Morgunblaðið - 08.12.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Óttast er að handtaka Meng
Wanzhou, fjármálastjóra kín-
verska tæknirisans Huawei, magni
spennuna í samskiptum Bandaríkj-
anna og Kína og torveldi tilraunir
landanna til að binda enda á tolla-
stríð þeirra.
Hermt er að handtakan tengist
rannsókn á meintum brotum Hua-
wei á refsiaðgerðum Bandaríkj-
anna gegn klerkastjórninni í Íran.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
einnig haft áhyggjur af því að Kín-
verjar geti notað fjarskiptatæki
frá Huawei til að njósna eða trufla
fjarskipti á Vesturlöndum, að sögn
bandarískra fjölmiðla.
Gat ekki gerst á verri tíma
Meng er dóttir forstjóra Huawei
og var handtekin í Vancouver í
Kanada á laugardaginn var að
beiðni yfirvalda í Bandaríkjunum
sem hafa óskað eftir því að hún
verði framseld þangað. Sama dag
ræddi Donald Trump Bandaríkja-
forseti við Xi Jinping, forseta
Kína, á leiðtogafundi G20-ríkjanna
í Argentínu og þeir sammæltust þá
um að fresta því að leggja á nýja
tolla meðan reynt verður að leysa
viðskiptadeilur ríkjanna tveggja
næstu þrjá mánuði.
„Þetta hefði ekki getað gerst á
verri tíma og varpar líklega
skugga á komandi samninga-
viðræður,“ hefur fréttavefur
breska ríkisútvarpsins eftir Vinesh
Motwani, framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins Silk Road Research í
Singapúr. Hann segir handtökuna
kynda undir efasemdum á fjár-
málamörkuðum um að hægt verði
að leysa viðskiptadeilur Bandaríkj-
anna og Kína á næstu mánuðum.
Fréttaskýrendur óttast að hand-
takan auki enn á spennuna í sam-
skiptum ríkjanna, einkum ef
Trump reynir að nota handtökuna
til að knýja fram tilslakanir af
hálfu kínverskra stjórnvalda í við-
skiptadeilunum, að sögn The Wall
Street Journal. „Ég hef miklar
áhyggjur af því að þetta magni við-
skiptastríðið og torveldi mjög
samningaviðræðurnar,“ hefur
blaðið eftir Gary Locke, fyrrver-
andi sendiherra Bandaríkjanna í
Kína. „Ég tel að þetta sé mál sem
veki hörð viðbrögð, eiginlega eins
og sprengja í viðræðurnar næstu
þrjá mánuði.“
Líklegt er að kínversk stjórn-
völd líti á handtökuna sem árás
eða „gíslatöku“, að sögn rithöfund-
arins Elliotts Zaagmans sem hefur
fylgst grannt með vexti Huawei
síðustu tvo áratugi. „Kínverjar
hafa getið sér orð fyrir að gera
samninga og standa síðan ekki við
þá, fylgja þeim ekki eftir,“ hefur
fréttavefur BBC eftir Zaagman.
„Komið hefur fram sú kenning að
þetta sé leið fyrir Bandaríkin til að
láta Kínverja standa við orð sín í
viðskiptastríðinu.“
Tæknin notuð til njósna?
The Wall Street Journal hefur
eftir sérfræðingum í öryggis-
málum að handtakan ýti undir bar-
áttu bandarískra yfirvalda fyrir
því að farsíma- og netþjónustu-
fyrirtæki á Vesturlöndum kaupi
ekki tæki frá Huawei sem Kínverj-
ar gætu hugsanleg notað til að
njósna.
Huawei er stærsti framleiðandi
fjarskiptatækja í heiminum, m.a.
farsímamastra. Fyrirtækið er
einnig næststærsti framleiðandi
snjallsíma í heiminum, á eftir Sam-
sung, og skaust nýlega fram úr
Apple á þeim markaði.
Huawei hefur verið í mikilli sókn
í þróun tækni fyrir næstu kynslóð
farneta, G5, sem gert er ráð fyrir
að tengi fleiri tæki við netið en nú-
verandi farnet, svo sem tæki í
verksmiðjum, sjálfakandi bíla,
heimilistæki og ýmsan búnað sem
fólk hefur á sér, svo sem heilsu-
mælitæki. Bandarísk yfirvöld ótt-
ast að framfarir tæknirisans á
þessu sviði verði svo miklar að
fyrirtæki í Bandaríkjunum og sam-
starfslöndum þeirra neyðist til að
nota G5-tæki frá Huawei. Helstu
keppinautar fyrirtækisins á þessu
sviði eru Ericsson í Svíþjóð og
Nokia í Finnlandi en ekkert
bandarískt fyrirtæki er framarlega
í framleiðslu á slíkum fjarskipta-
tækjum.
