Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018
Á undanförnum árum hefur orðið ljóst að
netið stendur ekki undir þeim miklu vonum
sem við bundum við það. Netið var smíðað til
að verða opið verkfæri fyrir samvinnu og
valdeflingu. Nú hafa glæpamenn og tröll
rænt því og notað til að hafa áhrif á og
ráðskast með fólk um allan heim.
Til að varðveita vef sem þjónar öllu mann-
kyni, ekki bara fólki með forréttindi og völd,
þurfum við að berjast fyrir því. Þess vegna
hef ég beðið ríkisstjórnir, fyrirtæki og borg-
ara um víða veröld að skuldbinda sig til að
fylgja nokkrum grundvallarreglum fyrir net-
ið.
Við lok ársins 2019 mun helmingur íbúa
heimsins nota netið samkvæmt áliti nefndar
um breiðband og stafræna þróun (Broadband
Commission for Digital Development) sem
tengist Sameinuðu þjóðunum. Í 30 ára sögu
netsins hefðu öll viðbrögð við þessum tíma-
mótum allt þar til nú verið: „Frábært! Nú
skulum við tengja þá sem eftir eru eins fljótt
og hægt er.“ En heimurinn hefur breyst. Um
árabil hefur verið litið á netið sem afl í þágu
góðs þegar allt er tekið, en nú hefur óttinn
við að netið gæti verið að skemma þjóðfélög
okkar yfirskyggt þá bjartsýni um tæknina.
Þessar áhyggjur eru réttmætar. Á undan-
förnum árum höfum við orðið vitni að því að
stjórnvöld ríkja hafa stundað ríkisreknar
verksmiðjuveiðar á netinu til að kæfa andóf
og ráðast á stjórnarandstæðinga. Við höfum
séð hvernig tölvuinnbrot og erlend afkipti af-
skræma stjórnmál og grafa undan kosn-
ingum. Og það hefur blasað við hvernig út-
breiðsla falsfrétta á félagsvefjum getur
skapað ringulreið, glundroða og banvænt of-
beldi.
Þegar við fregnuðum á liðnu ári að Cam-
bridge Analytica hefði notað persónulegar
upplýsingar allt að 87 milljóna notenda Face-
book til að hafa áhrif á kjósendur í forseta-
kosningunum 2016 í Bandaríkjunum áttuðum
við okkur á því að við hefðum misst stjórn á
upplýsingum um okkur og að afleiðingarnar
gætu breytt heiminum.
En við megum ekki gefast upp á fyrirheit-
inu sem fólgið er í netinu. Allri tækni fylgir
áhætta. Við ökum bílum þrátt fyrir hættuna
á alvarlegum slysum. Við tökum lyfseðils-
skyld lyf þrátt fyrir hættuna á misnotkun og
fíkn. Við sláum varnagla þegar nýjungar
koma fram til að við getum stjórnað áhætt-
unni og hagnast á möguleikum þeirra.
Vefurinn er hnattrænn vettvangur – áskor-
anir hans teygja sig þvert á landamæri og
menningarheima. Rétt eins og milljónir
manna um allan heim unnu að því saman að
smíða vefinn veltur framtíð hans á sameigin-
legri getu okkar til að gera hann betra verk-
færi fyrir alla.
Um leið og við mótum vef morgundagsins
þurfum við leiðbeinandi grundvallarreglur
sem geta skilgreint hvernig vef við viljum.
Það verður ekki auðvelt að átta sig á hverjar
þær skuli vera – það getur samkomulag sem
nær til ólíkra landa og hagsmuna aldrei orð-
ið. En ég held að það sé hægt að skilgreina
ákveðin grunngildi sem við getum verið sam-
mála um og munu tryggja að vefurinn virkar
betur fyrir alla, þar á meðal þann helming
íbúa heimsins sem enn er ekki tengdur.
Ríkisstjórnir, fyrirtæki og einstaklingar
geta öll gegnt einstöku hlutverki. Veraldar-
vefsstofnunin (World Wide Web Foundation),
samtök sem ég stofnaði 2009 til að vernda
vefinn sem tæki í almannaþágu, hefur skil-
greint nokkur grundvallaratriði þar sem
dregin er fram sú ábyrgð sem hver og einn
ber á því að vernda net sem þjónar öllu
mannkyni. Við biðjum alla að skrifa undir
þessi grundvallaratriði þannig að við getum
búið til formlegan sáttmála um vefinn 2019.
