Morgunblaðið - 08.12.2018, Qupperneq 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 9.12. kl. 15. Fjölskylduskemmtun: Grýla og Leppalúði og
Reykjavíkurdóttirin Steiney Skúladóttir
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal
Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal
Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur
úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
Lífsblómið – leiðsögn sýningarstjóra, 9. desember kl. 14.
VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON
OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS
Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
ÆÆÆ Æðisgengileg ævintýrajól.
ÓÓÓ Ómótstæðileg lamadýrajól.
Svona eru tvær síðustu ljóðlínurnar
í jólalaginu sem Hjörleifur Hjartar-
son, kórfélagi í Söngfjelaginu, samdi
sérstaklega fyrir áttundu jólatón-
leika kórsins síns. Að sögn Hilmars
Arnar Agnarssonar kórstjóra er lag
og texti í anda þeirrar suðuramer-
ísku stemningar sem verður á
tvennum tónleikunum kórsins um
helgina. Annars vegar kl. 16 laugar-
daginn 8. desember í Skálholts-
kirkju og hins vegar kl. 20 sunnu-
dagskvöldið 9. desember í Lang-
holtskirkju. Yfirskriftin er Lama-
dýrajól og þema tónleikanna kemur
frá Suður-Ameríku.
„Við höfum alltaf verið með þemu
á jólatónleikum okkar. Í ár höldum
við suðuramerísk jól með hljóm-
sveitinni INTI Fusion og brasilísku
söngkonunni Bruna Santana.
Hljómsveitin er skipuð sjö manns,
sem flestir eru frá Suður-Ameríku,
en allir búsettir í Osló – sem er mjög
hentugt fyrir Söngfjelagið með tilliti
til flugfarseðla. Gamall kórfélagi,
Hjörleifur Valsson fiðluleikari, er í
hljómsveitinni og kynnti hana fyrir
okkur á sínum tíma. Sjálfur kemst
hann ekki með í þetta skiptið,“ segir
Hilmar Örn og upplýsir að hljóm-
sveitin sæki innblástur til Andes-
fjalla en einnig í evrópskan og afr-
ískan menningararf.
Á efnisskrá Lamadýrajóla eru tvö
verk eftir argentínska tónskáldið
Ariel Ramirez, hin þekkta Kreóla-
messa „Misa Criolla“ og helgisagan
um fæðingu Krists, „Navidad Nu-
estra“. Einnig verða flutt nokkur vel
valin suðuramerísk jólalög. Og sam-
kvæmt hefð Söngfjelagsins verður
nýtt jólalag frumflutt, „Lama-
dýrajól“ eftir Hjörleif Hjartarson,
sem margir þekkja úr tvíeykinu
Hundur í óskilum. Þemajólalög fyrri
ára hafa m.a. verið eftir tónlistar-
mennina Þóru Marteinsdóttur og
Georg Kára Hilmarsson.
„Jólatónleikarnir okkar eru með
svolítið öðru sniði en undanfarin ár.
Síðustu þrjú árin höfum við verið
með keltnesk jól, fengið til okkar
keltneska söngvara og hljóðfæra-
leikara og lært þjóðdansinn þeirra,
svokallaðan „riverdance“ eða fljóta-
dans,“ segir Hilmar Örn.
Að þessu sögðu er ljóst að
Söngfjelaginu er ýmislegt til lista
lagt. Eitt er að syngja og annað að
dansa og hvort tveggja ekki á hvers
manns færi.
Dansað og sungið
„Við förum mjög djúpt og viljum
undirbúa okkur vel. Undanfarið höf-
um við verið að læra að syngja á
spænsku og æfa okkur í að dansa
salsa,“ segir Hilmar Örn, sem sjálf-
ur mun taka nokkur létt salsaspor
samhliða því að stjórna kórnum.
„Ég hef þurft að læra alveg nýjan
ryþma, þetta er ekki hefðbundin að-
ferð við að stjórna kór,“ viðurkennir
hann.
Spurður hvort fleiri hefðir hafi
skapast kringum jólatónleika
Söngfjelagsins í áranna rás nefnir
hann að kórfélagar kappkosti að
vera í líflegum klæðnaði, annað væri
enda ekki við hæfi á svona fjörugum
tónleikum.
