Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 46

Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 Sögufélag og Sagnfræðistofnun HÍ standa fyrir mál- þinginu „Vesæl þjóð í vondu landi – Goðsagnir og raunveruleiki Íslandssögunnar“ í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands í dag kl. 14. Frummælendur eru Guðrún Gísladóttir, Egill Erlendsson, Sigrún Dögg Eddudóttir, Leone Tinganelli, Axel Kristins- son, Helgi Þorláksson og Árni Daníel Júlíusson, en fundarstjóri er Guðmundur Jónsson. „Oft er talað um að íslenska þjóðin hafi fyrr á tím- um búið við ömurlega örbirgð um langa hríð. Nýjar rannsóknir hafa sýnt að lífskjör Íslendinga voru ekk- ert verri en annarra þjóða í nágrenninu, á sumum sviðum jafnvel betri ef eitthvað var. Landnámið og búsetan hafði þó í för með sér verulegt álag á gróðurþekju, skóga og jarð- veg því landnemar notuðu sömu landbúnaðartækni og í heimalöndunum en gróðurinn er hér viðkvæmari en þar,“ segir í tilkynningu. Árni Daníel Júlíusson Vesæl þjóð í vondu landi í dag La Mer / The Sea / Hafið nefnist sýning sem franski myndlistarmaðurinn Ange Leccia opnar Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag kl. 15. „Ange Leccia fæddist 1952 á Korsíku í Miðjarðarhafi og er náttúra þessarar sérstæðu eyju honum sífelld uppspretta sköpunar. Hafið er hans þekktasta verk, en hann umbreytir því sífellt og aðlagar sýningaraðstæðum hverju sinni. Verkið vísar í austræna heimspeki þar sem tilvist mannsins er líkt við logandi bál sem fuðrar upp á örskotsstundu. Leccia hóf snemma að vinna með kvikmyndatæknina sem listform og tileinka sér aðferðir sem fela í sér end- urtekningu, þvert á mæri listgreina. Ange Leccia er stofnandi og for- stöðumaður rannsóknamiðstöðvarinnar Pavillon Neuflize OBC í Palais de Tokyo, París,“ segir í tilkynningu og á það bent að verk hans hafi verið sýnd í Guggenheim í New York, á Feneyjatvíæringi og í George Pompidou- menningarmiðstöðinni í París. Sýningarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir. Ange Leccia Hafið verður opnað í Ketilhúsi í dag Snorri Sigfús Birgisson leikur eigin píanótónlist á tónleikum í Hannesarholti á morgun, sunnu- dag, kl. 16. Um er að ræða aðra tónleika tónskáldsins af þrennum í vetur þar sem hann flytur drjúgan hluta þeirra tónverka sem hann hefur samið fyrir pí- anó. Á tónleikum morgundagsins fær Snorri Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur til liðs við sig til að flytja þau tónverk sem hann hef- ur samið fyrir píanó fjórhent. Elsta verkið er frá 1975 en hin yngstu eru samin á þessu ári og hafa ekki heyrst áður. Þriðju og síðustu tónleikarnir verða 19. janúar. Miðar eru seldir á tix.is. Snorri Sigfús Birgisson Fjórhent píanóverk Snorra leikin Kliður blæs til tónleika í Aðventkirkjunni við Ingólfs- stræti á morgun, sunnudag, kl. 17. „Kliður er kór skip- aður vinum og kunningjum, tónlistarmönnum, rithöf- undum, myndlistarfólki og alls konar fólki úr Reykjavík, sem um nokkurra ára skeið hefur hist vikulega til að syngja og æfa nýja frumsamda tónlist eftir kórmeðlimi,“ segir í tilkynningu. Höfundar verkana eru m.a. kórmeðlimirnir Pétur Ben., Elín Elísabet Einarsdóttir, Ragnar Helgi