Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 34

Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is ✝ Lára JónaÓlafsdóttir fæddist í Ólafsvík 20. september 1931. Hún lést 27. nóvember 2018 á Landspítalanum í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru þau Ólafur Björn Bjarnason, f. 5. ágúst 1906 í Kötluholti, Fróðár- hreppi á Snæfellsnesi, d. 5. mars 1973, og Laufey Þorgríms- dóttir, f. 17. desember 1911 í Ólafsvík, d. 16. nóvember 1992. Lára átti fjögur systkini og var hún elst þeirra. Systkini hennar sem eru látin voru Ing- unn, f. 2. apríl 1933, d. 16. febr- úar 1986, Hulda Erla, f. 9. des- ember 1941, d. 18. mars 1997, og Hilmar, f. 30. mars 1950, d. 24. júlí 2013. Eftirlifandi eru Sigrún, f. 24. september 1936, og Sólveig Jó- hannesdóttir, uppeldissystir, f. 31. janúar 1943. Orri Freyr. 5) Laufey, f. 28. febrúar 1960, maki Reynir V. Georgsson, f. 21. janúar 1954. Börn þeirra eru Regína Val- björg og Birkir Viðar, Reynir átti fyrir soninn Ívar Örn. 6) Jónas, f. 16. júlí 1965, maki Kristín Kristófersdóttir, f. 17. september 1968. Börn þeirra eru Hildigunnur, Þorbjörg og Þórkatla, sem er látin. Lang- ömmubörnin eru 35 talsins auk þess sem tvö eru látin. Lára var fædd og uppalin í Ólafsvík og bjó þar nær alla sína ævi fyrir utan þann tíma sem þau hjónin fluttu með fjöl- skylduna til Reykjavíkur vet- urinn 1956 til 1957 en þar stundaði Jónas eiginmaður hennar nám í Stýrimannaskól- anum. Lára vann við ýmis störf tengd fiskvinnslu og útgerð. Eftir að börnunum fjölgaði var hún að mestu heimavinnandi húsmóðir. Lára og Jónas bjuggu alla sína sambúð í Ólafsvík. Eftir að Jónas dó 2015 fluttist Lára á Dvalarheimilið Jaðar í Ólafsvík þar sem hún bjó til æviloka. Útför Láru verður gerð frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 8. des- ember 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Eiginmaður Láru var Jónas Ell- ert Guðmundsson útgerðarmaður og skipstjóri, f. 3. maí 1930, d. 22. maí 2015. Foreldrar hans voru Guð- mundur Katarínus Gíslason og Ágústa Jónasdóttir. Börn Jónasar og Láru eru: 1) Björn Erlingur, f. 6. janúar 1950, maki Kristín G. Vigfúsdóttir, f. 27. febrúar 1949. Börn þeirra eru Vigfús Kristinn, Lára Jóna og Gyða Hlín. 2) Hreinn, f. 28. maí 1951, maki Ingunn J. Gunnars- dóttir, f. 28. nóvember 1952. Börn þeirra eru Gunnar, Vignir og Ellert. 3) Ágústa, f. 4. októ- ber 1953, maki Stefán Hjalta- son, f. 11. apríl 1953. Börn þeirra eru Halldóra, Sigurður og Jónas. 4) Magnús, f. 3. sept- ember 1955, maki Sædís Einars- dóttir, f. 12. október 1956. Börn þeirra eru Heiðar, Elva Ösp og Elsku amma okkar Lára J. Ólafsdóttir hefur nú kvatt þetta líf fyrr en við áttum von á. Amma var einstök perla sem okkur þótti endalaust vænt um. Hún fór ekki mikið út en þegar hún mætti í veislur og önnur mannamót var hún hrókur alls fagnaðar og var með þeim síð- ustu til þess að fara heim. Hún var alltaf svo glæsileg og vel tilhöfð enda elskaði hún að punta sig. Hárið varð að vera vel greitt, varalitur á vörunum, naglalakk á nöglunum, skart um háls og á hendi. Aldrei voru spegillinn og greiðan langt und- an hvert sem hún fór. Ilmvatni eða vellyktandi eins og hún kall- aði það úðaði hún á sig hátt og lágt og dugði eitt ilmvatnsglas ekki út mánuðinn. Hún var mikill fagurkeri og vildi hafa fallegt í kringum sig og áttu þau afi falleg heimili. Afi kom með marga fallega hluti úr siglingunum erlendis og færði ömmu, enda dekraði hann mikið við drottninguna sína alla tíð. Hún elskaði góðan mat, kökur og ís. Ein kaka var þó í miklu uppáhaldi hjá henni en það var Lúlla rjómaterta og hélt hún ekki boð eða afmæli án þess að bjóða upp á eina