Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
JÓLIN KOMIN
hjá Almari bakara
SALATBAR
ferskur allan
daginn
hjá Katrínu Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra þegar úrslitin voru kynnnt.
„Sú tillaga sem hlýtur fyrstu verð-
laun verður nú lögð til grundvallar
við hönnun viðbyggingar við gamla
Stjórnarráðshúsið. Lögð var rík
áhersla á að horft yrði til hugmynda-
fræði sjálfbærrar þróunar og vist-
vænnar hönnunar. Í samræmi við
það yrði m.a. litið til orkunýtni, efn-
isvals og heilsuverndar við hönn-
unina og áhersla lögð á að neikvæð
umhverfisáhrif yrðu lágmörkuð í
öllu ferlinu. Þetta mun hafa áhrif á
vellíðan þeirra sem munu starfa í
byggingunum en það er jafnframt
von mín að þær framsæknu hug-
myndir sem bárust geti orðið til fyr-
irmyndar í öðrum framkvæmdum
hér á landi í framtíðinni, ekki síst að
því er varðar sjálfbærni og vistvæna
hönnun og verði jafnframt lyftistöng
fyrir þróun byggingarlistar hér á
landi,“ sagði forsætisráðherra
Fyrstu verðlaun hlutu Ásmundur
Hrafn Sturluson og Steinþór Kári
Kárason hjá KURTOGPÍ og Garðar
Snæbjörnsson, Jóhanna Høeg Sig-
urðardóttir og Ólafur Baldvin Jóns-
son. Gengið verður til samninga við
höfunda tillögunnar um framhaldið.
Næsta skref í málinu er að rannsaka
fornleifar á byggingarlóðinni. Forn-
leifauppgröfturinn hefur verið boð-
inn út og verða tilboðin opnuð 18.
desember n.k. Verkinu skal að fullu
lokið 31. október 2019.
Eftir er að vinna deiliskipulag fyr-
ir lóðina í samráði við Reykjavík-
urborg. Borgin mun auglýsa tillög-
una og geta allir kynnt sér hana og
gert athugasemdir ef ástæða þykir
til. „Frá því ákvörðun er tekin um að
halda ferlinu áfram tekur rúmlega
ár að ganga frá deiliskipulagi og full-
hanna bygginguna,“ segir Ágúst
Geir í svarinu. Hann segir jafnframt
að verkefnið sé að fullu fjármagnað í
fjármálaáætlun til næstu fimm ára.
Fram kemur í áliti dómnefndar að
flestir tillöguhöfundar kusu að vinna
með byggingu sem að einhverju eða
öllu leyti var á þremur hæðum, auk
kjallara. Sex höfundar hönnuðu
byggingu á fjórum hæðum en ein-
ungis þrír völdu að leysa verkefnið á
tveimur hæðum. Sú tillaga sem valin
var til fyrstu verðlauna var ein
þeirra.
Í umsögn dómnefndar segir m.a:
Nýbyggingin myndar lágstemmdan
bakgrunn fyrir Stjórnarráðshúsið
og er á tveimur hæðum sem er ótví-
ræður kostur. Gluggar á vesturvegg
eru reglulegir eins og gluggar
Stjórnarráðshússins. Ásýnd til norð-
urs er tilbrigði við skyggni Hverfis-
götu 4 og gluggasetningu á efri hæð-
um þess húss. Byggingin er dregin
til baka frá Bankastræti og þar á
milli er garður með blómstrandi
runnagróðri. Útveggir sitja á lágum
tilhöggnum grásteinssökkli sem rís
upp í fulla hæð á suður- og norður-
gafli og er þá sléttur. Annars eru út-
veggir ljós buffhömruð steypa með
reglulegum lóðréttum „rifjum“ og
báruðum slípuðum terrasso innfell-
ingum þar sem við á.
Yfirbragðið bjart og létt
Í innra skipulagi er áherslan á
skýra aðgreiningu, tengingar og
sveigjanleika. Skrifstofur eru á efri
hæð, en sameiginleg rými og að-
gangsrými gesta eru á þeirri neðri.