Bandaríkjamenn óttast að fjar-
skiptatækin geti gert Kínverjum
kleift að njósna eða trufla fjar-
skipti á Vesturlöndum ef til átaka
kemur þegar fram líða stundir.
Stjórnendur Huawei neita
þessu, segja að fyrirtækið sé í eigu
starfsmanna þess, lúti ekki stjórn
ráðamanna í Kína og hafi aldrei
notað tækni sína til að njósna eða
ógna öðrum löndum.
Forstjóri Huawei var verkfræð-
ingur í kínverska hernum áður en
hann stofnaði Huawei árið 1987 og
þau tengsl hans við herinn hafa
kynt undir grunsemdum um að
kínversk stjórnvöld kunni að reyna
að nýta sér tækni fyrirtækisins.
„Eins og sprengja í viðræðurnar“
Handtaka fjármálastjóra kínverska tæknirisans Huawei sögð geta torveldað samkomulag um að
binda enda á tollastríð Bandaríkjanna og Kína Óttast að hægt sé að nota tækni Huawei til njósna
Notkun fjarskiptatækja frá Huawei hefur verið bönnuð eða takmörkuð í nokkrum löndum í ár
Vöxtur fyrirtækisins
Hlutdeild Huawei á snjallsíma-
markaðnum í heiminum
Bandaríkin
Áform um
samstarf við
AT&T fara út
um þúfur
Ástralía bannar Huawei að
koma upp 5G-farneti af ótta við að
það geti stefnt þjóðaröryggi í hættu.
Óttast er að Kínverjar geti notað tæki
frá Huawei til njósna
Bandaríkin
hvetja sam-
starfslönd til
að forðast
að nota
fjarskiptatæki
Huawei
Nýja-Sjáland
Leyniþjónusta
landsins hindrar
notkun 5G-tækni
Huawei
Bretland BT
fjarlægir tæki frá
Huawei úr 4G-
fjarneti sínu
Jan. 2018201720162015
5%
10%
15%
Ágúst
Nóv. Des.
Þjarmað að kínverska tæknirisanum Huawei
Heimild: IDC/Trendforce
Japan bannar ríkis-
stofnunum að nota
fjarskiptatæki frá Huawei
Markaðshlutdeild í júlí-sept. í ár
Samsung
20,3
Huawei
14,6%
Apple
13,2
Xiaomi
9,7
Oppo
8,4Önnur
33,8
Kanada
Fjármálastjóri
Huawei
handtekinn í
Vancouver á
laugardaginn var
2018
„Prinsessa“ Huawei
» Meng Wanzhou hefur verið
nefnd „prinsessa“ Huawei en
hún virðist nú vera orðin að
peði í deilum Bandaríkjanna og
Kína eftir handtöku hennar.
» Meng er fjármálastjóri og
varaformaður stjórnar tækni-
risans og dóttir stofnanda
fyrirtækisins, Ren Zhengfei.
Gert hefur verið ráð fyrir því að
hún taki við af honum sem for-
stjóri ræknirisans.
» Um 80.000 af 180.000
starfsmönnum Huawei eru
skráðir eigendur fyrirtækisins.
Annegret Kramp-Karrenbauer,
framkvæmdastjóri Kristilegra
demókrata, var kjörin leiðtogi
flokksins í stað Angelu Merkel
kanslara á landsfundi í Hamborg í
gær. Merkel hafði sagt af sér sem
flokksleiðtogi en hyggst gegna
kanslaraembættinu út kjörtímabilið
sem lýkur árið 2021. Þótt Kramp-
Karrenbauer sé hærri vexti en
kanslarinn hefur hún verið kölluð
„litla Merkel“ vegna þess að póli-
tísk viðhorf þeirra hafa verið
áþekk. Hún er 56 ára og fyrrver-
andi forsætisráðherra Saarlands,
minnsta sambandslandsins. Hún
telst til miðjumanna í flokknum.
Kramp-Karrenbauer fékk 51,7%
af 999 atkvæðum á landsfundinum.
Hún sigraði kaupsýslumanninn
Friedrich Merz, sem gert hafði ver-
ið ráð fyrir því að myndi færa
flokkinn til hægri.
ÞÝSKALAND
AFP
Nýr leiðtogi Annegret Kramp-
Karrenbauer og Angela Merkel.
„Litla Merkel“
kjörin leiðtogi
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR
100% Merino ull
Þægileg ullarnærföt á góðu verði
Stærðir: S – XXL
Þinn dagur, þín áskor
OLYMPIA
Gefðu hlýjan
pakka um jólin
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Heimkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri
Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum
Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Höfn • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is