slíka ásamt heitu súkkulaði. Við barnabörnin höfðum stundum gaman af því að biðja hana að gefa okkur kakó í bollann en þá sagði hún strax að þetta væri nú ekki kakó, heldur alvöru heitt súkkulaði. Amma var nú ekkert hrifin af því í byrjun að fara á dvalar- heimili en þegar hún var svo loksins komin á staðinn naut hún þess og var svo glöð og ánægð með litlu íbúðina sína á Jaðri. Þar eignaðist hún góðar vinkon- ur og vini sem eiga eftir að sakna hennar mikið enda lífgaði hún upp á heimilislífið og var dugleg að sitja og spjalla við heimilis- fólkið. Kveðjum við þig með söknuði og djúpri virðingu elsku amma. Í hjarta okkar vitum við að afi Jónas tekur vel á móti þér er þið sameinist á ný. Minning þín lifir með okkur og börnum okkar um ókomin ár. Hvíl í friði elsku amma okkar. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Þín barnabörn, Elva Ösp, Heiðar og Orri Freyr. Í dag þegar ég kveð ástkæra ömmu mína og nöfnu streyma fram í hugann margar ljúfar minningar sem henni tengjast. Amma var glæsileg kona og hafði gaman af því að hafa sig til og ekki var spegillinn og greiðan langt undan. Ég varla minnist þess að hafa séð hana án þess að vera með varalit og vel tilhafða. Ég á margar góðar minningar úr fataherberginu hennar sem var eins og framandi heimur fyrir mér, ungri stelpu í Ólafsvík. Allir fínu kjólarnir og leðurstígvélin sem hún átti, enda voru amma og afi dugleg að ferðast til útlanda og í þeim ferðum keypti hún sér glæsileg föt. Amma var mikil húsmóðir og bakaði heimsins bestu kökur og bar rausnarlega á borð. Ekki skemmdi fyrir að fá danskt app- elsín og annan framandi varning sem afi kom með heim úr sigl- ingum. Einnig minnist ég þess að alltaf var farið á aðfangadags- kvöld til ömmu og afa. Þar var boðið upp á heitt súkkulaði, rjómatertu frá Lúlla að ógleymd- um loftkökunum sem enginn gerði betur en hún. Amma var gamansöm og sá mjög oft spaugilegu hliðarnar á lífinu. Hún var hreinskilin og sagði nákvæmlega það sem henni fannst og hafði skoðun á mönnun og málefnum. Við nöfn- urnar gátum oft setið saman og spjallað um heima og geima og ekki leiddist henni þegar ég kom með amaretto sem við dreyptum á. Oftar en ekki minntist hún á það hvað hún sæi eftir því að hafa ekki lært veðurfræði og endurnýjað ökuskírteinið. Amma minnti mig oft á það þegar ég var lítil og skammaðist út í nafn- ið mitt en þá spurði hún mig hvað ég vildi heita og ég svaraði: „Katla María eða Rut Reg- inalds“. Alltaf skammaðist ég mín jafnmikið þar sem ég hef ávallt verið stolt af því að bera nafn ömmu. Nú kveð ég ömmu hinstu kveðju og ég veit að afi mun taka vel á móti henni með þakklæti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Lára Jóna Björnsdóttir og fjölskylda. Elsku amma Lára. Það er skrýtið að kveðja þig þar sem þú fórst svo óvænt frá okkur en svona er lífið óútreikn- anlegt. Ég veit að afi Jónas hefur tekið vel á móti þér, sé fyrir mér fallegu fagnaðarfundina. Þegar ég hugsa til þín, þá brosi ég því ég sé þig alltaf fyrir mér brosandi, alltaf svo stutt í skemmtilega hláturinn þinn. Þú varst mikill húmoristi og við Hermann höfðum gaman af því að spjalla við þig um heima og geima, þú lumaðir alltaf á skemmtilegum sögum. Hermann átti það til að grínast mikið í þér, því þú tókst því svo vel og vissir aldrei hverju þú gætir átt von á næst frá honum. Þú varst alltaf svo fín og flott. Neglurnar lakkaðar, hárið vel greitt, varaliturinn á sínum stað og alltaf í þínu fínasta pússi. Svo var þetta alltaf toppað með góðu vellyktandi eins og þú kallaðir ilmvötnin alltaf, enda þurfti reglulega að uppfæra lagerinn. Þú varst algjör drottning, amma. Ég sem var búin að kaupa