir að búa nálægt
Borgarlínunni svokölluðu fá að
greiða hærri skatta; sérstaka inn-
viðaskatta.
Breytir engu í því sambandi hvortþeir nota áfram eigin bíla, sem
er líklegast, eða taka allt í einu upp
á því að ferðast um með strætó á
sterum.
Ívar Pálsson
Búsetuskattur
Borgarlínunnar
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra
Íslands í Moskvu, tilkynnti um stofn-
un sameiginlegs viðskiptavettvangs
á milli íslenskra og rússneskra fyr-
irtækja í móttöku sem haldin var í
vikunni í tilefni 100 ára afmælis full-
veldis Íslands.
Einnig var minnst 75 ára stjórn-
málatengsla á milli Íslands og Rúss-
lands en í miðri heimstyrjöldinni síð-
ari, haustið 1943, var tekið upp
stjórnmálasamband á milli Íslands
og Sovétríkjanna.
Berglind sagði í ávarpi sínu að við-
urkenning Sovétríkjanna hefði verið
mikils virði fyrir unga þjóð.
„Alla tíð síðan hafa samskipti
landanna skipað veglegan sess í ut-
anríkisstefnu Íslands. Tvíhliða sam-
skipti ríkjanna á dögum kalda-
stríðsins voru yfirleitt góð og um
margt nánari en gerðist í samskipt-
um austurs og vesturs,“ sagði Berg-
lind.
Tuttugu íslensk fyrirtæki hafa
þegar tilkynnt þátttöku í viðskipta-
vettvangnum. Um er að ræða fyr-
irtæki tengd sjávarútvegi, ferða-
mennsku, landbúnaði, samgöngum
og fleiru. Viðskiptaþvinganir og
refsiaðgerðir hafa valdið verulega
minni viðskiptum landanna frá árinu
2015 þegar Rússar brugðust við
þátttöku Íslendinga í refsiaðgerðum
vegna deilna um Úkraínu. Þess er
vænst að umræður og viðskiptavett-
vangur sem þessi geti orðið til þess
að efla viðskipti landanna á ný.
Rússland Fulltrúar íslenskra fyrirtækja á Rússlandsmarkaði og starfsfólk
sendiráðs Íslands, fyrir miðju er Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra.
Samræður um við-
skipti við Rússland
Sameiginlegur viðskiptavettvangur
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, í
samstarfi við Arkitektafélag Íslands,
efnir til opinnar tveggja þrepa sam-
keppni um nýjan leikskóla á Sel-
tjarnarnesi. Áætluð stærð leikskól-
ans er um 2.400 fermetrar.
Nýr leikskóli skal byggður á nú-
verandi svæði leikskólans, ásamt
svæði sem gengið hefur undir nafn-
inu Ráðhúsreitur. Á þessum reit er
nú bráðabirgðahúsnæði sem reist
var í haust vegna mikillar fjölgunar í
leikskólum bæjarins. Tillögum í
fyrra þrepi skal skila til trúnaðar-
manns samkeppninnar þriðjudaginn
19. febrúar 2019. Dómnefnd velur
allt að fimm tillögur til þátttöku í
seinna þrepi samkeppninnar. Er
miðað við að seinna þrep hefjist 4.
mars 2019 og tillögum sé skilað 15.
apríl 2019. Í dómnefnd eru fimm
manns og er Gestur Ólafsson arki-
tekt formaður.
Við ákvörðun þessa reits undir
nýjan leikskóla var haft að leiðarljósi
gott aðgengi að þessum þjónustu-
kjarna og gildandi aðalskipulag Sel-
tjarnarnesbæjar, sem gerir ráð fyrir
að á reitnum verði samfélagsþjón-
usta. „Seltjarnarnesbær leggur
áherslu á metnaðarfullar hugmyndir
um byggingu leikskóla á þessum
stað sem myndar sterka byggingar-
lega heild með núverandi umhverfi
og byggingum á svæðinu,“ segir á
heimasíðu bæjarins. sisi@mbl.is
Nýr leikskóli rís á Seltjarnarnesi
Samkeppni meðal arkitekta Leikskólinn verður 2.400 fermetrar að stærð
Morgunblaðið/sisi
Lóðin Bráðabirgðahús reist í haust.