Morgunblaðið - 08.12.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Gullsmiðir
Sérfræðingar í trúlofunar
& giftingarhringum
Skoðaðu úrvalið á www.acredo.is
A-1488-34
Demantshringur miðjusteinn 0,40 ct
187.479,-
A-1313-1
Hringapar með demöntum
183.115,-
A-1489-17
Demantshringur miðjusteinn 0,30 ct
153.849,-
A-1597-1
Hringapar með demöntum
247.616,-
A-1601-2
Hringapar /demöntum, miðjust. 0,30 ct
335.321,-
A-1684-2
Hringapar með demöntum
215.479,-
A-1695-4
Hringapar með demöntum
180.326,-
A-1754
Hringapar með demöntum
361.943,-
A-1774-1
Demantshringur miðjusteinn 0,40 ct
301.069,-
A-1790-1
Demantshringur miðjusteinn 0,15 ct
231.739,-
A-2026-6
Hringapar með demöntum
337.584,-
A-2057-1
Demantshringur miðjusteinn 0,20 ct
133.449,-
A-2074-2
1Hringapar með demöntum
226.452,-
A-3003-1
Hringapar með demöntum
346.594,-
-
A-2084-13
Demantshringur miðjusteinn 0,25 ct
129.349,-
A-3021-1
Hringapar með demöntum
327.426,-
A-6006-1
Hringapar með demöntum
321.776,-
S-1086-1
Hringapar með demöntum
111.107,-
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Söngur Erna Hrönn Ólafsdóttir í mikilli sveiflu sem stjórnandi jólakórs sem
gladdi gesti og gangandi nýlega, rétt eins og vera ber þegar hátíðin nálgast.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
A
ðventan er besti tími
ársins. Tilhlökkunar-
efnin eru mörg og
þessa dagana er ég með
bókstaflega heilt fiðr-
ildabú í maganum,“ segir Erna
Hrönn Ólafsdóttir, söngvari og út-
varpskona á K100.
„Ég var byrjuð að syngja opin-
berlega á heimaslóðum mínum norð-
ur í Eyjafjarðarsveit tæplega tíu ára
gömul, þá á allskonar jólasam-
komum í sveitinni og inni á Akur-
eyri. Söngvari nær aldrei til fólks
nema gefa af sér af lífi og sál og fylla
salinn af söng og gleði. Sjálfri finnst
mér þetta vera hluti af náungakær-
leiknum sem þarf að vera hluti af
stemningu viknanna fyrir jól.“
Þessa dagana er snjóþungt fyr-
ir norðan og bókstaflega allt á kafi.
Það er alvanalegt þar um slóðir í
desember og sumir segja ómissandi.
„Jólin þurfa að vera hvít, því
ræður uppruni minn og æskuminn-
ingar að norðan. Skemmtilegast er
náttúrlega þegar vegir eru ófærir
svo fólk er teppt heima. Og þegar
rafmagnið slær út svo kveikja þarf á
kertaljósum er jólastemningin ekk-
ert minna en fullkomnuð.“
Mörg undanfarin ár hefur Erna
tekið þátt í ýmsum tónleikum á að-
ventunni. Hún verður þó fjarri góðu
gamni í ár þar sem 15. desember fer
stórfjölskyldan í tveggja vikna
jólafrí til Flórída í Bandaríkjunum
og verður þar fram til 30. desember.
„Við og börnin okkar sex ásamt
tengdaforeldrum mínum og fleirum
förum í sælulandið; nú verða það jól í
sól. Því þarf undirbúningi fyrir há-
tíðina að ljúka nokkuð snemma, en
margar af hefðum fjölskyldunnar
tökum við með okkur til Flóría.
Samkvæmt íslenskri hefð verðum
við með hátíðarmatinn og opnum
gjafirnar á aðfangadagskvöld. Á
jóladag, þegar hin eiginlega hátíð
Bandaríkjamanna er, ætlum við hins
vegar að bregða undir okkur betri
fætinum og heimsækja Disneyland;
ævintýraveröld og halda þar gleðileg
jól.“
Aðventan er vissulega annatími en nóg er af ævintýrum sem gera dagana
skemmtilega. Söngur, sögur og notaleg stemning. Undir okkur sjálfum er komið
að skapa rétta andrúmsloftið, svo jólin verði okkur öllum gleðileg og góð.
Ríkjandi náungakærleik-
ur og með fiðrildi í maga
Ljósum prýdd Jólalest Coca-Cola fer
sinn árlega hring um höfuðborgar-
svæðið í 23. skiptið í dag laugardag.
Lagt verður af stað kl. 16 frá höfuð-
stöðvum Coca-Cola að Stuðlahálsi í
Reykjavík og þaðan farið víða um höf-
uðborgarsvæðið. Ráðgerð stopp eru
við Spöngina í Grafarvogshverfi kl.
16:30, við Hörpu kl. 17:30 og við
Smáralind í Kópavogi kl. 19. Við
Hörpu verður svo ljósum prýddur
jólatrukkur frá kl. 17 til 18 og og þar
er hressing boði.
Fastur liður í jólaundirbúningi
margra fjölskyldna er að fylgjast með
Jólalestinni. Á meðan sumir safnast
saman á fjölförnum stöðum þar sem
lestin á leið um, kjósa aðrir að fylgj-
ast með henni af svölum eða út um
glugga heima hjá sér.
Talið er að 10-15.000 manns fylgist
með ferð lestarinnar á ári hverju og
margir koma á viðkomustaði hennar.
Hægt verður að fylgjast með ferða-
laginu á rauntíma á www.jolalestin.is
Jólalest Coca-Cola verður á ferðinni í 23. sinn
Ljósum prýddir jólatrukkar
Kókbílar Lestin brunar hratt.
Tónajól, hátíðartónleikar nemenda í
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar verða
haldnir í Íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði í dag, laugardag.
Tónleikarnir eru tvennir, kl. 14 og kl.
16 og fram koma alls 150 nemendur.
Gestasöngvarar verða söngkonurnar
Guðrún Árný og Margrét Eir sem báð-
ar eru búsettar í Hafnarfirði og
þekktar úr íslensku tónlistarlífi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við hér
við skólann efnum til stórra sameig-
inlegra tónleika nemenda í aðdrag-
anda jólanna. Þetta lífgar upp á bæj-
arbraginn og vonandi verður þetta
árvisst héðan í frá,“ segir Kristjana
Þórdís Ásgeirsdóttir, deildarstjóri í
forskóla- og tónfræðideild skólans,
sem hefur umsjón með tónleikunum.
Leikin verða jólalög, mörg í nýjum
útsetningum kennara skólans. Fram
koma sinfónínuhljómsveit, lúðra-
sveit, hrynsveit, gítarsveit, trommu-
sveit, flautusveit, nemendur úr eldri
deild forskólans, kór söngdeildar
skólans og nemendur í píanóleik.
Tónajól haldin í Hafnarfirði í dag
150 nemendur koma fram
Tónlist Leikið af bæði lífi og sál.