handa þér svo fallega „Ömmu Láru blússu“ í jólagjöf, veit að þú hefðir verið ánægð með hana, hún glitrar svo vel og er agalega lekker. Þegar ég var yngri fannst mér svo gaman að vera hjá ykkur afa í pössun. Húsið ykkar í Stekkjar- holti var mikill ævintýraheimur fyrir mér, ég leit á það sem kast- ala enda stórt og fallegt. Það var gaman að fara í feluleiki þar, skoða allar bækurnar hans afa því þær voru sko margar og fjöl- breyttar og kíkja í sána á köldum vetrarkvöldum. Skemmtilegast þótti mér þó að sitja við plötu- spilarann og skoða og spila plöt- urnar ykkar. Spilaði Simmsala- bimm út í eitt, enda var hún uppáhalds. Svo var ekki leiðin- legt að borða allar kræsingarnar sem þú bauðst upp á í kvöld- kaffinu og þegar þú fléttaðir á mér hárið áður en ég fór að sofa. Margar góðar minningar sem ylja manni svo sannarlega um hjartaræturnar. Takk, amma mín, fyrir allar góðu stundirnar. Þín Regína. Lára Jóna Ólafsdóttir ✝ Ragna GuðrúnAtladóttir fæddist í Reykjavík 29. janúar 1953. Hún lést á heimili sínu 15. nóvember 2018. Foreldrar Rögnu Guðrúnar eru Ragnhildur Berg- þórsdóttir, fædd á Mosfelli 27. mars 1928, dóttir hjón- anna Rögnu Sigríðar Ingibjargar Björnsdóttur, f. 22. júlí 1899, d. 21. júní 1976, og Bergþórs Njáls Magnússonar, f. 29. ágúst 1900, d. 5. september 1990, og Atli Hólm Elíasson, f. 11. apríl 1926, d. 16. nóvember 2009, sonur hjónanna Elíasar Hólms Finns- sonar, f. 26. nóvember 1894, d. 13. ágúst 1960, og Guðrúnar Sig- urlaugar Sigurðardóttur Hólm, f. 21. september 1902, d. 4. nóv- ember 1984. Jónína Kristmanns giftist Valdi- mar Þór Svavarssyni 20. júlí 1996 og eignuðust þau tvö börn; Svav- ar Inga, f. 3. september 1997, og Lenu Margréti, f. 3. maí 2000. Jónína og Valdimar slitu sam- vistum. Jónína giftist Ara Gunnarssyni 11. ágúst 2012 og eignuðust þau eina stúlku, Rögnu Mist, f. 8. des- ember 2008. Þau slitu samvistum. Ari Gunnarsson átti fyrir Gunnar Val, f. 5. september 1989, í sambúð með Guðrúnu Sif, f. 2. september 1988, og eiga þau son- inn Mikael Ara, f. 8. júní 2010, Söndru Ósk, f. 22. maí 1996, í sambúð með Ara Má, f. 11. nóv- ember 1996, Arnór Mikael, f. 22. janúar 2003. Ragna Guðrún lauk gagn- fræðaprófi frá Vogaskóla og hóf þá strax störf við Landsbanka Ís- lands og starfaði hún þar í 23 ár eða til ársins 1993. Ragna Guð- rún fékk heilablóðfall tæplega þrítug, sem hafði áhrif á starfs- getu hennar vegna skertrar sjón- ar. Ragna Guðrún átti við mikinn heilsubrest að stríða síðasta ára- tug. Útför Rögnu hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragna Guðrún er næst yngst fimm systkina. Elst er Bjarghildur Atla- dóttir, f. 28. sept- ember 1946, Berg- þór Atlason, f. 30. júní 1948, Margrét Atladóttir, f. 27. nóv- ember 1949, Valdís Atladóttir, f. 18. febrúar 1959. Ragna Guðrún trúlofaðist Inga Kristmanns gull- smið þann 31. desember 1970 og eignuðust þau eina dóttur. Þau slitu þó samvistum. Dóttir þeirra, Jónína Kristmanns, f. 23. sept- ember 1974, lauk sveinsprófi í hárgreiðslu 1994, varð raun- greinastúdent frá Tækniskóla Ís- lands 2003, lauk byggingar- tæknifræði frá HR 2007 og fékk réttindi sem viðurkenndur bókari 2012. Í dag starfar hún sem aðal- bókari hjá Lely Center Island. Elsku mamma. Þú hefur loksins fengið hvíld- ina sem þú hefur þráð svo lengi þrátt fyrir að vera svona ung. Síðustu ár hafa ekki verið þér auðveld. Það sem þú hefur mátt þurfa að ganga í gegnum er með ólíkindum. En upp á fæt- urna fórstu alltaf aftur. Þú sýndir það strax þegar þú komst í þennan heim, sjö merk- ur og 43 cm, að þú værir jaxl þó þú værir svona agnarsmá. Á sama tíma og ég samgleðst þér fyrir hvíldina þá finn ég til mik- ils