Morgunblaðið - 31.12.2018, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018
G
U
N
N
A
R
JÚ
L
A
R
T
Árið 1848 lyktaði lýðveldisbyltingum gegn
konungsveldum í Evrópu með því að þær voru
brotnar á bak aftur og kúgun tók við. Árið var
sagt marka tímamót, vera vendipunktur þar
sem sögunni láðist að venda.
Nánast víst er að 2018 mun marka sam-
bærileg tímamót. Árið einkenndist af vernd-
arhyggju Donalds Trumps, útþenslustefnu
Kína, endurborinni þjóðahyggju á Indlandi og
í Japan, stórveldatilburðum Írana og tækifær-
ismennsku Rússa. Allt á þetta þátt í að grafa
undan því alþjóðlega samstarfi sem hefur ver-
ið til grundvallar þeirri skipan heimsmála sem
hefur verið við lýði í 70 ár eftir að síðari
heimsstyrjöld lauk.
Samningar um loftslagsbreytingar, kjarn-
orkuvopn og viðskipti hafa orðið fyrir barðinu
á þessum hræringum og skyndilega virðist
heimurinn sundraður og forustulaus.
Eins og stendur tala menn í það minnsta
fallega um markmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun. Í þeim eru sett metnaðarfull
markmið um að binda enda á ólæsi, sjúkdóma
sem komast má hjá, vannæringu og sára fá-
tækt fyrir 2030. Nú eru hins vegar að koma
fram vaxandi vísbendingar um að þrátt fyrir
frækilega framgöngu Antónios Guterres,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og
Aminu J. Mohammed, sem er honum næstráð-
andi, muni markmið ekki nást vegna þess að
sameiginlega hefur okkur ekki tekist að ná
sátt um hvernig eigi að fjármagna þau.
Fjórða sjálfbæra markmiðið – gæða-
menntun fyrir alla á jafnréttisgrundvelli og án
útilokunar – skuldbindur okkur til að ná því að
okkar kynslóð verði fyrir 2030 sú fyrsta í sög-
unni sem sendir hvert einasta barn í skóla.
Nú horfumst við í augu við þann skammar-
lega veruleika að 260 milljónir barna ganga
ekki í skóla. Af þeim sem eru í skóla munu 400
milljónir hætta áður en þau ná 12 ára aldri og
rúmlega 800 milljónir, helmingur drengja og
stúlkna í þróunarlöndunum, munu enda
grunnskólagöngu án þess að hafa öðlast neina
viðurkennda hæfni til starfa á okkar tímum.
Samkvæmt nýlegri úttekt Alþjóðabankans
myndu barnahjónabönd heyra sögunni til ef
allar stúlkur gengju í skóla. Því miður munu
um 230 milljónir af 430 milljónum stúlkna á
skólaskyldualdri í löndum þar sem tekjur eru
Said Khatib/Agence France-Presse Getty Images
Þegar árið 2030 rennur upp eigum við að geta sent hvert einasta barn í skóla. Svona á að borga fyrir það.
GORDON BROWN
er fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og sér-
legur erindreki Sameinuðu þjóðanna um menntun í
heiminum. Hann er höfundur bókarinnar Gordon
Brown: My Life, Our Times.
TÍMAMÓT: Á MILLI 2000 OG 2018 RÚMLEGA TVÖFALDAÐIST FJÖLDI AFRÍSKRA BARNA Í BARNASKÓLUM
Opnum dyr skólanna upp
á gátt í eitt skipti fyrir öll
Palestínskar stúlkur ganga
fram hjá hveitisekkjum á leið
til skóla fyrir utan svæði Sam-
einuðu þjóðanna í flótta-
mannabúðunum í Rafah á
suðurhluta Gasasvæðisins.