Morgunblaðið - 08.12.2018, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Fyrir nokkrum árum fór afstað umræða um munisem tengjast einvígiFischers og Spasskí í
Laugardalshöll sumarið 1972. Tafl-
menn sem notaðir voru í 3. skák voru
seldir á uppboði í New York árið
2011 og nokkru síðar tók danska
uppboðsfyrirtækið Bruun Rasmus-
sen í Danmörku til sölu eftirlíkingar
af því borði sem Gunnar Magnússon
hafði hannað fyrir einvígið en verð-
mætasti gripurinn „innanborðs“ var
skákborðið sjálft en á því fór bar-
áttan fram. Efasemdir um að rétt
skákborð væri til sölu komu strax
fram og voru m.a. byggðar á upplýs-
ingum Þráins heitins Guðmunds-
sonar, fyrrverandi forseta SÍ.
Besta íslenska heimildin um ein-
vígið er bók Freysteins Jóhanns-
sonar og Friðriks Ólafssonar, Fisch-
er gegn Spassky. Freysteinn var
blaðafulltrúi SÍ og hafði aðgang að
gögnum sem því viðvék. Í bókinni
kemur fram að skákir einvígisins
voru tefldar á tveim skákborðum, á
steinborðinu voru fyrstu skákir ein-
vígisins tefldar, nema sú þriðja sem
eins og skákir 7-21 voru tefldar á því
tréborði sem hér um ræðir:
„Alls voru smíðuð 19 taflborð til
einvígisins,“ skrifar Freysteinn.
„Fyrst 4 steinborð, þá 5 tréborð og
loks 10 tréborð til viðbótar. Af öllum
þessum fjölda tefldu kapparnir að-
eins á tveim borðum; steinborði, sem
nú er geymt á Þjóðminjasafni Ís-
lands, og tréborði.“
Því er við að bæta að eftir miklar
vífillengjur lofaði Fischer að árita 10
tréborð, „ … sem ekki verði notuð,“
eins og stendur skrifað í bók Frey-
steins og Friðriks. Tréborðið sem
Þráinn fullyrti að hefði verið notað er
í vörslu SÍ og það er óáritað.
Eftir einvígið réðst stjórn SÍ í að
láta smíða eftirlíkingar af borði
Gunnars Magnússonar húsgagna-
arkitekts og keypti athafnamaðurinn
Páll G. Jónsson tvö slík en þeim
fylgdi skákborð sem Páll taldi greini-
lega að hefði verið notað í einvíginu –
tréborðið.
Hjá Bruun Rasmussen voru gripir
þessir settir í söluferli sumarið 2012.
Ekki varð af sölu. Hjá Heritage
auction í New York í nóvember 2016
voru gripirnir svo aftur til sölu og
verðmiðinn á fyrsta boði 120 þús.
bandaríkjadalir (tæplega 15 millj-
ónir ísl.) en matsverð á gripunum
reiknað upp á 300 þús. bandaríkja-
dali (tæplega 37 millj. ísl.).
En var verið að bjóða upp rétt
skákborð? Mér fannst blasa við að
góð ljósmynd myndi leiða sannleik-
ann í ljós en þær fáu myndir sem ég
komst yfir og gátu gefið einhverja
vísbendingu voru ekki í nægilega
góðri upplausn. Eftir nokkra eftir-
grennslan ákvað ég að láta staðar
numið – um stundarsakir.
Ekki alls fyrir löngu hafði sam-
band við mig gamall kunningi, Júlíus
Hjörleifsson. Hann kom á fundi með
mér og spænskum manni, Alberto
Canagueral, sem skrifaði um einvíg-
ið fyrir spænsk blöð. Meðal vina sem
hann eignaðist hér á landi var Sig-
urður Jakobsson, næturvörður í
Laugardalshöll meðan á einvíginu
stóð. Þegar kvölda tók fór Alberto
stundum í Höllina til að heilsa upp á
Sigurð. Myndin sem hann sendi mér
frá Barcelona og fylgir þessari grein
er tekin af sviðinu eftir að síðustu
skákinni lauk. Tréborðið sem á voru
tefldar skákirnar sextán er þarna í
allri sinni dýrð en takið eftir – línur á
reitunum vísa í aðra átt. Enn er því
fullkomin óvissa um það hvar tré-
borðið er niðurkomið. Nú þegar
styttist í 50 ára afmæli „einvígis ald-
arinnar“ er æskilegt að sú gáta verði
leyst.
Hvar er skákborðið sem Fischer
og Spasskí notuðu 16 sinnum?
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Sigurður Jakobsson
Lokastaðan Vinur næturvarðarins, Alberto Canagueral, á sviði Laugardalshallar í byrjun september 1972. Á skák-
borðinu er lokastaðan í síðustu einvígisskákinni. Línurnar í viðnum liggja langsum.
Morgunblaðið/Heritage Auctions
Skákborðið eins og það var kynnt á
vef Heritage Auctions í nóvember
2016. Línurnar í viðnum liggja
þversum.
Atvinna
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Fallegt 4ra-5 herbergja endaraðhús á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ.
Húsið er í heildina 179,6 fm, þar af bílskúr 29,6 fm. Mjög rúmgott risloft
með óskráðum fm nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi og skrifstofa. Bílskúr
er með góðri lofthæð og geymslulofti (óskráður gólfflötur).
Bílaplan með hitalögn. Húsið var málað að utan sumarið 2017.
75,9 mkr.
s 570 4800
gimli@gimli.is
www.gimli.is
Spóahöfði 2 - Endaraðhús 179,6 m2
Nánari uppl.: Elín Urður, aðstm. elin@gimli.is, s. 690 2602 eða halla@gimli.is
BLIKKSMIÐJA
rekstur og fasteign
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Svavarsson:
gunnar@kontakt.is
H
au
ku
r1
2.
18
KONTAKT hefur verið falið að finna kaupendur
að Blikkiðjunni ehf. Garðabæ.
Fyrirtækið rekur ágætlega tækjum búna
blikksmiðju í eigin húsnæði (alls 635 m2) að Iðnbúð 3.