Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 17

Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 17 fylgi auglýsingin persónu. Með þessari breyt- ingu á módelinu hafi orðið auðveldara að skálda og búa til frekar en að segja fréttir. „Það ætti ekki að vera leyfilegt að safna upp- lýsingum um náungann og láta auglýsingar fylgja honum,“ segir hann og spyr: „Er það þess virði fyrir þjóðfélagið að fara þangað? Fyrirtækin myndu lifa það af ef settar yrðu reglur og Tim Cook, forstjóri Apple, og fleiri hafa tekið undir það.“ Hann bendir á að Facebook þéni um 25 dollara á hvern notanda á ári. „Myndi fólk segja já ef það væri spurt hvort væri í lagi að lesa tölvupóst þess?“ spyr hann og vísar til Google og gmail. „Þetta á ekki að vera leyfi- legt. Þetta er tæknilega auðvelt, en það á ekki að gera hlutina bara af því að það er hægt. Facebook er ekki bara Facebook, fyrirtækið safnar upplýsingum um fólk hvort sem það er notendur eða ekki. Google er ekki bara Go- ogle-leitarvélin, það tengir saman milli tækja og fylgir fólki eftir, hvort sem það er í gengum WIFI eða Bluetooth, og tæknin er orðin þann- ig að jafnvel þótt notandinn slökkvi á henni slokknar ekki.“ Jón nefnir Bluetooth-vitann, sem hefur auk- ið drægni tækninnar. Hún auðveldar notand- anum að ná sambandi með Bluetooth- tækninni, en gerir um leið auðveldara að fylgj- ast með öllum hans ferðum, ekki bara í hvaða götu hann sé, heldur í hvaða húsi og jafnvel á hvaða hæð. Um leið er mögulegt að hlusta á notandann. Dæmi eru um að nýjustu kynslóðir sjónvarpa séu alltaf að hlusta. „Það sem þú segir er geymt og öllum er fylgt eftir á ferðum sínum,“ segir hann. Með auglýsendur á hælum sér Jón segir að allir eigi sögur til vitnis um að fylgst sé með ferðum þeirra og það sé nýtt í auglýsingaskyni. Hann rekur eina úr eigin reynsluheimi. „Fjölskyldan var stödd í Banda- ríkjunum og við okkur blasti verslunin Mach- ine Gun Florida og við vorum að tala um hana og byssur,“ segir hann. „Allt í einu birtist aug- lýsing frá NRA, samtökum byssueigenda í Bandaríkjunum, á síma sonar míns. Þarna helltist áróður um byssueign yfir 15 ára strák. Við spurðum okkur hvort eitthvert appið hefði verið að hlusta og fannst þetta frekar ógeðs- legt.“ Honum finnst í lagi að nota upplýsingar um ferðir fólks til að greiða fyrir umferð og láta vita af teppum, en þessar upplýsingar ætti ekki að mega nýta í neitt annað. „Það að hafa aðgang að gögnum veitir ekki rétt til að nota þau,“ segir hann og bætir við að hjá sér séu önnur vinnubrögð. „Við höfum allar upplýsingar, en við notum þær ekki nema fyrir okkar skýrslur. Við misnotum þær ekki, seljum hvorki né geymum. Við viljum ekki hafa upplýsingar um hvað fólk gerir. Stjórnvöld ættu að sjá til þess að gögn séu ekki misnotuð.“ Jón bendir á að yfirmaður norsku leyni- þjónustunnar hafi haft orð á því að einkafyr- irtæki safni meiri upplýsingum um persónur en leyniþjónustur og spyr: „Á ég ekki upplýs- ingarnar um mig?“ Það er ekki hlaupið að því standa fyrir utan þessa upplýsingasöfnun. „Það er ekkert val lengur,“ segir Jón. „Þú verður að hafa síma og ef notandinn lokar á að veita upplýsingar um sig hættir mjög margt að virka á netinu.“ Hef barist fyrir því allt mitt líf að fólk komist á netið Jón segir að sér hafi alltaf þótt mikilvægt að allir hefðu aðgang að netinu hvar sem er í heiminum. „Ég hef barist fyrir því allt mitt líf að fólk komist á netið,“ segir hann og nefnir sérstaklega Afríku. Það er augljóst á orðum Jóns að hann telur netið gegna mikilvægu hlutverki í að tengja fólk og gera því kleift að bæta stöðu sína. Að sama skapi fer fyrir brjóstið á honum þegar netið er notað í annarlegum tilgangi og verður að pólitísku vopni þar sem reynt er að hafa áhrif á fólk undir fölsku flaggi eins og nú síð- ast kom fram í óstaðfestum fréttum um að mörg hundruð vefmiðlareikningar, sem not- aðir hefðu verið til að dreifa röngum og vill- andi upplýsingum til að ýta undir mótmælin í Frakklandi, tengdust Rússlandi. „Það er vont þegar verið er að skemma net- ið með þessu rugli,“ segir hann. „Vandamálið er þegar pólitíkin blandast inn í spilið. Það þarf að setja reglur og þær þurfa að vera eins fyrir alla. Hvað má fyrirtæki bjóða mikinn að- gang að viðskiptavinum sínum? Það væri áfram þess virði að hafa sinn notendahóp. Það er hægt að finna fleiri auglýsingafleti, það eina sem þú þarft er umferð.“ Hann veltir einnig fyrir sér hvað megi gera til að breyta umræðu á netinu. „Það er gott að hafa margar raddir, en ruslið mættum við missa,“ segir hann. „Ég spyr mig hvað myndi gerast ef Google ákvæði að beita sér. Þegar ég sagði þetta fullum fetum stoppuðu okkar auglýsingar, en svo leyfa þeir auglýsingar í falsfréttum.“ Svar Jóns er að bjóða upp á vafra, sem ekki veitir aðgang að notendum þannig að hægt sé að beina að þeim skilaboðum, áróðri og fals- fréttum eftir því hvaða skoðanir þeir hafa og hvar í flokki þeir standa. Hann horfir bjart- sýnn fram á veginn. Á árinu, sem nú er að hefjast, kemur ný, stór útgáfa af vafranum. Þar verður einnig boðið upp á tölvupóst með netfangi án endurgjalds. Og hann verður ekki lesinn nema af sendanda og viðtakanda. „Við höfum allar upplýsingar, en við not- um þær ekki nema fyrir okkar skýrslur. Við misnotum þær ekki, seljum hvorki né geymum. Við viljum ekki hafa upplýsingar um hvað fólk gerir,“ segir Jón Tetzchner. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ef ekki væri hægt að stíla auglýsingar á einstaklinga væri ekkert Brexit og enginn Trump. Facebook og Google skutu ekki, en þau seldu byssuna.’’

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.