Morgunblaðið - 08.12.2018, Side 22

Morgunblaðið - 08.12.2018, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 Verð frá 94.999 25% afsláttur af aukakönnum Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Jólagjöfin í ár Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix STUTT ● Samherji, sem fer með 9,22% hlut í smásölufyrir- tækinu Högum, hefur óskað eftir því við stjórn fé- lagsins að hún boði til hluthafa- fundar þar sem stjórnarkjör verði sett á dagskrá, eins og það er orð- að í tilkynningu sem send var til Kaup- hallar. Í tilkynningunni er vísað til hluta- félagalaga og samþykkta Haga, þar sem fram kemur að boða skuli til hlut- hafafundar ef hluthafar sem ráða yfir minnst 5% hlutafjárins krefjist þess skriflega og greini fundarefni. „Með vísan í samþykktir félagsins mun stjórn undirbúa boðun hluthafafundar,“ segir að lokum í tilkynningunni. tobj@mbl.is Samherji vill stjórnarkjör í Högum Sala Hagar reka m.a. Hagkaup. Í gær samþykkti ríkisstjórn Íslands að leggja fram á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstök- um takmörkunum og lögum um gjaldeyrismál. Í frétt frá Seðlabanka Íslands seg- ir að breytingarnar feli í sér að af- landskrónueigendur geti losað eignir sínar að fullu með því að skipta þeim í gjaldeyri á álandsmarkaði eða eiga þær sem fullgildar álandskrónur þegar um samfellt eignarhald frá því fyrir fjármagnshöft er um að ræða. Í fréttinni segir einnig að verði frumvarpið að lögum muni breyting- arnar fela í sér auknar heimildir til úttekta af reikningum sem háðir eru sérstökum takmörkunum. „Þessar auknu heimildir eru þrenns konar. Í fyrsta lagi er um að ræða almenna heimild fyrir alla aflandskrónu- eigendur til að losa aflandskrónu- eignir til að kaupa erlendan gjald- eyri og flytja á reikning erlendis. Í öðru lagi er heimild fyrir aflands- krónueigendur, sem átt hafa af- landskrónueignir samfellt frá 28. nóvember 2008, til að losa aflands- krónueignir undan takmörkunum laganna. Í þriðja lagi er heimild fyrir einstaklinga til að taka út allt að 100 milljónir króna af reikningum háð- um sérstökum takmörkunum.“ Eru 3,1% af landsframleiðslu Þá segir í frétt Seðlabankans að stjórnvöld hafi unnið markvisst að því að leysa þann vanda sem felst í aflandskrónueignum við losun fjár- magnshafta með ýmsum hætti og hafi heildarumfang aflandskrónu- eigna minnkað. Við gildistöku lag- anna um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, sem tóku gildi í maí 2016, voru af- landskrónueignir áætlaðar um 319 milljarðar króna eða um 15% af vergri landsframleiðslu, samkvæmt fréttinni, en eru nú metnar um 84 milljarðar eða um 3,1% af vergri landsframleiðslu. Þá segir bankinn að efnahagslegar forsendur standi nú til þess að losa fjármagnshöft á aflandskrónueignum. Morgunblaðið/Ómar Krónur Efnahagslegar forsendur standa nú til losunar fjármagnshafta. Aflandseignir losaðar að fullu  84 milljarðar eftir af aflandskrónum langt síðan mathöllin var opnuð. Það var 1. júní en frá þeim tíma hafa 170 þúsund gestir komið við í mathöll- inni. Berta segir að mathöllin sé meiri nágrennisstaður en þau hjá Sjávar- klasanum hafi gert sér grein fyrir. „Grandi mathöll er miklu meiri ná- grennisstaður en við gerðum okkur grein fyrir. Við fáum svo ofboðslega mikið af fjölskyldum til okkar í mat, en ekki bara í drykki,“ segir Berta í samtali við Morgunblaðið. Þekkt tekjumódel Aðspurð segir hún að leigan á Granda mathöll sé ekki meira íþyngjandi en á öðrum sambæri- legum stöðum. Spurð hvort hún hafi heyrt af slíkri umræðu segir Berta: „Já, auðvitað höfum við verið að taka spjallið með það en ég held að hún sé ekkert meira íþyngjandi en annars staðar. Það sem er alltaf íþyngjandi í veitingahúsarekstri er startkostnaðurinn. Hann