Suðuramerísk jólastemning
Söngfjelagið heldur tvenna jólatónleika um helgina, annars vegar í Skálholtskirkju og hins vegar í
Langholtskirkju Þema frá Suður-Ameríku Frumflutt verður íslenskt jólalag, Lamadýrajól
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á æfingu Eins og aðrir í Söngfjelaginu mun Hilmar Örn kórstjóri taka nokkur salsaspor á tónleikunum.
Útvarp Mýri kallar Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson myndlistar-
maður sýninguna á nýjum mynd-
verkum sem hann opnar í Hverfis-
galleríi neðst við Hverfisgötu í dag,
laugardag, klukkan 16. Hann segir
um að ræða eins konar framhald af
fyrri sýningum sínum í galleríinu,
sýningin sé tvískipt, en í landslags-
verkunum sem tengjast heiti sýning-
arinnar megi sjá vaxandi meðvitund
um þá vá sem vofir yfir jörðinni
vegna hlýnunar andrúmsloftsins.
„Ég sé betur og betur að þessi
náttúruverk mín tengjast þessari
vá,“ segir hann þar sem við skoðum
umrædd verk; nærmyndir af gróðri
sem stingst upp úr blautri mýri.
„Þessi verk búa yfir vissri fegurð en
það er líka ákveðinn tregi í þeim
vegna þeirrar tilfinningar sem við
höfum fyrir því að við höfum ekki
farið nógu vel með náttúruna.
Þessi verk verða sífellt natúralísk-
ari hjá mér, ég er farinn að skoða
hvert strá og hvert lauf og nota við
það þann dásamlega fjörutíu þúsund
ára gamla miðil sem málverkið er. Á
vissan hátt finnst mér ég vera að
gera mitt í því að hlusta á náttúruna
– sem er nokkuð sem mönnunum
hefur mistekist síðan um iðnbylt-
ingu; þetta er mín tilraun til að setj-
ast í auðmýkt niður í mýrina, nema
það sem ég sé og varpa því áfram.
Það er mitt útvarp úr mýrinni.“
Sigtryggur segist hafa unnið í
marga mánuði að stóru málverkinu
sem er fyrir framan okkur og bygg-
ist á ljósmynd. „Því það tók mig
marga mánuði að sjá almennilega
það sem er á myndinni, ég þurfti að
gera hverjum einasta fersentimetra
skil. Og það er ennþá meira áber-
andi í þessum þremur verkum hér á
móti,“ segir hann og bendir, „hvern-
ig hringrásin er í mýrinni. Gróður-
inn berst fyrir því að þrauka, að
halda sér upp úr vatninu, og það má
sjá sem táknmynd fyrir það sem er
að gerast í raun.
Ég er bara að mála en þetta er
mín túlkun á því sem er að gerast í
náttúrunni,“ segir hann og bætir við
að þessi verk séu í raun bjartsýnis-
legri en verk sem hann hefur sýnt á
síðustu árum og fást líka við breyt-
ingu á náttúrunni. „Sjáðu, hér
spretta enn fram spriklandi ferskir
grænir sprotar, þótt önnur lauf séu
sölnuð og að sökkva. Það er töluverð
vonarglæta hér líka.“
Á endavegg fremri salar Hverfis-
gallerís er röð fjórtán abstraktverka
á pappír og er hvert málað með
bláum lit úr einni litartúpu sem var í
eigu Karls Kvaran listmálara sem
Sigtryggi áskotnaðist. Í innri saln-
um eru fimmtíu slík verk en minni,
úr öllum túpunum.
„Ég særi þessa liti úr túpum Karls
sem hafa að minnsta kosti legið
óhreyfðar í 30 ár og aðrar sannan-
lega í 60 ár. Margir litanna eru ekki
framleiddir lengur. Með þessum
verkum sýni ég Karli og gengnum
kynslóðum virðingu en þau snúast
líka um það nýta verðmæti, eins og
þessir litir eru. Mig langaði að
hleypa andanum úr þessum túpum
og gera ný verk úr þeim.“ efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn „Þetta er mín tilraun til að setjast í auðmýkt niður í mýrina, nema það sem ég sé og varpa því
áfram,“ segir Sigtryggur Bjarni um málverkin af gróðri í votlendi. Til vinstri er röð abstraktverka í bláum tónum.
Varpað beint úr mýrinni
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson opnar sýningu í Hverfis-
galleríi Fegurð og tregi mætast í málverkunum