Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Vart hefur orðið talsverðrar
óánægju með framkvæmda-
samkeppni sem ríkisstjórn Íslands
stóð að varðandi nýja viðbyggingu
við Stjórnarráðshúsið við Lækjar-
götu. Gagnrýni á ferlið hefur komið
fram í tengslum við tvo svokallaða
fyrirspurnatíma meðan á sam-
keppninni stóð en einnig á rýnifundi
sem dómnefnd í framkvæmda-
keppninni hélt með þátttakendum í
kjölfar samkeppninnar. 30 þátttak-
endur skiluðu tillögum í keppninni
og hlutu þrjár tillögur verðlaunafé
að launum. Gagnrýnin sem fram
hefur komið tengist m.a. því að
undirbúningsvinnu dómnefndar-
innar í aðdraganda keppninnar hafi
verið áfátt og segja viðmælendur
Morgunblaðsins að mjög hafi vant-
að upp á að keppnislýsingin stæðist
þær kröfur sem gera megi til sam-
keppni af þessu tagi.
Stærri að innan en utan
Þannig benti einn viðmælenda
blaðsins, sem ekki vill láta nafns
síns getið, á að dómnefndin hefði í
raun óskað eftir því að arkitekt-
arnir teiknuðu byggingu sem væri
stærri að innan en utan. Samkvæmt
húsrýmisáætlun var hámarks-
húsrýmisþörf byggingarinnar 1.794
brúttófermetrar. Allar voru tillög-
urnar sem skilað var mun meiri að
umfangi en það.
Meðal þeirra sem haldið hafa
fram þessari gagnrýni er Hrólfur
Karl Cela, arkitekt hjá Basalt arki-
tektum, en hann var meðal þátttak-
enda í samkeppninni.
„Þegar keppnislýsingin er þannig
úr garði gerð að keppendur verða
sjálfir að leggja óhemjuvinnu í að
taka ákvarðanir um hvað skuli vera
til staðar í byggingunni, í stað þess
að það komi skýrt fram af hálfu
verkkaupa, þá er verið að stofna til
mikils kostnaðar fyrir þátttakendur
með þessu. Það má gera ráð fyrir
að sá kostnaður hlaupi á tugum
milljóna hjá þeim 30 aðilum sem
þátt tóku.“
Hann bendir einnig á að það hafi
verið ómögulegt að koma þeim þátt-
um sem húsrýmisáætlunin kvað á
um í húsi af þeirri stærð sem ætlast
var til. Undir það sjónarmið tekur
Aðalsteinn Snorrason hjá Arkís en
hann sendi ásamt samstarfsfólki til-
lögu í keppninni.
„Það skipti engu máli hvernig við
snerum þessu. Við gátum illa komið
þessu fyrir enda urðu allar tillögur-
nar talsvert stærri í raun en lagt
var upp með.
Aðalsteinn er í hópi arkitekta
sem vakið hafa athygli á því að sú
tillaga sem varð hlutskörpust sé
önnur tveggja sem teiknaðar séu á
tveimur hæðum en ein helsta rök-
semd dómnefndarinnar á vali henn-
ar byggist einmitt á því að hún
myndi „lágstemmdan bakgrunn fyr-
ir Stjórnarráðshúsið og er á tveim-
ur hæðum sem er ótvíræður kost-
ur.“
Aðalsteinn segir að forsendur
keppninnar hafi í raun ekki boðið
upp á að koma byggingunni fyrir á
Segja keppnisskil-
málum breytt of seint
ÖBÍ segir ekki nægilegt tillit tekið til fatlaðra í tillögunni
Teikning/Kurtogpí
Viðbætur Ný viðbygging mun rísa aftan við Stjórnarráðsbygginguna.
Vinningstillagan er teiknuð af arkitektastofunni Kurtogpí.
1.9
1.7 1.10
1.
1
1
1.12
1.131.13
1.14 1.15
1.16
1.16
1.17
1.18 1.19
1.20
1.
2
0
1.21
1.22
1.23
1.14
1.1
1.1
1.2
1.2
1.3
1.4
1.8
1.5
1.6
1.18
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Allir velkomnir!
ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA
Þórður Snær Júlíusson
Ritstjóri Kjarnans og höfundur bókarinnar Kaupthinking
Opinn fundur í Hátíðasal Háskóla Íslands
þriðjudaginn 11. desember kl. 12-13
Samkeppni um Stjórnarráðsbyggingu
„Þegar við skoðum vinningstillög-
una þá finnst okkur hún ekki taka
nægilegt tillit til fatlaðs fólks, jafn-
vel þótt það hafi verið ein af kröf-
unum í lýsingunni.“ Þessum orðum
fer Þuríður Harpa Sigurðardóttir,
formaður Öryrkjabandalags Ís-
lands, um tillöguna sem bar sigur úr
býtum í samkeppninni um nýja við-
byggingu við Stjórnarráðshúsið.
„Þeir sem standa að þessari bygg-
ingu hljóta bæði að þurfa að taka til-
lit til þess möguleika að í Stjórnar-
ráðinu starfi fatlað fólk í hjólastól en
ekki síður að þangað þurfi að leita
fólk í hjólastól. Þá er það ekki til fyr-
irmyndar að bjóða upp á skrifstofur
sem eru 1,9 metrar á breidd. Það er í
raun alltof, alltof lítið. Þótt rýmið sé
í sjálfu sér ekki óaðgengilegt ófötl-
uðu fólki þá á ég erfitt með að sjá
það fyrir mér að fatlað fólk sem not-
ar t.d. rafmagnshjólastól geti at-
hafnað sig í þessu þrönga rými.“
Morgunblaðið bar þessa gagnrýni
undir Steinþór Kára Kárason, annan
höfunda vinningstillögunar. Hann
segir að við hönnun hússins hafi ver-
ið farið í einu og öllu eftir þeim kröf-
um sem byggingarreglugerð kveði á
um varðandi aðgengi fatlaðra.
„Þessi tillaga uppfyllir þessi skil-
yrði að öllu leyti og þar þarf að hafa
í huga að byggingarreglugerðin hér
á landi er afar ítarleg og góð.“
Hann segir að þótt skrifstofurnar
séu margar nokkuð á lengdina þá sé
öllu haganlega komið fyrir og að
tryggt sé að svokallað hindrunar-
laust snúningssvæði sé í öllum rým-
um. Þar er vísað í svæði sem gerir
fólki kleift að snúa hjólastól með
góðu móti.
Í skrifstofum sem eru á annarri
hæð vinningstillögunnar og eru
fjærst gamla Stjórnarráðshúsinu er
skrifborðum stillt upp eftir langhlið
rýmisins. Segir Steinþór að þær
borðplötur skerði fyrrnefnt snún-
ingssvæði ekki. Bendir hann á að
hægt sé að haga uppröðun innrétt-
inga þannig að hún mæti kröfum
fólks að góðu aðgengi.
Þuríður Harpa furðar sig á því að
ekki hafi verið haft samráð við Ör-
yrkjabandalagið við mat á tillögum
og kallar eftir svörum við því hvaða
sérfræðingar í aðgengismálum fatl-
aðra hafi verið kallaðir til ráðgjafar
í ferlinu.
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnarráðið Lengi hefur legið fyrir að stækka þyrfti skrifstofurými
forsætisráðuneytisins. Nú er stefnt að því að reisa nýja viðbyggingu þar.
Ekki samráð við
Öryrkjabandalagið
Í leiðbeiningum um hönnunar-
samkeppnir sem gefnar voru út árið
2011 í samstarfi íslenska ríkisins,
Arkitektafélags Íslands og Félags
sjálfstætt starfandi arkitekta er
m.a. fjallað um gerð samkeppnis-
lýsinga og hvaða kröfur hvíli á dóm-
nefndum í því tilliti. Þar segir: „Ekki
skal breyta keppnislýsingu eftir að
svör við fyrirspurnum í fyrri fyr-
irspurnartíma hafa borist þátttak-
endum nema í algerum undantekn-
ingartilvikum að mati
dómnefndar.“
Í fyrirspurnartímunum tveimur,
sem vísað er til, gefst þátttak-
endum kostur á því að beina fyr-
irspurnum til dómnefndar keppn-
innar í því skyni að glöggva sig á
málum er varða keppnina. Þátttak-
endur leggja fyrirspurnir fyrir um-
sjónarmann sem gætir nafnleyndar
en fyrirspurnirnar sem slíkar og
svörin við þeim verða hluti keppn-
isgagna í kjölfar birtingar þeirra.
Í framkvæmdasamkeppninni um
viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið
voru svör í fyrri fyrirspurnartíma
birt hinn 23. maí en svörin við síðari
tímanum 30. ágúst eða 26 dögum
áður en endanlegum tillögum
skyldi skilað.
Dómnefnd víki ekki frá lýsingu
BREYTINGAR GERÐAR SEINT Í FERLINU