saknaðar eftir henni múttu minni með rauða naglalakkið sitt, ljósu strípurnar og háu hælana. Við vorum ekki alltaf sam- mála en við elskuðum hvor aðra skilyrðislaust. Þannig vorum við, elsku mamma. Ég get ekki sleppt því að rifja upp ferðirnar okkar upp í Selvík á Bjöllunni. Við fórum mörg sumrin saman og nutum þess að vera í náttúrunni. Í minningunni var nánast alltaf sól og blíða og þú í sólbaði. Þol- inmæðin sem þú hafðir að liggja í sólbaði, ég skil hana ekki enn. Þolinmæði þín hefur líklega hjálpað þér í gegnum öll ósköp- in sem dundu á síðustu ár. Ég vil meina að það hafi gleymst að gefa mér þolinmæði í fæðing- argjöf, en þú hefur líklega haft þörf á mínum skammti líka. Ég skal lifa með því áfram. Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. – Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimum uppfyllast má. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna, systir mín góð. (Davíð Stefánsson) Elsku mamma, ég mun halda minningu þinni lifandi um ókomna framtíð. Þín dóttir Jónína (Jónka). Ragna Guðrún Atladóttir Það voru áhuga- samir sjómenn sem völdu sameiginlega kennslustofu þegar Stýrimannaskólinn í Reykjavík var settur haustið 1975. Í þá daga raðaði skólinn ekki niður í bekki fyrir fyrsta árs nemend- ur og því var það tilviljun ein sem réð hvernig menn röðuðust saman í bekki. Okkar bekkur samanstóð bæði af ungum, lausum og lið- ugum mönnum sem og harð- Sæmundur Þór Guðmundsson ✝ Sæmundur ÞórGuðmundsson fæddist 30. júní 1946. Hann lést 20. nóvember 2018. Útför hans fór fram 3. desember 2018. giftum fjölskyldu- mönnum. Sæmundur Þór, eða Sæmi eins og við kölluðum hann, var einn þessara harðgiftu fjöl- skyldumanna sem nú voru sestir á skólabekk í þeim tilgangi að öðlast skipstjórnarrétt- indi. Það var aðdá- unarvert að sjá fjölskyldumenn setjast á skólabekk en Sæmi var þá kominn fast að þrítugu þegar við hófum námið en þó langt í frá að vera aldursforseti bekkjarins. Áttu þau hjónin eina dóttur sem þá var á þriðja ári og því stórt skref fyrir fjöl- skyldumanninn að leggjast í nám. Hann var meðal þeirra sem höfðu hvað lengstan siglinga- tíma í bekknum og hafði víða komið við á sínum sjómennsku- ferli. Við komum hver úr sinni átt- inni með mismunandi reynslu og lífssýn. Næstu þrjú árin átt- um við, meginþorri hópsins, eftir að vera saman í bekk og útskrifast með full réttindi til að stjórna kaupskipum af ótak- markaðri stærð. Síðastliðið vor áttum við því fjörutíu ára útskriftarafmæli úr farmannadeildinni. Sæmi sigldi öll skólaárin hjá skipafélaginu Hafskip og svo skjótt sem hann öðlaðist skipstjórnarréttindi hóf hann að sigla þar sem stýri- maður. Sýndi það vel hversu vel metinn hann var hjá sínu skipa- félagi. Eftir að námi okkar lauk varð hann fastráðinn sem stýri- maður hjá Hafskipum og átti hann eftir að komast þar til æðstu metorða sem skipstjóri á skipum félagsins. Þegar Hafskip var lagt niður árið 1986 lá leið hans í land og átti hann ekki afturkvæmt á sjóinn. Vinskapur þessa hóps sem hófst árið 1975 og þeirra sem bættust í hópinn þar til við út- skrifuðumst hefur haldist alla tíð og voru alltaf fagnaðarfund- ir þegar leiðir okkar lágu sam- an. Þrátt fyrir að Sæmi hafi ekki um árabil sett út í kort og tekið stefnur þá hefur hann engu að síður hafið þá för sem við öll eigum fyrir höndum og hefur nú sett stefnuna út fyrir gráðubogann sem við höfum að leiðarljósi í okkar siglingum á sjónum. Þar munu leiðir okkar allra liggja saman á nýjan leik. Um leið og við kveðjum okk- ar gamla bekkjarbróður send- um við fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hilmar Snorrason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.