þyngir róðurinn. En þau horfa nú fram á bjartari tíma,“ segir Berta um rekstraraðila mathallarinnar. „Leigumódelið á Granda mathöll er sambærilegt því sem er annars stað- ar þar sem nokkrir staðir koma saman. Þetta tekjumódel er sam- bærilegt við aðrar mathallir, bæði að íslenskri og erlendri fyrirmynd,“ segir Berta. Opna fiskbúð Að sögn Bertu hefur rekstur mat- hallarinnar gengið afar vel og stefnt er að opnun fiskbúðar í mathöllinni snemma á næsta ári. „Þetta fer afskaplega vel af stað. Það sem við erum að undirbúa núna er að við erum að opna fiskbúð á næsta ári. Til að tengja betur saman höfnina og sjávarútveginn fyrir gestina. Þar getur þú keypt fisk til þess að elda heima, tilbúna fiskrétti. Eða jafnvel fengið þér einhvern góð- an rétt og tyllt þér í mathöllinni og fengið þér að borða líka,“ segir Berta. Aðspurð hvort það sé ekki einmitt það sem fólk hefur verið að kalla eftir jánkar hún því. „Jú, klárlega. Okkur hefur þótt vanta svona gamaldags og góða fisk- búð á Granda. Við stefnum að því að Grandinn verði kísildalur sjávar- útvegs í heiminum og þá er nú alveg nauðsynlegt að hafa eina fiskbúð,“ segir Berta. Ljóst er að nóg er um að vera á Granda þessa dagana en um helgina verður haldin aðventu- hátíð á svæðinu með jólasveinum og lifandi tónlist þar sem öll fyrirtækin taka þátt. Margar breytingar í mathöllinni  170 þúsund gestir hafa sótt Granda mathöll frá opnun  Micro Roast vínbar er á útleið og óljóst hvað kemur í staðinn  Stefnt er að opnun fiskbúðar snemma á næsta ári sem tengir mathöllina við umhverfið Mathöll 170 þúsund gestir hafa sótt Granda mathöll frá 1. júní. Þar er nóg um að vera og er m.a. stefnt að opnun fiskbúðar snemma á næsta ári. Ljósmynd/Chris Cary Grandi mathöll » 170 þúsund gestir hafa sótt Granda mathöll frá 1. júní er mathöllin var opnuð. » Stefnt er að opnun „gamal- dags“ fiskbúðar snemma á næsta ári þar sem einnig verð- ur hægt að borða á staðnum. » Micro Roast vínbar verður lokað á næstunni og óvíst er hvað kemur í staðinn. » Frumkvöðlavagninn hefur verið tekinn tímabundið úr um- ferð en verður opnaður í nýrri mynd þar sem boðið verður upp á fjölbreyttari mat. BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Nokkrar breytingar eru í farvatninu hjá Granda mathöll. Loka á Micro Roast vínbar, sem rekinn er af Te og kaffi, en staðurinn leggur undir sig flesta fermetra í mathöllinni og óvíst er hvaða rekstraraðili kemur inn í staðinn. Þá hefur Pop-up vagninn tímabundið verið tekinn úr umferð en þar hafa matarfrumkvöðlar feng- ið tækifæri til þess að leigja vagninn í 1-2 mánuði. Ætlunin er að gera vagninn veglegri svo hægt sé að bjóða upp á fjölbreyttari mat. Því til viðbótar er einn rekstraraðili kom- inn í söluferli en ekki var hægt að fá upplýsingar um hvaða staður það er að svo stöddu. Að auki er stefnt að opnun nýrrar fiskbúðar í höllinni sem kemur til viðbótar við þá staði sem fyrir eru. Því verður mathöllin stækkuð. Nágrennisstaður Að sögn Bertu Daníelsdóttur, framkvæmdastjóra Sjávarklasans, sem rekur Granda mathöll, eru breytingarnar eðlilegur hluti af rekstri slíkrar mathallar. Sér í lagi þegar horft er til þess að ekki er 8. desember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.6 123.18 122.89 Sterlingspund 156.04 156.8 156.42 Kanadadalur 91.18 91.72 91.45 Dönsk króna 18.595 18.703 18.649 Norsk króna 14.304 14.388 14.346 Sænsk króna 13.571 13.651 13.611 Svissn. franki 122.75 123.43 123.09 Japanskt jen 1.0865 1.0929 1.0897 SDR 169.45 170.45 169.95 Evra 138.81 139.59 139.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.627 Hrávöruverð Gull 1236.45 ($/únsa) Ál 1966.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.36 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.