Í grundvallarreglunum er skilgreint að
stjórnvöld bera ábyrgð á að tengja borgar-
ana opnum vef þar sem réttur þeirra er virt-
ur. Þar segir að netfyrirtæki verði að axla
sína ábyrgð á að tryggja að vefurinn sé
öruggur, aðgengilegur og að gögn um not-
endur njóti verndar. Þar er gerð skýr grein
fyrir því að hver borgari ber þá ábyrgð að
koma fram af samhygð og bregðast við nei-
kvæðri hegðun sem hann myndi ekki líða ut-
an netsins. Mestu skiptir að í grundvallar-
reglunum segir að við þurfum að rísa upp og
berjast fyrir neti sem þjónar öllum. Ef við,
þessir milljarðar manna sem nota netið, verj-
um það ekki, hver á þá að gera það?
Í krafti þessara grundvallaratriða mun
sáttmálinn um netið verða forsenda nýrra
viðmiða til að stýra stefnu stjórnvalda um
heim allan í stafrænum málum og ákvörð-
unum fyrirtækja þegar þau móta nettækni
framtíðarinnar. Þeir sem styðja og hjálpa til
við að þróa sáttmálann munu ekki aðeins
sýna að þeir hafa skuldbundið sig til að vef-
urinn eigi framtíð, þeir munu hjálpa til við að
móta hann. Ef við viljum vef sem virkar fyrir
okkur þurfum við að vinna að framtíð vefs-
ins.
Þegar Rosemary Leith og ég stofnuðum
Veraldarvefsstofnunina fyrir tíu árum voru
færri en einn af hverjum fjórum á netinu.
Okkar verkefni var að tengja fleira fólk og
halda vefnum opnum og ókeypis þannig að
allir gætu notið alls þess sem hann hefur upp
á að bjóða. Vefurinn bjargar lífi og skapar
lífsviðurværi. Hann setur upplýsingar um
heiminn í seilingarfjarlægð og tengir okkur
vinum og fjölskyldum um allan heim. Hann
gefur félagslegum hreyfingum kraft og hefur
skapað margvíslegan nýjan iðnað og verið
aflvaki nýsköpunar.
Þar sem vefurinn er frekar ný uppgötvun
er þetta aðeins upphafið á því sem hann býð-
ur upp á. Ímyndið ykkur hverju við getum
fengið áorkað þegar enn fjölgar svo um mun-
ar og nýr hópur íbúa heimsins leggur sitt af
mörkum til sprengikrafts nýsköpunar á net-
inu.
Góðu fréttirnar eru að viljinn til að takast
á við áskoranir netsins hefur aldrei verið
meiri. Tryggjum að næsti milljarður tengist
neti sem er þess vert að vera til. Komum því
til leiðar að 2019 verði árið sem við hrekjum
til baka öflin, sem grafa undan opnum anda
netsins. Við þurfum frjálst og opið net fyrir
alla.
©2018 The New York Times and Tim Berners-Lee
Á þessari mynd, sem tekin var í Genf 2013, sést fyrsta vefsíða sögunnar frá árinu 1992.
Fabrice Coffrini/Agence France-Presse - Getty Images
Henry Nicholls/Reuters
Hvernig á að bjarga netinu?
Ríkisstjórnir, fyrirtæki og notendur um allan heim verða að skuldbinda sig til að virða grundvallarreglur fyrir netið.
TIM BERNERS-LEE
Tim Berners-Lee fann upp veraldarvefinn (World
Wide Web) og er forstöðumaður og einn af stofn-
endum Veraldarvefsstofnunarinnar (World Wide
Web Foundation).
Góðu fréttirnar eru að viljinn til að takast
á við áskoranir netsins hefur aldrei verið
meiri. Tryggjum að næsti milljarður
tengist neti sem er þess vert að vera til.
TÍMAMÓT: 2019 MUN HELMINGUR JARÐARBÚA VERÐA Á NETINU
’’
Alexander Nix, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Cam-
bridge Analytica, á leið á
skrifstofur fyrirtækisins í
London 20. mars 2018.