Ólafsson, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Snorri Hallgrímsson, Kjartan Holm, Marteinn Sindri Jónsson, Baldur Hjör- leifsson og stjórnandi kórsins Jelena Æiriæ. Að tónleikum loknum verður að gömlum sið boðið upp á kaffi og kökur í safnaðarheimilinu. Kliður með kórtónleika á morgun María Huld Markan Sigfúsdóttir Kvikmyndagerðarmaðurinn Alex Gabbay frumsýnir nýjustu heimild- armynd sína, Love Hate and Eve- rything in Between, í Háskólanum í Reykjavík í dag kl. 16 og verða haldnar pallborðsumræður að sýn- ingu lokinni um myndina og efni hennar í tengslum við karlmennsku í nútímanum, en myndin fjallar um tilfinningar sem stýra hegðun og rannsakar hvort samkennd sé til í ljósi voveiflegra atburða og hvað geti stuðlað að heilbrigðum tengslum. Í umræðunum taka þátt, auk Gabbay, Hákon Már Oddsson kvikmyndagerð- armaður, Ing- ólfur V. Gíslason, dósent í félags- fræði, Jón Gunn- ar Bernburg, prófessor í fé- lagsfræði, Marta Kristjana Stef- ánsdóttir, sam- skiptafulltrúi Norður-Evrópu- svæðis Samtaka frjálslyndra stúd- enta, Snorri Kristjánsson fjölmiðla- fræðingur og Vera Knútsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Samein- uðu þjóðanna. Umræðunum stýrir Finnur Þ. Gunnþórsson. Finnur er menntaður stjórnandi frá CBS í Danmörku, heldur reglulega nám- skeið varðandi öryggi og vellíðan á vinnustöðum og þá m.a. með það til tilsjónar að forðast kulnun starfs- manna. Hann hefur mikinn áhuga á vellíðan og menningu og því hvernig menning, viðhorf og gildi móta saman hegðun og möguleika fólks í efnahagslífinu. Finnur stendur að viðburðinum með Gabbay. Frumsýning og umræður í HR Alex Gabbay Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningar á kvikmyndinni Suspiria hófust í Bíó Paradís í síðustu viku og er þar á ferðinni endurgerð ítalska leikstjórans Luca Guadagn- ino á samnefndri hrollvekju Dario Argento frá árinu 1977 sem er lík- lega sú þekktasta í þeim geira ítalskrar kvikmyndagerðar. „Svartnættið er altumlykjandi í hringamiðju heimsþekkts dansstúd- íós, sem mun gleypa listræna stjórnandann (Tilda Swinton), ung- an metnaðarfullan dansara (Dakota Johnson) og syrgjandi sálfræðing (Lutz Ebersdorf). Sumir munu bug- ast af martröðinni, á meðan aðrir vakna loksins til lífsins,“ segir um myndina á vef kvikmyndahússins en að gerð hennar komu tveir íslenskir dansarar, Halla Þórðardóttir sem er dansari hjá Íslenska dans- flokknum og Tanja Marín Friðjóns- dóttir sem býr og starfar í Brüssel. Báðar komu að dansþjálfun aðal- leikkvenna myndarinnar, Tildu Swinton, Dakota Johnson, Chloë Grace Moretz og Miu Goth en Halla fer með hlutverk dansara í mynd- inni, auk þess að vera aðstoðardans- höfundur. Eins og sjá má af upptalningunni eru engir aukvisar sem koma að gerð myndarinnar, Swinton heims- kunn og margverðlaunuð leikkona og leikstjórinn, Guadagnino, sömu- leiðis margverðlaunaður fyrir kvik- myndir sínar og sérstaklega þá sem hann gerði á undan Suspiria, Call Me By Your Name, sem keppti m.a. um Óskarsverðlaunin á þessu ári. Rúsínan í pylsuendanum er svo sjálfur Thom Yorke, forsprakki hljómsveitarinnar Radiohead, en hann samdi tónlistina við Suspiria. „Það er svo mikill dans í mynd- inni og það