Þá segir að tillagan hafi það fram
yfir aðrar að hún einkennist af skiln-
ingi á þörfum starfseminnar og leysi
kröfur samkeppnislýsingar um rým-
isskipan afar vel. Niðurstaðan sé
einföld en fáguð umgjörð um starf-
semi ráðuneytisins. Yfirbragð húss-
ins sé bjart, létt og áreynslulaust og
efnistök skýr.
Sýning á samkeppnistillögum
stendur yfir til 31. desember 2018 í
Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Tölvumynd/ KURTOGPÍ
Verðlaunatillagan „Viðbyggingin vitnar af hógværð og yfirlætisleysi um vandaða byggingarlist sinnar samtíðar í farsælu sambýli við Stjórnarráðshúsið,“ segir m.a. í umsögn dómnefndar.
Viðbygging gæti kostað milljarð
Athyglisverðar tillögur Tvær af 30 tillögum. Til vinstri er tillaga Thor Architects. Til hægri er tillaga Minarc.
Starfsemi forsætisráðuneytisins verður á einum stað Leigir nú á sjö stöðum við Hverfisgötu
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Samkvæmt frumathugun sem
Framkvæmdasýsla ríkisins gerði í
fyrra má ætla að kostnaður við
byggingu 1.200 fermetra húss við
Stjórnarráðshúsið geti legið á bilinu
820,1 til 996 milljónir króna. Þetta
kemur fram í svari forsætisráðu-
neytisins við fyrirspurn Morgun-
blaðsins.
Ágúst Geir Ágústsson, skrif-
stofustjóri skrifstofu yfirstjórnar
ráðuneytisins, tekur fram í svarinu
að vert sé að nefna að í frumathug-
unaráætlun séu margir óvissuþætt-
ir. Eiginleg kostnaðaráætlun verk-
efnisins verði unnin í næsta áfanga
þess. Hún muni byggjast á for-
sendum hönnunar og útfærslu verð-
launatillögunnar og er stefnt að því
að sú vinna hefjist á næsta ári. Með
viðbyggingunni er stefnt að því að
starfsemi forsætisráðuneytisins
verði á einum stað. Ráðuneytið er
með starfsemi í Stjórnarráðshúsinu
sem er í eigu ríkisins en leigir nú á
sjö stöðum við Hverfisgötu (eign-
arhlutar í eigu margra aðila) til við-
bótar. Samtals fermetrar í leigu eru
1.142, mánaðarleiga er kr. 2.624.699.
Þá áformar ráðuneytið að taka við-
bótar-skrifstofuhúsnæði tímabundið
á leigu frá 1. janúar nk. í miðbæ
Reykjavíkur vegna flutnings jafn-
réttismála til forsætisráðuneytisins
og standa samningaviðræður yfir
um leigugjald vegna þess.
Þrjátíu tillögur bárust í sam-
keppnina um hið nýja hús og í mörg-
um þeirra tekst höfundum að fella
bygginguna vel að Stjórnarráðshús-
inu og þeirri byggð sem fyrir er í
næsta nágrenni, að því er fram kom
Við stofnun heimastjórnar hinn
1. febrúar árið 1904 var ákveðið
að Stjórnarráðshúsið, sem áður
hafði m.a. verið aðsetur lands-
höfðingjans, yrði aðalaðsetur
landstjórnarinnar, síðar ríkis-
stjórnar Íslands.
Upphaflega var húsið reist
sem tukthús og var hafist
handa við byggingu þess árið
1761. Árið 1819 varð húsið emb-
ættisbústaður stiftamtmanns
og árið 1873 Landshöfðingja-
hús. Saga hússins hefur verið
samofin sögu þjóðarinnar, segir
forsætisráðherra.
Bygging þess
hófst 1761
STJÓRNARRÁÐSHÚSIÐ
Samkeppni um Stjórnarráðsbyggingu