Morgunblaðið - 31.12.2018, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018
ásamt
Útgáfufélag Árvakur hf. Morgunblaðið,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón
Karl Blöndal
Höfundar Gerry Adams, Danielle Allen, Julia Alvarez, Árni Matthíasson, Michelle Bachelet, Ruth Behar, Tim Berners-Lee, Bjarni Benediktsson,
Gordon Brown, Zoe Buckman, Patrick Chappate, Roger Cohen, George Condo, Guðrún Hálfdánardóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Inga Sæland,
Alisa Ganieva, Alfredo Jaar, Karl Blöndal, Logi Einarsson, Ben Katchor, Katrín Jakobsdóttir, Saba Khan, Ray Kurzweil, Daniel Libeskind, Richard
McGuire,Shirin Neshat, Sharmeen Obaid-Chinoy, Orri Páll Ormarsson, Claire Ptak, Witold Rybczynski, Sigurður Ingi Jóhannsson, Silja Björk
Huldudóttir, Marta Vieira da Silva, Jacob Soll, Timothy Snyder, Stefán Einar Stefánsson, Hank Willis Thomas, Emily Thompson, Tricia Tisak,
Víðir Sigurðsson, Venus Williams, Alexia Webster og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þýðingar Karl Blöndal og Stefán Gunnar Sveinsson.
Forsíðumynd Ragnar Axelsson. Hágöngur í dögun í desember, hluti af myndafrásögn á bls. 68-73.
Á Íslandi nálgast notendur félagsvefjarins Facebook 300 þúsund ef þeir eru ekki
þegar orðnir fleiri. Fjöldi notenda hefur margfaldast á örfáum árum. Þessi fjöldi
er til marks um áhrif Facebook og umsvif. Fyrirtækið notar upplýsingar um not-
endur sína og jafnvel vini þeirra til þess að mala gull. Þær eru seldar auglýs-
endum og gildir einu um friðhelgi einkalífs notendanna. Vefurinn hefur margar
góðar hliðar. Hann tengir fólk og auðveldar samskipti. En hann er líka rotþró þar
sem umræða getur farið niður á lægsta plan og röngum og villandi upplýsingum
er dreift til að hafa áhrif á fólk.
Árni Matthíasson rekur í grein sinni í Tímamótum hvernig uppljóstranir um
vinnubrögð Facebook hafa valdið því að nú hriktir í stoðum fyrirtæksins. Jón
Stephenson von Tetzchner, fjárfestir og frumkvöðull, gagnrýnir í viðtali í blaðinu
notkun risa á borð við Facebook og Google á upplýsingum. Óhugnanlegt sé
hvernig auglýsingar elti fólk og enn verra þegar netið er notað í annarlegum til-
gangi og verður að pólitísku vopni. Jón býður upp á vafrann Vivaldi og leggur
áherslu á að þar sé ekki veittur aðgangur að notendum. „Það að hafa aðgang að
gögnum veitir ekki rétt til að nota þau,“ segir hann og bætir við að stjórnvöld
ættu að koma í veg fyrir misnotkun persónuupplýsinga.
Jón er ekki einn um að hafa áhyggjur af netinu. Tim Berners-Lee, sem fann
upp veraldarvefinn, skrifar grein í Tímamót þar sem hann spyr hvernig bjarga
eigi netinu. Hann hefur skilgreint ákveðin grundvallaratriði „þar sem dregin er
fram sú ábyrgð sem hver og einn ber á því að vernda net sem þjónar öllu mann-
kyni“. Hann vill að þessi atriði verði grundvöllur sáttmála um vefinn á næsta ári.
Milljarðar manna noti netið og það sé þeirra að verja það.
Tímamót eru sérblað Morgunblaðsins í samvinnu við The New York Times. Í
blaðinu kennir margra grasa að þessu sinni og er fjallað bæði um innlend mál og
erlend. Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður hefur á árinu fjallað bæði á netinu
og í blaðinu um geðræn vandamál og vanda ungs fólks, meðal annars vegna eitur-
lyfja. Á þessu ári hafa yfir fimmtíu dauðsföll komið til rannsóknar hjá embætti
landlæknis vegna gruns um lyfjaeitrun og hafa tilfellin aldrei verið fleiri. Stefán
Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, fer yfir viðskiptalífið
og rekur meðal annars áhrifin af innkomu Costco á markaðinn. Víðir Sigurðsson,
umsjónarmaður íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.is, veltir upp spurning-
unni hvort Ísland muni aftur komast á stórmót í fótbolta. Silja Björk Huldudóttir,
blaðamaður og annar tveggja leiklistargagnrýnenda Morgunblaðsins, bendir á að
aðeins 30% leiksýninga á árinu hafi verið eftir konur og spyr hvort leikhúsið geti
endurspeglað samfélagið þegar svo halli á annað kynið í hópi höfunda.
Rússneski rithöfundurinn Alisa Ganieva fjallar um það hvernig rússnesk
stjórnvöld endurskoða söguna og nota hana sem pólitískt tæki til að halda völd-
um. Sagnfræðingurinn Timothy Snyder fjallar um leiðtoga sem hann segir að vilji
umbreyta lýðræði í persónudýrkun og notkun lyga til að afvirkja heim stað-
reynda. „Lýðræði er hugrökk leið til að byggja upp land,“ segir hann. „Persónu-
dýrkun er kjarklaus leið til að eyðileggja land.“ Í blaðinu er líka fjallað um menn-
ingu og listir, birtar ljósmyndir frá helstu fréttaviðburðum af innlendum og
erlendum vettvangi, sem og skopmyndir teiknara frá árinu, sem er að líða.
Í Tímamótum eru einnig áramótagreinar forystumanna þeirra átta stjórn-
málaflokka, sem eru á þingi. „Sjaldan hefur það því verið mikilvægara að sýna
fram á að það er hægt að taka tillit til ólíkra sjónarmiða, miðla málum og vinna
samhent að sameiginlegum markmiðum, þvert á flokka, samfélaginu öllu til
heilla,“ skrifar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri hreyf-
ingarinnar græns framboðs, í grein sinni. „Þannig tryggjum við samfélag fyrir
okkur öll.“
Morgunblaðið þakkar lesendum samfylgdina á árinu, sem er að líða, og óskar
landsmönnum öllum gæfu á komandi ári.
Gleðilegt ár.
Ljósmynd/Jón Snær Ragnarsson
Netusli og aðrar hræringar
Gleðilegt ár