var fenginn danshöfund- ur til að sjá um hann sem ég hafði unnið með árið áður,“ svarar Halla, spurð að því hvernig hún hafi land- að þessu verkefni. Danshöfundurinn er hinn franski Damien Jalet sem starfað hefur með Íslenska dans- flokknum. „Hann fékk þetta tilboð, að semja dans fyrir myndina, hafði samband við mig og fékk mig til að taka þátt í því,“ útskýrir Halla. Hún var ein af fimm aðstoðar- danshöfundum sem tóku þátt í þriggja vikna undirbúningi og sköp- unarferli með Jalet, í samstarfi við leikstjórann en Tanja Marín gegndi hlutverki staðgengils, „body double“, leikkonunnar Dakota Johnson, dansaði fyrir hana, ef svo mætti að orði komast. Fékk að segja eina setningu „Í nýju myndinni er þetta dans- flokkur og það eru nornir í honum,“ segir Halla og hlær við þegar blaða- maður forvitnast um söguþráð myndarinnar. Hún segist ekki vita hversu ítarlega hún megi segja frá honum. „Þetta er hryllingsmynd, svolítið „gory“, blóðug,“ bætir hún við kímin og við látum þessa lýsingu duga. Halla er spurð að því hvort hún sjáist mikið í myndinni. „Ég sést al- veg slatta í bakgrunni, það var mik- ið lagt upp úr því að þessi dans- flokkur væri sem eðilegastur þann- ig að við dansararnir erum mikið í mynd, það er mikið sýnt frá æfing- um og svo eru þarna stórar dans- senur. Við sem voru aðstoðardans- höfundar fengum líka að segja nokkrar línur, ég er með eina setn- ingu,“ segir Halla kímin. Einangraður tökustaður – Hvernig var að vinna með þess- um leikstjóra, Guadagnino? „Það var bara mjög áhugavert og skemmtilegt,“ svarar Halla. „Þetta voru náttúrlega mjög „extreme“ að- stæður sem við vorum að vinna við, við vorum á mjög einangruðum tökustað,“ segir Halla en tökur fóru fram haustið 2016 í yfirgefnu hóteli, Grand Hotel Campo dei Fiori, í Varese á Norður-Ítalíu. Halla segir hótelið hafa staðið autt í fleiri ára- tugi. – Var þá ískalt þarna? „Það var ískalt,“ segir Halla og hlær. „Hótelið var alveg að hruni komið. Við bjuggum ekki í því en þurftum að vera þar megnið af sól- arhringnum á tökudögum. Luca var mjög skýr í því hvað hann vildi, hann vildi vinna mjög náið með danshöfundinum og vildi að dans yrði stór hluti af myndinni.“ – Voru þetta langir vinnudagar fyrir ykkur, dansarana? „Já, þeir voru langir, fóru upp í 16 tíma en mesti tíminn fór í bið,“ svarar Halla og bætir við að farið hafi verið í reglulegar fjallgöngur. Hitti Yorke Sem fyrr segir samdi Thom Yorke tónlistina við kvikmyndina og segir Halla að tónlistin hafi komið eftir á, þ.e. eftir að tökum lauk. Dansararnir hafi þó fengið takt til að vinna með. „Hann kom á æfingar og sá hvað við vorum að vinna með,“ segir hún um Yorke. – Þú hittir hann þá? Varstu sleg- in stjörnublindu? Halla hlær. „Já, ætli það ekki. Hann er einn af mínum uppáhalds- tónlistarmönnum.“ Djöfladans Úr hrollvekjunni Suspiria sem sýnd er í Bíó Paradís. Nornir í dansflokknum  Halla Harðardóttir dansaði í Suspiria og var einn fimm að- stoðardanshöfunda  Hrollvekja tekin upp í yfirgefnu hóteli Í Feneyjum Halla fór á frumsýningu Suspiria á kvikmyndahátíðinni í Fen- eyjum 1. september síðastliðinn og var það heimsfrumsýning á myndinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.